Heilbrigðismál - 01.06.1991, Qupperneq 14
neyslu landsmanna. Meðalneyslan
samsvarar um það bil fjórum
brauðsneiðum á mann. Nánast all-
ir landsmenn borða að minnsta
kosti eina brauðsneið á dag. Helm-
ingur pilta borðar meira en 5 sneið-
ar á dag, en helmingur kvenna á
aldrinum 50-69 ára borðar tvær
sneiðar eða minna. Brauðneysla ís-
lendinga er mun minni en annarra
Norðurlandabúa.
Kex og kökur eru þriðjungur af
kornvöruneyslu landsmanna sam-
kvæmt könnuninni. Mest er neysl-
an hjá piltum eða sem samsvarar
um 8 litlum kexkökum. Hlutfalls-
Iega er neyslan mest í elsta aldurs-
hópi kvenna og yngsta hópi karla
eða 40 af hundraði kornvara í
heild.
Morgunverðarkorn. Til þessarar
fæðu telst kaldur spónamatur úr
korni. Neysla á morgunverðar-
korni er fyrst og fremst almenn í
yngsta aldurshópnum. Helmingur
pilta borðar meira sem samsvarar
tæpum diski á dag.
Gróft grænmeti. Grænmeti er
flokkað í tvo flokka, gróft græn-
meti og fínt. Gróft grænmeti kall-
ast allt kál, bæði hvítkál, rauðkál,
blómkál, og brokkkál, svo og gul-
rætur, rófur, rauðrófur, laukur,
sellerí, ertur og baunir. Meðal-
neysla á þessari fæðu er samanlegt
50 grömm, sem samsvarar um það
bil einum desilítra af soðnu græn-
meti á dag eða hálfri gulrót. Ungt
fólk af báðum kynjum borðar
minnst úr þessum flokki grænmet-
is, jafnvel minna en aldraðir, en
karlar á miðjum aldri borða mest.
Hlutfallslega borða þó konur meira
af grænmeti en karlar, ef tekið er
tillit til minni neyslu kvenna yfir-
leitt.
Fínt grænmeti. Til þessa flokks
telst trefjaefnasnauðara grænmeti:
tómatar, agúrkur, salat, sveppir og
paprika. Tiltölulega lítið er borðað
úr þessum flokki, miðgildið er 12
grömm sem samsvarar einni sneið
af tómati á dag. Konur borða meira
af fínu grænmeti en karlar en gam-
alt fólk borðar það sjaldan, helm-
ingur kvenna á aldrinum 70 fil 80
ára borðar minna en 2 grömm á
dag og meira en helmingur karla á
sama aldri borðar ekkert úr þess-
um flokki.
Kartöflur. Meðalneyslan sam-
svarar um það bil tveim til þrem
kartöflum á dag. Ungt fólk borðar
minnst af kartöflum, jafnvel mun
minna en aldraðir, og konur borða
minna af kartöflum en karlar.
Ávextir, ber og safi. Konur borða
meira úr þessum fæðuflokki en
karlar og ungt fólk borðar um
þrisvar sinnum meira en elsti ald-
urshópurinn. Það er athyglisvert
að margir fullorðnir karlmenn virð-
ast borða lítið sem ekkert úr þess-
um flokki matvæla.
Ferskir ávextir og ber. Konur á öll-
um aldri borða mun meira af
nýjum ávöxtum en karlar. Meðal-
neyslan er um 50 grömm í öllum
aldurshópum karla en milli 75 og
100 grömm hjá konum. Hins vegar
er mjög mikil dreifing í neyslunni,
meira en 10 af hundraði borða alls
enga ávexti og helmingur karla
borðar 20 grömm á dag eða minna,
sem samsvarar einu rifi úr appels-
ínu á dag eða tæpu epli á viku. Að-
eins 10 af hundraði karla borða
sem samsvarar einum ávexti á dag
eða meira.
Safi. Ungar stúlkur drekka mest
af hreinum ávaxtasafa, eða sem
samsvarar lítilli fernu á dag að
meðaltali. Konur drekka meira af
safa en karlar í öllum aldursflokk-
um en neyslan minnkar mikið eftir
aldri hjá báðum kynjum. Karlar yf-
Meðalneysla íslendinga Dagleg neysla að meðaltali, samkvæmt könnun Manneldisráðs 1990. Karlar Konur
Mjólk og flestar mjólkurvörur 716 g 469 g
- Nýmjólk 429 g 218 g
- Léttmjólk 138 g 96 g
- Undanrenna 22 g 57 g
Ostar 41 g 34 g
Kornvörur 178 g 133 g
- Brauð 113 g 86 g
- Kex og kökur 65 g 42 g
Morgunverðarkorn 11 8 9 g
Gróft grænmeti 54 g 46 g
Fínt grænmeti 18 g 25 g
Kartöflur 174 g 102 g
Ávextir, ber og safi 135 g 177 g
- Ferskir ávextir og ber 50 g 82 g
- Safi 76 g 95 g
Kjöt og kjötvörur 140 g 74 g
Fiskur og fiskafurðir 91 g 56 g
Fuglakjöt 12 g 7g
Egg og eggjavörur 22 g 15 g
Fita og feitmeti 75 g 46 g
- Lýsi 4g 3g
Sykur, hunang og sælgæti 70 g 45 g
Gosdrykkir og svaladrykkir 254 g 204 g
Kaffi (lagað) 679 g 557 g
Te (lagað) 78 g 97 g
Vatn til drykkjar 161 g 262 g
14 HEILBRIGÐISMÁL 2/1991