Samtíðin - 01.12.1934, Síða 17

Samtíðin - 01.12.1934, Síða 17
SAISTÍÐIN var á spítalanum, og heilsan var miklu betri en hún hafði verið um langt skeið. Brátt stóð henni eng- inn á sporði við þvott og hrein- gerningar, og hún gat nú aftur haft nokkurn veginn í sig og á. En nú brá svo við, að sonur hennar hætti að skrifa. Árin liðu og enginn vissi neitt um strákinn frá Sveltu. Að vísu þóttust nokkrir farmenn hafa séð hann á hinum og þessum stöðum úti í heimi, en allir vita, að ekki er takandi mark á sjómönnum. Smátt og smátt tók að fyrnast yfir hann, og nýir syndaselir drógu að sér athygli þorpsbúa. Heimsstyrjöldin skall á, og hafði í för með sér stórfeldar breytingar á högum manna. Sum- ir urðu ríkir, aðrir fóru á hausinn. En í Sveltu gekk lífið sinn vana- gang. Guðríður gamla baslaði ofan af fyrir sér. Hún varð hvorki rík- ari né fátækari. Þó að hún væri komin yfir sextugt, var heilsan í besta lagi, nema hvað gigtin ónáð- aði hana, eins og flesta, sem komn- ir eru á efri ár. Hún kvartaði held- ur ekki, og vann samviskusamlega, það sem henni var trúað fyrir að gera. Af syni sínum frétti hún aldrei neitt. Þá bar það við einn veturinn, skömmu eftir stríðslokin, að höf- uðstaðarblöðin birtu samtal við mann, sem nýkominn var heim eft- ir tíu ára útivist. Hann hafði ver- iS strákpatti, þegar hann yfirgaf ættjörðina, og nú var hann orðinn vellauðugur inaður. Blöðin lofuðu hann hástöfum. Hann hafði gert föðurlandinu sóma og vakið á því athygli úti um heiminn. Heldra fólkið sóttist eftir samvistum við hann, og honum voru sýnd öll hugs- anleg virðingamerki. Einn af göf- ugustu sonum þjóðarinnar var kominn í heimsókn til ættjarðar- innar. Hann skyldi finna, að menn kunnu að meta verk hans. Þetta var skömmu fyrir jól. Fá- tækt og erfiðleikar höfðu siglt í kjölfar stríðsins, og litla þorpið við fjörðinn fór ekki varhluta af því. Hjá Guðríði gömlu í Sveltu þrengd- ist nú meira í búi en nokkru sinni áður. Fólk reyndi að spara á all- an hátt, og keypti eins litla vinnu og framast var unt. Guðríður gamla leit kvíðandi til framtíðar- innar. Það voru ekki nema nokkr- ir dagar til jóla, og alt benti á, að kofinn hennar ætlaði að bera nafn sitt með rentu um hátíðina. Hún var alveg að verða matarlaus, að maður minnist nú ekki á kaffi og sykur, sem hún hafði ekki séð í marga mánuði. Og það var sann- arlega nógu slæmt að þurfa að neita sér um kaffi hversdagslega, en hvaða jól voru það, ef ekki var hægt að fá sér kaffisopa? Nei, það var ekki laust við, að henni fynd- ist lífið ætla að fara að verða full- harðleikið við sig. Hún gat engin úrræði fundið. Þá bar það við daginn fyrir Þor- láksmessu, að æfintýrið, krafta- verkið, alt sem stórt er og mikil- fenglegt í veröldinni, kom til þorps- 15

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.