Heilbrigðismál - 01.06.1991, Side 34
HEILBRIGÐBMÁL
greinist hlutfallslega fleiri æxli á
fyrsta stigi, en þá eru horfur á
lækningu betri. Aætlað er að dán-
artíðnin verði komin niður í um 17
af 100.000 á næstu árum en muni
ekki fara neðar fyrir aldamót.
Samantekt. Skipulegt leitarstarf
hefur dregið úr fjölda legháls-
krabbameina og bætt lífslíkur
þeirra kvenna sem greinst hafa
með sjúkdóminn við leit. Þess er
vænst að skipulegt leitarstarf með
töku brjóstaröntgenmynda flýti
greiningu brjóstakrabbameins og
leiði til lækkunar á dánartíðni sjúk-
dómsins. Færa má rök fyrir því að
með leitarstarfinu hafi mörgum
tugum mannslífa verið bjargað.
Tilvitnanir:
1. Kristján Sigurðsson o. fl.: Leghálskrabba-
meinsleit á íslandi 1964-86. Læknablaðið
1988:74:35-40.
2. Guðmundur Jóhannesson o. fl.: Screen-
ing for cancer of the uterine cervb< in Iceland
1965-78. Acta Obstet Gynecol Scand
1982:61:199-203.
3. Jónas Ragnarsson og Hrafn Tulinius: Nú
eru á lífi um fjögur þúsund manns sem fengið
hafa krabbamein. Heilbrigðismál 2/1987.
Dr. Stcfán Aðalsteinsson er erfða-
fræðingur og tölfræðingur. Hann er nú
forstöðumaður norræns genabanka á Ási
í Noregi en iiefur unnið að tölfræðilegri
úrvinnslu fyrir Krabbameinsfélagið.
Dr. Kristján Sigurðsson er yfir-
lækttir leitarstöðvar Krabbatneinsfe'-
lagsins og yfirlæknir krabbatneins-
lækningadeildar kvennadeildar Land-
spítalans.
Forsendur þeirra útreikninga setn
hér er sagt frá eru útskýrðar í ítarlegri
grein setti birtist í lnternational Jourtt-
al of Cancer.
Fréttir frá
Krabbameins-
félaginu
Blettaskoðun. Félag íslenskra
húðlækna og Krabbameinsfélagið
sameinuðust um sérstaka þjónustu
við almenning á sumardaginn
fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl.
Fólk sem hafði áhyggjur af blettum
á húð gat komið í leitarstöð
Krabbameinsfélagsins að Skógar-
hlíð 8 þar sem húðsjúkdómalækn-
ar skoðuðu blettina og lögðu mat á
hvort ástæða væri til nánari rann-
sókna. Fljótlega var fullbókað í
þessa skoðun en næstu daga á eftir
var boðin svipuð þjónusta á veg-
um göngudeildar húðsjúkdóma. í
maímánuði var svipuð blettaskoð-
un í boði á Akureyri. Eins og
kunnugt er hefur tfðni húðkrabba-
meins aukist síðustu áratugi. Ár
hvert eru skráð meira en þrjátíu ný
tilfelli af húðkrabbameini hér á
landi. Mikilvægt er að fara til lækn-
is ef fram koma breytingar á húð
eins og blettir sem stækka, eru
mislitir eða breytast, og sár sem
ekki gróa. Á flestum heilsugæslu-
stöðvum og í mörgum apótekum
er hægt að fá fræðslurit um húð-
krabbamein, en það var gefið út á
síðasta ári.
Heilsuhlaup Krabbameinsfé-
lagsins var haldið í fjórða sinn
laugardaginn 8. júní. Álls tóku á
þrettánda hundrað manns þátt í
hlaupinu að þessu sinni (774
greiddu þátttökugjald í Reykjavík,
um 350 á Akureyri og 140 á Egils-
stöðum). í Reykjavík var í fyrsta
sinn boðið upp á 2 km hring, auk 4
km og 10 km. Þetta var gert á Ak-
ureyri í fyrra og gafst vel. Það var
endurtekið nú fyrir norðan og haft
eins fyrir austan. Fólki var í sjálfs-
vald sett hvort það gekk, hljóp eða
hjólaði þennan stutta hring.
Heilsuhlaupið var að þessu sinni
stutt af Alþjóða líftryggingarfélag-
inu og Ólympíunefnd Islands.
fbúdir vígðar. í júní voru form-
lega teknar í notkun tvær fbúðir
sem Krabbameinsfélagið og Rauði
kross íslands hafa sameinast um
kaup á í nágrenni Landspítalans,
nánar til tekið við Lokastíg. fbúð-
irnar verða til afnota fyrir krabba-
meinssjúklinga og aðstandendur af
landsbyggðinni meðan á sjúk-
dómsmeðferð stendur. Ríkisspítal-
ar munu sjá um rekstur þessa hús-
næðis. Fyrir fjórum árum var
keypt íbúð við Leifsgötu fyrir for-
eldra barna sem eru í meðferð
vegna krabbameins. Reynslan af
þeirri íbúð hefur verið góð svo að
ástæða þótti til að létta undir með
öðrum krabbameinssjúklingum á
hliðstæðan hátt. -jr.
Tvær íbúðir fyrir krabbameins-
sjúklinga af landsbyggðinni og að-
standendur þeirra eru á Lokastíg 16,
nokkur hundruð metra frá Land-
spítalanum. Þær voru formlega
teknar í notkun á 40 ára afmælis-
degi Krabbameinsfélags íslands.
34 heilbrigðismál 2/1991