Samtíðin - 01.12.1934, Blaðsíða 33
SAKTfÐIN
K R I STI N N
Alfadans.
Myndir þær sem hér birtast
eru eftir Kristinn Pétursson
myndhögg-vara. Kristinn stund-
aði fyrst nám í fjögur ár við
Hstaháskólann í Osló. Lagði hann
PETURSSON
þá eingöngu stund á myndhöggv-
aralist. Gerði hann þar höggmynd
af ólafíu Jóhannsdóttur, sem kunn
var mjög fyrir líknarstörf sín
um mörg ár í Osló. Stendur mynd
Kristinns af Ólafíu á torgi í Osló
í hverfi því, sem hún starfaði
mest.
Eftir að Kristinn lauk námi f
Osló ferðaðist hann töluvert um.
Fór til Kaupmannahafnar og hef-
ir dvalið þar alllengi, ferðaðist til
París, Vín og fleiri staða.
Nokkrum sinnum hefir hann
sýnt verk sín á sýningum á Norð-
urlöndum, meðal annars á Statens
haustsýningu 1 Osló og vorsýningu
í Charlottenborg í Kaupmanna-
höfn. Nú er Kristinn í Reykjavík
og málar af mesta dugnaði.
hefir hann fengið góða vinnustofu
á Vatnsstíg 3 og hyggst nú til
framtíðardvalar hér í Reykjavík.
falla svo létt, að manni finst þetta
alt vera mælt eins og af munni
fram, en þau eru hvert um sig
eins og fagurt málverk, eitt heil-
steypt listaverk.
Gl. R.
Úrvalsljóð
eftir Bjarna Thorarensen
I fyrra gaf E. P. Briem út úr-
•VAlsljóð..,eftir Jónas Hallgrímsson
og eru þessi úrvalsljóð eftir Bjarna
Thorarensen áframhald á þessari
úrvalsljóðaútgáfu. Ekki þarf að
fjölyrða um kvæði Bjarna Thor-
arensens svo kunn sem þau eru
þjóðinni. Útgáfa þessara úrvals-
ljóða er hin prýðilegasta. Bókin
er bundin í mjúkt alskinn og gylt
í sniðum, sem sagt verulega eigu-
leg bók.
31