Samtíðin - 01.07.1937, Blaðsíða 11
SAMTÍÐIN
7
KYNSJÚKDÓMABÖLIÐ
Á ÍSLANDI
Frh. af bls. 5.
lingsins, enda þótt hann sigli land
úr landi og geti ekki sjálfur gerl
sig skiljanlegan þar, sem hann kem-
ur. Einnig er þegnum allra ríkjanna
trygð ókeypis sjúkrahúsvist, ef þörf
krefur. í þessi samtök gátum vér
ekki gengið, fyr en sjúkrahús hafði
verið reist liér í Reykjavík.
-— Eru notuð lyf til þess að koma
í veg fyrir, að menn veikist af þess-
nm sjúkdómum?
— Varnarlyf eru mikið notuð
gegn kynsjúkdómum, og koma þar
oft að góðu gagni.
Slík lyf hafa verið seld hér í
Revkjavík, lir sjálfsala í náðhúsinu
við Bankastræti, og verið allmikið
notuð. Lyfjunum fylgir nákvæmur
leiðarvísir á íslensku og leiðbein-
ingar um sjúkdómana. Er það Ing-
ólfs Apótek, sem hefir séð um sölu
þessara lyfja, að tilhlutun land-
læknis, og hefir það selt þau við
mjög vægu verði.
— Stuðlar áfengisnautn ekki all-
mikið að útbreiðslu kvnsjúdóma?
— Það verður aldrei um of brýnt
fvrir ungu fólki, að áfengisnautn
á mjög mikinn þátt i útbreiðslu
þessara sjúkdóma. Undir áhrifum
áfengis sljóvgast öll velsæmistil-
finning og' varkárni í þessum efn-
um, enda er óhætt að fullyrða, að
langflestar sýkingar eiga sér stað,
þegar menn eru undir áhrifum víns.
Langflestar sýkingar eiga sér
stað á aldrinum 20—30 ára, en
margir sýkjast einnig vngri og
eldri.
Sjúkdómarnir koma fyrir í öll-
um stéttum. Af stúlkum, sem eru i
vinnu hjá öðrum, er þeim hættast,
sem hafa minst aðhald á lieimili
sínu, sérstaklega þeim, sem hafa
vinnu fyrri part dags og leigja sér
svo herbergi, annað hvort einar eða
í félagi við aðra, lijá vandalausu
fólki. Slæmar vinstúlkur eiga oft
ekki minni þátt í að leiða óreynd-
ar stúlkur á glapstigu heldur en
karlmennirnir sjálfir. óhollur fé-
lagsskapur og iðjuleysi eykur mik-
ið sýkingarhættuna.
— Hafa orðið miklar framfarir
á lækningaaðferðum við þessum
sjúkdómum á siðari árum?
— Sjúkdómsgreining og lækning
við svphilis hefir tekið stórkostleg-
um framförum á síðari árum, og
það svo, að komi sjúklingurinn i
tæka tíð til læknis, tekst nálega
undantekingarlaust að lækna hann
til fulls.
Lækningaaðferðir við lekanda
hafa tekið töluverðum framförum.
en hafa þó ekki enn náð sömn full-
komnun og við hinum sjúkdómn-
um. En miklar rannsóknir eru stöð-
ugt gerðar, og má því vænta fram-
fara eða jafnvel alveg breyttra
lækningaaðferða við þeim sjúk-
dómi i framtíðinni.
— Stafar þjóð vorri mikil hætta
af þessum sjúkdómum, að þinum
dómi ?
— Yér íslendingar stóðum í fvrstu
mjög varnarlitlir gegn kynsjúkdóm-
um. Þekking á þeim meðal almenn-
ings var af skornum skamti og öllu
hreinlæti mjög ábótavant, en hins
Frh. á bls. 9.