Samtíðin - 01.12.1947, Blaðsíða 6
4
J.
SAMTÍÐIN
— Dýrtíðin mun þó yfirleitt ekki vera
þar meiri en svo, að mjög ósmekklegt
væri, e£ vér færum að fjölyrða um hana
við þá Frakka, sem þefekja til núverandi
verðlags á íslandi. Einna bagalegastur
mundi Norðurlandabúum þykja mjólkur-
skorturinn í París. Hann er svo mikill,
áð óheimilt er að selja þar mjólk öðrum
en sjúklingum, börnum og gamalmennum.
Gistihúsin eru yfirleitt mjög þokkaleg og
matur góður, en að vísu dýr, ef alltaf
er étið kjöt eða fiskur, eins og furðu
margir Norðurlandabúar virðast telja sér
algera lífsnauðsyn. íslenzka konu heyrði
ég hafa orð á því, að ekki hefði hún í
annan tíma fengið betra kaffi en í París
s.l. sumar. Nær hefði verið að segja, að
rúmin í þeim gistihúsum, sem ég kom í,
hefðu staðið á 8 stuðlum en 3. í þokka-
legum gistihúsum fylgdi víða baðherbergi
hverju svefnherbergi, og skorti þar hvorki
heitt né kalt vatn. í því sambandi má
geta þess, að samtímis var heitt vatn í
velflestum Kaupmannahafnar-gistihúsum
munaður, sem tilheyrði eingöngu fortíð-
inni, samkvæmt boði frá æðri stöðum.
Hæverskara, góðlátlegra og greiðvikn-
ara fólk en Parísarbúa á ég örðugt með
að hugsa mér í stórborg. Margnefndir
bófar og misendismenn duldust mér svo
vendilega, að mér varð aldrei hugsað til
þeirra hvað þá meira, meðan ég dvaldist
í borginni. í grennd við sum af gistihús-
um Parísar sjást að vísu öðru hverju
menn, sem eiga það til að spyrja útlend-
inga, hvort þeir vilji selja dollara eða
sterlingspund. En ekki komst áreitni þess-
ara manna í hálfkvisti við áleitni Dana
gagnvart ýmsum Svíum, sem komu til
Khafnar í maí og júní s.l. Sjálfsagt hafa
þó Svíar átt nokkra sök á henni.
Það er mjög óviðfeldið, þegár ótíndir
ferðalangar leyfa sér þá ósvinnu að ljúga
hvers kyns fjarstæðu á þær þjóðir, sem
þeir sækja heim. Vér íslendingar höfum
býsna oft orðið fyrir slíku og það af
gestum, sem íslenzk gestrisni hefur hoss-
að óþarflega háti. Aldrei skyldi það henda
oss að gera oss að því viðundri að þyrla
upp staðleysum um jafnmikla menning-
arþjóð og Frakka, sem við, ekki síður en
aðrir Norðurlandabúar, mættum fjölmargt
gott og gagnlegt af læra.
Vitið þér þetta ?
Svörin finnið þér á bls. 29.
1. Hvað heitir nyrzta útsker ls-
lands ?
2. Hve lengi var Leonardo da Vinci
að mála hina heimsfrægu mynd
sína af hinni heilögu kvöldmál-
tíð?
3. Hvaða stjarna er kölluð morgun-
stjarna?
4. Hverrar þjóðar er skáldið Rafael
Sabatini?
5. Hver bjó fyrstur til drykkinn
Coca-Cola og hver skírði hann ?
Hann: „Eftir næstu afborgun höf-
um við eignazt húsgögnin að fullu
og öllu.“
Iiún: „Allt í lagi, þá hendum við
þeim böra og kaupum önnur ný.“
Til áskrifendanna
ÉR MEÐ lýkur 14. árg. Samtíð-
arir.nar. Næsta hefti kemur 1.
febrúar 1948. Útvegið ritinu fjölda
nýrra kaupanda þangað til. Fjöldi
snjallra sagna og ágætra greina bíð-
ur næstu hefta.
Sigurgeir
Sigurjónsson
hæstaréttarmálaflutningsmaður.
Aðalstræti 8 — Sími 1043
Skrifstofutími 10—12 og 1—6