Heilbrigðismál - 01.06.1991, Síða 18
HEILBRIGÐISMÁL / Ljósmyndarii
C-vítamín
Gott í hófi
C-vítamín var uppgötvað fyrir
sextíu árum. Síðan hefur mikið
verið rætt og ritað um áhrif þess á
heilsu fólks. Fyrst í stað snerist
umræðan einkum um varnir gegn
skyrbjúg, þar sem C-vítamíns-
skortur var orsök þess sjúkdóms.
Hlutverk C-vítamíns í myndun
heilbrigðs bandvefs er talin ástæð-
an fyrir mikilvægi vítamínsins í
skyrbjúgsvörnum. Seinna varð
Ijóst að C-vítamín tæki þátt í marg-
víslegum efnaskiptum öðrum en
eðlilegri bandvefsmyndun. Má þar
nefna hlutverk þess í uppbyggingu
og niðurbroti ákveðinna efna í lík-
amanum, í mótefnakerfinu, í frá-
sogi járns frá görnum, auk þess
sem C-vítamín er mjög gott efni til
að eyða áhrifum stakeinda (stakra
radikala, árásargjarnra efniseinda),
sem myndast í líkamanum. Slíkar
stakeindir verða til við eðlileg efna-
skipti í líkamanum, en utanaðkom-
andi aðstæður, til dæmis geislun
og ýmis krabbameinsvaldandi
efnasambönd, auka magn þeirra
og eyðileggjandi áhrif í líkaman-
um.
Fyrir rúmum áratug voru í gangi
fjörugar umræður um áhrif stórra
C-vítamínsskammta á almennt
heilsufar manna (sjá Heilbrigðis-
mál 4/1978). Bar þar einna hæst
umfjöllun um þátt C-vítamíns í
vörnum gegn veirusýkingum í efri
öndunarvegum. Einnig var ákaft
deilt um stærð ráðlagðra dag-
skammta og er þeirri deilu engan
veginn lokið enn.
Áhr if á kvef
í nágrannalöndunum hafa ráð-
lagðir dagskammtar af C-vítamíni
breyst gegnum árin og eru enn
nokkuð mismunandi milli landa.
Skammtarnir eru á bilinu 30 til 80
mg á dag og hafa fyrst og fremst
verið miðaðir við það að koma í
veg fyrir öll einkenni skyrbjúgs. ft-
arlegar rannsóknir hafa sýnt að
Grein eftir Elínu Ólafsdóttur
hraustir ungir karlmenn fá engin
skyrbjúgseinkenni, ef þeir neyta
að staðaldri 10 mg af C-vítamíni á
dag. Ymsir sjúkdómar, reykingar
og streita ganga á C-vítamínið í lík-
amanum og því eru ráðlagðir dag-
skammtar hafðir nokkru hærri en
lágmarksþörfin.
Hins vegar er deilt um mun á
ráðlagðri lágmarksneyslu og æski-
legri neyslu, þar sem jákvæðir eig-
inleikar C-vítamíns eru nýttir að
fullu til viðhalds góðri heilsu.
C-vítamín í stórum skömmtum
hefur lengi verið notað til að koma
í veg fyrir eða draga úr óþægind-
um af völdum kvefs. Umfangs-
miklar rannsóknir voru gerðar á
áttunda áratug aldarinnar til að
kanna réttmæti þessarar notkunar.
Niðurstöður rannsóknanna eru í
stuttu máli þær, að C-vítamín
dregur úr sjúkdómseinkennum og
vanlíðan en kemur ekki í veg fyrir
sýkingar í efri öndunarvegum.
Skammtastærðir frá 250 mg og upp
í nokkur grömm á dag hafa svipuð
áhrif við að draga úr einkennum.
Athygli vakti í nokkrum rannsókn-
unum hvað þátttakendur fengu
mikið C-vítamín úr venjubundnu
mataræði, þannig að viðbótar C-
vítamínneysla hafði tiltölulega lítil
bætandi áhrif.
Áhrif C-vítamíns á ýmsa fleiri
heilsufarslega þætti hafa einnig
verið rannsökuð nú um árabil. Má
Hálf appelsína á dag nægir til að
uppfylla lágmarksþörf líkamans
fyrir C-vítamín. Fleiri appelsínur
eða aðrir vítamínríkir ávextir
skaða þó ekki - síður en svo.
I
J
18 HEILBRIGÐISMAL 2/1991