Heilbrigðismál - 01.06.1988, Qupperneq 10

Heilbrigðismál - 01.06.1988, Qupperneq 10
Fleiri en ein eyðniveira Grein eftir Harald Briem Enn er lítið vitað um uppruna eyðnifaraldursins sem fyrst var tekið eftir árið 1981 í Bandarfkjun- um. Eftir að veiran sem veldur eyðni fannst reyndist mögulegt að gera mótefnamælingar gegn henni. Veira þessi, sem er retró- yeira, er núorðið almennt kölluð HIV-1 (Human Immunodeficiency Virus type 1). Ljóst er nú af mót- efnamælingum gamalla sýna að eyðnifaraldurinn hefur verið að | búa um sig 10 til 20 árum áður en z fyrstu tilfellin voru greind. íbúar í 1 löndum Mið-Afríku og Bandaríkja 2 ---------------------------------- X | HIV-1 og HIV-2 eru eins í útliti. Á § þessari smásjármynd eru kúlurnar | HlV-veirur á yfirborði eitilfrumu í (T-hjálparfrumu). Norður-Ameríku hafa orðið verst fyrir barðinu á veirunni, enda far- aldurinn staðið lengst þar. Veiran hefur einnig náð verulegri út- breiðslu í Suður-Ameríku og Evr- ópu. Þá er farið að bera á eyðni í Asíu þannig að um raunverulegan alheimsfaraldur er að ræða. Umræður um uppruna eyðni hafa víða valdið úlfaþyt meðal þeirra sem finnst að sér vegið. Böndin hafa borist að Mið-Afríku af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi er útbreiðsla sjúkdómsins hvað mest þar og í öðru lagi hafa fundist veir- ur í villtum öpum þar sem líkjast verulega eyðniveirunni (HIV-1). Mið-Afríkubúar hafa mótmælt þessu með vissum rétti. Tilvist svipaðrar veiru í öpum sannar ekk- ert um uppruna eyðni í mönnum og ekki verður séð að mikill tíma- munur sé á útbreiðslu veirunnar í Bandaríkjunum og Afríku. Raunar hafa fundist merki um smit af völdum HIV, eða veiru sem líkist henni mikið, í tuttugu ára gömlum blóðsýnum frá indíánum í Ama- són-frumskóginum í Suður-Am- eríku. Sérkennilegt er að skömmu eftir að eyðni var lýst í mönnum braust út eyðnifaraldur meðal resusapa (Macaca mulatta) í rannsóknamið- stöðvum í Massachusetts og í Kali- forníu í Bandaríkjunum. Árið 1985 ræktaðist retróveira úr öpunum sem reyndist nokkuð skyld eyðni- veirunni (HIV-1) og er nú nefnd SIV (Simian Immunodeficiency Virus). Síðar fundust mótefni gegn þessari veiru í blóði einkenna- lausra afrfskra grænna apa (Cerop- ithecus aethiops) og heilbrigðra vændiskvenna frá Senegal. í kjöl- far þessa, árið 1986, fannst retró- veira í eyðnisjúklingum frá Gfneu Bissá, sem á landamæri að Sene- gal, og á Grænhöfðaeyjum. Veira þessi var nefnd HIV-2 og reyndist enn skyldari SIV en HIV-1 er. Margt er á huldu um uppruna smits í mannöpum. Resusapar eru upprunnir í Asíu. Þeir sem lifa villtir virðast ekki smitaðir. Fang- aðir resusapar sem smitast geta fengið eyðni. Líklegast er að þessir apar hafi smitast af öðrum öpum, eins og þeim sem fundist hafa í Afríku, sem ekki veikjast og telja má náttúrulega hýsla veirunnar. Nokkrum erfiðleikum hefur ver- ið bundið að skýra hvers vegna HIV-1 veldur eyðni í mönnum en HIV-2 fannst einungis í heilbrigðu fólki í Senegal. Skýringin á þessum mun kann að vera að HIV-2 fannst við skimprófanir og þess vegna ekki farin að valda einkennum í úr- taki heilbrigðra einstaklinga þar í landi þegar sýnin voru tekin. Reyndar er það nú komið á daginn að sú skýring er líkleg þar sem eyðni hefur nú greinst í senegölsk- 10 HEILBRIGÐISMÁL 2/1988

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.