Heilbrigðismál - 01.06.1991, Page 24
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ / Ljósmyndarii
Nokkrir áfangar
1949: Fyrsta íslenska krabba-
meinsfélagiö, Krabbameins-
félag Reykjavíkur, var stofn-
að 8. mars. Utgáfa á Frétta-
bréfi um heilbrigðismál
hófst í desember.
1951: Krabbameinsfélag ís-
lands var stofnað 27. júní.
1954: Hafin var skráning
krabbameina og Krabba-
meinsskránni komið á fót.
1955: Happdrætti Krabba-
meinsfélagsins var hleypt af
stokkunum.
1957: Rekstur almennrar leit-
arstöðvar hófst.
1962: Félagið festi kaup á
húsinu Suðurgötu 22 í
Reykjavík.
1964: Skipuleg leit hófst að
krabbameini í leghálsi og að
forstigum þess.
1969: Leit að brjóstakrabba-
meini hófst.
1976: Ný sókn hófst í barátt-
unni gegn reykingum.
1982: Fyrsta landssöfnunin
undir kjörorðinu „Þjóðar-
átak gegn krabbameini" var
í október.
1984: í september flutti starf-
semi félagsins í nýtt hús að
Skógarhlíð 8 - „Húsið sem
þjóðin gaf".
1986: Efnt var til „Þjóðar-
átaks gegn krabbameini -
þín vegna".
1987: Heimahlynning krabba-
meinssjúklinga hafin.
1988: Rannsóknastofa í sam-
einda- og frumulíffræði tek-
in í notkun.
1990: „Þjóðarátak gegn
krabbameini - til sigurs".
Krabbameinsfélag íslands
Aðalfundur Krabbameinsfélags íslands:
Staða félagsins er sterk
Aðalfundur Krabbameinsfélags
íslands 1991 var haldinn 24. maí í
húsi félagsins að Skógarhlíð 8.
Fundinn sátu yfir sextíu manns og
voru fulltrúar frá sautján aðildarfé-
lögum Krabbameinsfélags Islands.
Verndari félagsins, Vigdís Finn-
bogadóttir forseti íslands, var við-
stödd fyrsta hluta fundarins ásamt
Sighvati Björgvinssyni heilbrigðis-
ráðherra og fleiri gestum. I upphafi
fundarins var minnst Alfreðs
Gíslasonar læknis, sem lést á síð-
asta ári, en hann var einn af helstu
hvatamönnum að stofnun samtaka
til baráttu gegn krabbameini. í til-
efni af því að á þessu ári eru fjöru-
tíu ár liðin frá stofnun Krabba-
meinsfélags íslands flutti Ólafur
Bjarnason prófessor, og fyrrver-
andi formaður félagsins, erindi um
helstu þætti í sögu félagsins.
í skýrslu Almars Grímssonar,
Frá aðalfundi Krabbameinsfélags
íslands, sem haldinn var í maí. f
ræðustól er Ólafur Bjarnason
prófessor, en hann var einn af
stofnendum krabbameinssamtak-
anna hér á landi.
formanns félagsins, kom fram að
staða félagsins er sterk. Hrein eign
félagsins er tæpar þrjú hundruð
milljónir króna og munar þar mest
um húseignina Skógarhlíð 8. Hefð-
bundinn rekstur á síðasta ári
var erfiður, en stuðningur almenn-
ings í „Þjóðarátaki gegn krabba-
meini 1990 - til sigurs" gerir fé-
laginu kleift að halda áfram á sömu
braut og takast á við ný verkefni. í
því sambandi má geta þess að
nýlega hafa Krabbameinsfélagið og
Rauði kross fslands keypt tvær
íbúðir í nágrenni Landspítalans til
afnota fyrir krabbameinssjúklinga
af landsbyggðinni og aðstandend-
ur þeirra. í skýrslu formanns kom
einnig fram að nú eru fyrirhugað-
ar breytingar á rekstri Heima-
hlynningar Krabbameinsfélagsins,
en sú þjónusta hefur mælst mjög
vel fyrir. Þá kom fram að ný-
lega var úthlutað úr sjóðum félags-
ins styrkjum til krabbameins-
rannsókna fyrir á sjöttu milljón
króna.
Á aðalfundi Krabbameinsfélags
íslands var samþykkt ályktun þar
sem hvatt var til þátttöku í reyklaus-
um degi, 31. maí, en hann var að
24 HEILBRIGÐISMÁL 2/1991