Heilbrigðismál - 01.06.1988, Page 33

Heilbrigðismál - 01.06.1988, Page 33
(FAO) og Alþjóða heilbrigðismála- stofnunarinnar (WHO). Á vegum Evrópubandalagsins (EB, EBE) er einnig starfandi sérfræðinefnd sem hefur það hlutverk að meta notkun aukefna í matvælum. Mat nefnd- anna byggist á niðurstöðum rann- sókna sem eru gerðar til að kanna eituráhrif (eða eiturhrif) efnanna. A grundvelli slíkra rannsókna ákvarða nefndirnar markgildi eða svonefnd ADI-gildi (Acceptable Daily Intake) fyrir aukefni ef ástæða er talin til. Þetta gildi er gefið upp í milligrömmum á hvert kflógramm líkamsþunga og gefur H1 kynna það magn sem fólk á að Neytendur eiga ekki að þurfa að ottast aukefni sem merkt eru með E-númerum, þvert á móti eiga þau að veita tryggingu fyrir að efnin hafi staðist nákvæmar rannsóknir. geta neytt daglega alla ævi án hættu á skaðlegum áhrifum. Rétt er að geta þess að ofnæmisviðbrögð eru ekki höfð til hliðsjónar þegar markgildi er ákvarðað. Sem dæmi má geta þess að markgildi fyrir sætuefnið aspartame er 40 milli- grömm á hvert kílógramm líkams- þyngdar en fyrir sætuefnið sýkla- mat 11 mg/kg. Aspartam (Nutra Sweet) er þannig hægt að leyfa til notkunar í fleiri vörutegundir og í meira magni en sýklamat. Ný reglugerð. Á miðju þessu ári tekur gildi ný reglugerð um notk- un aukefna í matvælum, ásamt nýjum aukefnalista. Á þeim rúma áratug sem liðinn er frá setningu eldri aukefnalista hafa orðið veru- legar breytingar varðandi fram- leiðslu og innflutning matvæla. Þá hafa ný aukefni komið til og nýjar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum tiltekinna efna. Því hefur reynst nauðsynlegt að endurskoða gildandi reglur. Auk þess er tekið á ýmsum þáttum varðandi notkun, dreifingu og merkingu aukefna, sem ekki hefur áður verið fjallað um í íslenskum reglugerðum. Hér verða nefnd nokkur atriði nýju reglugerðarinnar. ❖ Einungis verður leyft að nota þau aukefni sem fram koma á auk- efnalista. Engin aukefni verða al- mennt leyfð í matvælum heldur verður nákvæmlega kveðið á um í hvaða flokka eða tegundir matvæla má setja aukefni. ík Eiginleikar og hreinleiki auk- efna skal vera f samræmi við viður- kenndar skilgreiningar. ;i: Eftirlit verður haft með inn- flutningi og dreifingu aukefna til notkunar í iðnaði. Þá verða settar strangar reglur um sölu aukefna í verslunum svo sem sætuefna, mat- arlita og rotvarnarefna. ❖ Leyfilegt hámark tiltekinna auk- efna í neysluvörum er lækkað. Sem dæmi má nefna sætuefni eins og sakkarín og sýklamat. Það sama gildir um rotvarnarefni, þráavarn- arefni og bragðaukandi efni, þegar fleiri en eitt aukefni hvers flokks eru notuð f sömu neysluvöru. ❖ Ný efni eru leyfð til notkunar í ákveðnar fæðutegundir. Á þetta m.a. við um sætuefni eins og syk- uralkóhola og asesúlfam-K. 4: Sum aukefni sem nú eru notuð hér á landi verða ekki leyfð fram- vegis. Notkun Iitarefna í matvæli hefur lengi verið umdeild og þá sérstaklega notkun azo-litarefna, en sum þeirra eru þekktir ofnæm- isvaldar. Gert er ráð fyrir veruleg- um breytingum á notkun þessara efna hér á landi og verða margir framleiðendur að huga að breyt- ingum varðandi framleiðsluvörur sínar. Það sama á við um innflytj- endur. Sem dæmi má nefna að lit- arefnin E 102, E 110, E 123 og E 124 verða aðeins leyfð í áfengum drykkjum og kokkteilblöndum. Umbúdanierkingar. Samkvæmt nýjum reglum um merkingu um- búða skulu aukefni, sem notuð eru við framleiðslu vöru, skráð í inni- haldslýsingu eftir minnkandi magni á sama hátt og hráefni. Gerð verður krafa um merkingu með flokksheiti og auk þess E- HEILBRIGÐISMÁL 2/1988 33

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.