Búnaðarrit - 01.01.1944, Page 231
Hákon Bjarnnson:
„Heggur sá er hlífa skyldi?t<;
Svar til Ólnfs Jónssonar, framkvæmdastjóra.
Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri Ræktunarfélags
Norðurlands, hefur ritað langt mál uin ritgerð, sem
ég skrifaði i Ársrit Skógræktarfélags íslands árið
1942 og nefndi Ábúð og örtröð. Grein sína birtir
Ólafur í síðasta Búnaðarriti. bls. 79—97, og á hún að
vera gagnrýni á skoðunum og ályktunum mínum i
íyrrnefndri grein.
Ritgerð mín, Ábúð og örlröð, er tilraun að komast
nær en áður hefur verið gert um viðskipti þjóðar-
innar, sem landið hyggir, og gróðrarins, sem á því
vex. Mér vitanlega hefur engin slik tilraun verið gerð
áður, og þvi er ekki hægt að vænta þess, að óvé-
fengjanlegar niðurstöður fáist undir eins, sizt af því,
að ýmsar heimildir vantar, en aðrar eru með ýmsum
annmörkum.
Ritgerðin hefst á áætlun um slærð gróðurlendisins,
og er sýnt fram á, að það muni vera mun minna, en
menn hafa hingað til álitið. Tatdi ég varhugavert að
telja meir en um 17000 ferkm lands gróna samfelld-
um gróðri. Sýnt er fram á, að gróðurlendið hafi
gengið mjög saman, eða um helming, frá því að hér
var nuinið land.
Þá eru raktar orsakir gróðrareyðingarinnar að
nokkuru, og niðurstaða ]>ess var sú, að rányrkjan,
beitin, væri oftast frumorsök gróðurskemmda og
landeyðingar. Sýnt er fram á, að hina siðari áratugi