Heilbrigðismál - 01.03.1995, Side 17
Christian Neuhaus (Þjóðminjasafnið) - Ámi Thorsteinsson
sensfélagsins var hún fremst meðal
jafningja. Þau hjónin eignuðust
eina dóttur, Soffíu, sem varð fyrri
kona Eggerts Claessen.
Árið 1870 reisti Jónas sér bústað á
norðurhorni Skólabrúar og Lækjar-
götu. Það hús stendur enn á sínum
stað, Lækjargata 8, en breytingar
hafa oft verið gerðar á því að utan
bæði og innan, enda tæpast hægt
að þekkja það fyrir sama hús þegar
gamlar myndir eru skoðaðar. Á
þeim sést m.a. lágreist útbygging
norður úr læknishúsinu. Það er
fjós, því að landlæknir var kúa-
bóndi og í Vatnsmýrinni við suður-
enda Tjarnarinnar átti hann erfða-
festuland. Ur mykjuhaugnum við
fjósið var áburður fluttur þangað í
báti og heyið væntanlega með
sama hætti til baka.
Doktor Jónas Jónassen fékk lausn
frá starfi landlæknis 1906 og stóð á
sjötugu er hann andaðist 22. nóv-
ember 1910 eftir þunga sjúkdóms-
Þegar Jónassen gaf út bókina „Um
eðli og heilbrigði mannlegs lík-
ama" fyrir 116 árum var þess getið
á titilsíðu að bókin væri með 15
myndum. Þá var mjög fátítt að
myndir væru í bókum og voru
sumar þessara mynda notaðar
lengi í kennslubækur. Jónassen
gaf einnig út „Lækningabók
handa alþýðu á Islandi" og var í
ritstjóm tímaritsins „Eir".
legu. Margir urðu til að minnast
hans í lausu máli og bundnu. Séra
Matthías orti eftir vin sinn og
skólabróður og ávarpar hann:
Horfinn, horfinn -
hógværi Jónas,
fár var þér betri
bekkjunautur.
Hnigu hljóðlega
hugir saman,
þurftum ei að þrátta,
þekktum hvor annan.
Og Sigurður Sigurðsson lyfja-
fræðingur og skáld sem kenndi sig
við Arnarholt gefur Jónasi ein-
kunnina: Hinn mildi. Enn í dag
vitna menn stundum í erfiljóð hans
þegar þeir vanda vinum sínum
hinstu kveðjur:
Þungt er tapið, það er vissa -
þó vil ég kjósa vorri móðir:
að ætíð megi hún minning kyssa
manna, er voru svona góðir -
að ætíð eigi hún menn að missa
meiri og betri en aðrar þjóðir.
Þórarinn Guðnason læknir var sér-
fræðingur í skurðlækningum. Fyrri
landlæknaþættir fjölluðu um Jón
Hjaltalín (Heilbrigðismál 1/1993), Jón
Sveinsson (2/1993), Guðmund Björns-
son (3/1993), H. J. G. Schierbeck (4/
1993), Jón Thorstensen (1-2/1994) og
Tómas Klog (3-4/1994).
Jónas Jónassen landlæknir ásamt
Þórunni Jónassen konu sinni og
fleira fólki á bát á Tjörninni í
Reykjavík nokkm fyrir síðustu
aldamót.
Jónas Jónassen var einn af áhrifa-
mönnum þjóðarinnar í lok síðustu
aldar og upphafi þessarar. í Sögu
íslendinga er Jónasi svo lýst að
hann hafi verið hverjum manni
liprari í umgengni. „Hann var sér-
lega ritfær, málið létt og aðgengi-
legt og framsetning ljós og rök-
semdafærsla sannfærandi."
HEILBRIGÐISMÁL 1/1995 17