Heilbrigðismál - 01.06.1991, Blaðsíða 28
til þess bærir. Kæruleysi gagnvart
þessum atriðum er undrunarefni,
því enginn eðlismunur er á þessari
verslun og eiturlyfjasölu. Hér virð-
ist því full þörf á að skerpa þjóð-
arafstöðuna til þessa vandamáls.
Um hinn siðferðilega þátt máls-
ins ætti að vera óþarft að fara
mörgum orðum. Misnotendurnir
hafa komið slíku óorði á vissar
íþróttagreinar, að heiðarlegir
íþróttaiðkendur liggja undir ámæli
um misnotkun að ósekju. í slíkum
tilfellum þarf sterk bein til að
standast hópþrýstinginn og hefja
ekki misnotkun.
Fjárhagslegu mótrökin hljóta
líka að vegna þungt fyrir þá sem
ekki sigra sér til tekna. Lyf þessi
eru seld á svörtum markaði, senni-
lega á okurverði.
Ungt fólk í hættu
Hér hefur verið stiklað á stóru
um lyfjamisnotkun íþróttamanna,
sem er umtalsvert vandamál hér-
lendis sem erlendis. Getið hefur
verið verkunar lyfjanna og auka-
verkana. Hættan er stórlega van-
metin að okkar dómi og er því
brýn þörf á að halda vöku sinni.
íþróttasamband íslands hefur tekið
upp lyfjapróf til að herða eftirlit
með misnotkun. Þó eru vaxtar-
ræktarmenn og kraftlyftingamenn
ekki háðir slíku eftirliti. Þótt lyfja-
próf væru tekin upp þá er kostnað-
ur við þau gífurlegur og þau koma
ekki að gagni, nema blóð- og
þvagsýni séu tekin að óvörum á
æfingatímanum. Að mati granna
okkar á Norðurlöndum eru lyfja-
próf sem gerð eru á stórmótum
eingöngu því gagnslaus ef mis-
notandinn á þess kost að losa sig
við lyfin úr líkamanum í tæka tíð.
Okkur ber að beina orku okkar
fyrst og fremst að æskufólki sem
ekki hefur byrjað misnotkun enn-
þá og heldur dómgreind sinni
óskertri. Hér er þó við ramman
reip að draga því unglingar sækja
gjarnan fyrirmyndir til eldri
íþróttamanna og þjálfara. Fræðsla
um þessi efni á því brýnt erindi
inn á heimilin og í skólana.
Helstu heimildir:
J. D. Wilson: Androgen Abuse by Athletes.
Endocrine Reviews 1988; 9:181-199.
G. H. Pope o. fl.: Affective and Psychotic
Symptoms Associated With Anabolic Steroid
Use. Am J Psychiatry 1988;145:487-490.
Pétur Pétursson og higvar Þórodds-
son eru læknar á Heilsugæslustööinni
á Akureyri. Þeir hafa nýlega skrifaö
um sama efni í Dag.
Hollt og gott kex frá Braycot
Góð heílsa
er gæfa
hvers manns
Faxafell hf. símí 51775
28 heilbrigðismál 2/1991