Búnaðarrit - 01.01.1944, Page 197
BÚNAÐARRIT
129
úr hól'i fram umhleypingasamt. Til þess að verja sig
gegn veðráttunni hér á landi þarf því vandaðar bygg-
ingar. Allar byggingar, hvort heldur fyrir fólk eða
íenað, þurfa að vera hlýjar, traustar og þola vel regn
og hreggviðri. Þar sem mildara er veðráttufar, má
oft notast við ódýrar byggingar, sem geta þó veilt
nægilegt skjól bæði mönnum og skepnum En slíku
cr ekki til að dreifa hjá okkur.
Eitt er enn ótalið, sem hefur gert varanlega húsa-
gerð erfiðari hér á landi, en viðast hvar annars stað-
ar. Það er vöntun á byggingarefni. ísland er snautt
nf góðu byggingarefni. Hefur litið annað að bjóða í
þeim efnum, en g'rj'ót og torf. Efni, sem að visu hefur
verið notað til veggjagerðar allt frá landnámstíð og
er notað allmikið enn. Timbur, sement og járn, sem
nú eru að verða aðal byggingarefnin, verðum við að
tlytja inn erlendis frá. Vöntun innlends bvggingar-
efnis stendur mjög í vegi fyrir því að hægt sé með
hóflegum ko&tnaði að reisa varanlegar byggingar í
sveitum, er fullnægi kröfum núlifandi kynslóðar.
Þegar sérstaklega er rælt um húsnæðismál dreif-
býlisins eða sveitanna þá koma þar til ýmsir erfið-
leikar, sem valda því að erfitt er að koma þar við
sömu þægindum varðandi húsnæði og i þéttbýli. Má
þar til nefna rennandi vatn í bæi, sem oft er lítt mögu-
legt að fá nema með ærnum kostnaði. Þó eru erfið-
leilcar að koma rafmagni almennt til sveitabýla enn
meiri, en það er í raun og veru aðeins einn þáttur i
hfisnæðismálum sveitanna.
Þessi atriði, er hér hafa verið nelnd, annars vegar
þörf þeirra er búfjárrækt stunda fyrir miklar og
vandaðar byggingar vegna framleiðslustarfanna, en
hins vegar erfið veðrátta og skortur á nothæfu inn-
lendu byggingarefni, ber allt að saina brunni með
það, að mál þessi eru erfið úrlausnar.
En talcmark það, sem stefna ber að, er að á ölluiu
9