Heilbrigðismál - 01.06.1977, Page 16

Heilbrigðismál - 01.06.1977, Page 16
hins vegar sýnilegt að betur má ef duga skal. Hvaða lærdóm getum við dregið af þeirri vitneskju, sem aflað hefur verið um orsakasam- hengi lifnaðarhatta og sjúkdóma? Hvernig ber okkur að bregðast við þeim lærdómi? Fyrsta ályktunin, sem upp í hug- ann kemur, er sú að ekki er lengur hægt að reiða sig á beinar aðgerðir, sjúkdómaleit, bólusetningar og þess háttar, eins og áður var lýst. Ljóst er að nú er það einstaklings- ins sjálfs að aðhafast frckar en lækna og heilbrigðisstarfsliðs. Skil- yrði þess að einstaklingurinn geti aðhafst er að hann hafi vitneskju um það hversu honum ber að haga líferni sínu til að forðast sjúkdóma. Frumskilyrðið er þó að hann hafi viljann því að án hans dugar ekki þekkingin. Það sem því bíður heil- GARÐS APÓTEK Sogavegi 108 Reykjavík brigðisstarfsfólks er að koma þekkingunni áleiðis til þeirra sem vilja nýta sér hana, og að því hlýtur heilsuverndarstarf í framtíðinni að beinast í æ ríkara mæli. Nú á tímum sjást aftur á móti ýmis teikn um gagnstæða þróun, sístækkandi hlut lækninga í þjóð- félaginu, oftrú á tækniþróun læknavísinda og vaxandi afskipti lækna, heilbrigðisstarfsfólks og heilbrigðisstofnana af einstakl- ingnum og kvörtunum hans, vax- andi lyfjanotkun, pillur við þessu og pillur við hinu. Allt þetta hefur gert að verkum að meðvitund fólks um eigin skyldur hefur sljóvgast. Einstaklingurinn hefur orðið minna og minna virkur og hann hefur kastað áhyggjum sínum af heilsufari og jafnvel daglegri líðan yfir á lækninn og vísindi hans. Á þessari braut verður ekki haldið lengi áfram, án þess að leiði í ógöngur, og því verður af alefli að spyrna gegn þessari þróun. Það er einstaklingurinn sjálfur Sem ber ábyrgð á lífi sínu og heilsu og þá ábyrgð getur enginn axlað fyrir hann. Hér fer því saman megininntak nýrra sjónarntiða í heilsuverndar- málum og almenn þörf gerbreyt- ingar á afstöðu almennings til eigin velferðar, likamlegrar og andlegr- ar. Fræðslu- og ráðgjafahlutverk heilbrigðisstétta hlýtur að fara stórvaxandi á komandi árum. Ekki aðeins þessar stéttir þurfa að leggja hönd á plóginn, heldur allir þeir einstaklingar og félagasamtök sem áhuga hafa á að varðveita heilbrigt mannlíf. S.G.J. Fleiri áskrifendur — betra blaó Lesendur Fréttabréfs um heil- gang tímaritsins. Nota má brigðismál eru hvattir til að áskriftarseðilinn sem fylgir útvega nýja fasta kaupcndur þessu blaði en einnig má panta til þess að auka vöxt og við- áskrift í síma 16947. 16 FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.