Búnaðarrit - 01.01.1944, Page 183
B Ú N A Ð A R R I T
115
um í ögurhreppi, til að segja fyrir um fiskvegagerð
yfir fossinn í Laugadalsá (,,Einarsfoss“). Voru allir
bændur í Laugadal mættir við fossinn, og var þar
úkveðið að gera fossinn fiskgengan ])egar í haust,
enda var talsvert um lax neðan við fossinn. Við kom-
um daginn eftir heim í Reykjanes. Síðari hluta þessa
dags fórum við Aðalsteinn skólastjóri og Salvar hóndi
Ólafsson í Reykjarfirði til að skoða Reykjarfjarðará,
sem er smá á, er fellur í Reykjarfjörðinn. Einnig
skoðuðum við vötnin þar á hálsinum.
Þann 28. fór Aðalsteinn skólastjóri enn með mér
á vélbáti út að Þernuvík. Var svo um talað, að Hanni-
bal bóndi þar, fylgdi okkur á hestum upp á hálsinn til
Laugardals, til að geta skoðað veiðivötnin þar og ána
fremst í dalnum. Þaðan fórum við yfir fjall til Hey-
dals, er gengur upp af Mjóafirði. Heydalsá er ágæt
silungsá, sem því miður er illa með farin eins og svo
viða hefur átt sér stað. Frá Heydal fórum við lit að
Eyri og þaðan á ferju yfir fjörðinn að Keldu. Þar
biðu okkur liestar og fylgdarmaður frá Reykjanesi.
Við komum þangað kl. 2 um nóttina eftir 20 tíma
ferðalag.
29. Fór ég með Djúpbátnum til ísafjarðar og kom
þar síðla kvölds. Daginn eftir fór ég með híl vestur
að Núpi í Dýrafirði. Hafði búnaðarmálastjórn lagt
svo fyrir, að ég athugaði rafstífluna í Núpsá og hvaða
áhrif hún mundi hafa á fiskgöngur í ánni. Frá Núpi
fékk ég svo hát út fjarðarmynnið í veg fyrir Detti-
foss, er var á suðurleið.
Til Reykjavíkur kom ég 1. sept. Mætti á fundi
veiðimálanefndar og rak ýms smá erindi. Kom
heim 6. sept.
12. sept. fór ég norður í Höfðahverfi. Hafði lengi
legið loforð á, að ég kæmi þangað norður vegna
Gljúfurár og félags, sem við hana er stofnað. Frá Ak-
ureyri fór ég með póstbátnum til Grenivíkur og mætti