Heilbrigðismál - 01.06.1977, Page 17
LYFJAGLÖS MEÐ
ÖRYGGISLOKI
á markaóinn í haust
Búist er við að í haust verði gef-
>n út „reglugerð um ílút og umbúðir
fyrir lyf“. Ráðgert er að í henni
verði ákvæði um að glos undir
vissar tegundir lyfja sem pökkuð
eru hér á landi skuli búin öryggis-
loki. ísland verður þar með annað
landið í heiminum sem setur slíkar
reglur, en þær hafa verið í gildi í
Bandaríkjunum í nokkur ár.
Undanfarin þrjú ár hefur ís-
lenskur uppfinningamaður unnið
að þróun nýrrar gerðar öryggisloka
sem hann hefur hannað. Þetta er
Jóhannes Pálsson, framkvæmda-
stjóri Bjallaplasts hf. á Hvolsvelli.
Nýlega er lokið fjögurra mánaða
tilraunum sem Jóhannes vann að
við Danmarks Tekniske Höjskole
og gáfu þær það góða raun að í
haust verður hægt að hefja fjölda-
framleiðslu á glösum þessum.
Verða þau framleidd í þremur
stærðum, 25, 50 og 100 rúmsenti-
metra.
Það vandamál sem leysa þurfti
varðandi gerð loksins var að þægi-
legt varð að vera fyrir gamalt fólk
og sjóndapurt að opna glösin en
jafnframt ókleift fyrir börn sem eru
á þeim aldri þegar þau hafa ekki vit
á að varast innihaldið. Eins og sést
á meðfylgjandi ntyndum er hug-
myndin að baki þessari upp-
finningu sú að nota þurfi mynt (t. d.
10 kr.) eða annan sambærilegan
hlut til að setja ofan í rauf sem er á
lokinu og losnar lokið þá við lítinn
og léttan snúning. Það smellur
síðiin auðveldlega á aftur með því
að þrýsta því niður og nota verður
sömu aðferð til að opna það aftur.
Með þunnum og hörðum hlut er
auðvelt að opna íslenska öryggls-
Q^asið. Ljósm.: J.R.
Glösin hafa staðist viðurkenndar
þéttleikaprófanir erlendis.
Þrátt fyrir margar og mismun-
andi tegundir af lokum sem gerð
hafa verið til að þjóna þessu ör-
yggissjónarmiði þá telja ýmsir er-
lendir aðilar að lausn Jóhannesar
sé sú besta sem fundist hefur. Til
dæmis er þessi tegund öryggisloka
nú til sérstakrar athugunar hjá Ap-
otekerens Laboratorium í Dan-
mörku og hið þekkta danska fyrir-
tæki Kastrup og Holmegárd hefur
fengið Jóhannes til að hanna plast-
kraga á glerglös þau sem fyrirtækið
framleiðir og þekkt eru m. a. hér á
landi.
Hin nýju lyfjaglös sem Bjalla-
plast hf. fer senn að hefja fram-
leiðslu á verða úr brúnleitu plast-
efni sem gengur ekki i samband við
innihaldið sem þau eiga að geyma.
Talið er að öryggisglösin verði hvað
framleiðslukostnað snertir vel
samkeppnisfær við þau glös sem nú
eru 1 notkun. Áætlað hefur verið að
árleg notkun hér á landi nemi
á aðra milljón glasa. —jr.
17