Búnaðarrit - 01.01.1944, Page 268
200
BÚNAÐARRIT
voru undan Hæring frá Reykhólum og mun hann hafa
verið ágætur kynbótagripur og skaði að hann skyldi
geltur svo snennna.
í Gullhringu- og Kjósarsýslu er lítil hrossarækt og
fáir stofnar, sem eru einkennandi fyrir störf og stefn-
ur þar í hrossaræktinni. Eini stofninn, sem um væri
að ræða er út af hinu fræga skeiðlirossi, Flugu frá
Yarinadal (methafi á skeiði), en hún mun hafa verið
systir Nasa 88, undan Vind frá Skarði. Þó hefur hlið
unnizt á með þennan stofn, sökum þess hve stefnu-
laust niakavalið hefur verið.
Helzli hrossaræktarfrömuður sýslunnar er Þorgeir
Jónsson í Gufunesi (í'rá Varmadal). Hann á fram úr
skarandi góðan hryssnahóp, sem hann ætlar að nota
til reiðhestaræktar eingöngu, og er hann sá maður
hér á landi, sem vinnur einbeittast að því marki og
cru miklar líkur til að honum verði ágengt í því starfi,
þvi hann leggur mikið í sölurnar og hefur myndað
sér alveg skýra afstöðu og skoðanir um þann stofn,
sem hann ætlar að skapa. Sumar af hryssum hans eru
ættaðar úr Árnessýslu undan Nasa 88. Meðal þeirra
eru þekktastar auk Flugu, sem áður er gelið, Drottn-
ing (methafi á stökki) frá Stafholti og Perla frá
Geldingaholti. Fleiri hryssur hefur hann fengið sér,
sem eru líklegar til að gefa góðan árangur og má
meðal þeirra nefna Skottu, æltb. 1507. Hún er dóttir
Jarps frá Varmalæk 124 og Perlu, sem Björn Vigfús-
son frá Gullberastöðum átti. (Sjá „Hestar“, mynd nr.
123.) í Skottu er mjög mikið af verðmætum reið-
hestaeiginleikum og ætti hún að gela gefið verðmæt
hross, ef hún fengi maka, sem væri lienni fyllilega
samboðinn.
Héraðssýningin að Ferjukoti 14. júní 1943.
Að þessu sinni var liéraðssýning aðeins haldin að
Ferjukoti í Borgarfirði fyrir Búnaðarsamband Borg-