Samtíðin - 01.12.1947, Blaðsíða 23
SAMTÍÐIN ‘
21
og í fangelsum og árekstrum við
föður sinn, bezta vin sinn og auk
þess ýmsa atkvæðamenn í París. Er
þess enginn kostur að rekja efni bók-
arinnar í einstökum atriðum í þess-
um línum.
Séra Prévost samdi alls um 50
skáldsögur, en samtals lét hann eftir
sig rösklega 100 bindi rita, er liann
hafði samið. Af þessum geysimikla
verka hefur Sagan af Manon Lescaut
orðið langsamlega frægust, enda er
hún sakir ástríðuþunga síns og
fölskvalausrar hersögli talin til sí-
gildra frakkneskra hókmennta. Hefur
hún orkað á skáldsagnahöfunda,
leikritaskáld og tónskáld síðari tíma,
og kennir þeirra áhrifa m. a. í Kam-
elíufrúnni eftir Dumas og söngleikn-
um Manon Lescaut eftir Massenet,
sem er beinlínis heitinn eftir sögu
séra Prévosts og byggður á henni,
hvað efnisuppistöðuna snertir. Má
því segja, að sagan liafi heldúr en
ekki lilotið viðurkenningu bók-
mennta- og tónsnillinga.
Islendingar munu lesa þessa
l'rakknesku skáldsögu með athygli
ekki síður en aðrar bækur „Lista-
mannaþingsins“, og gjalda j)eim, er
að útgáfu hennar standa, þakkir
fyrir, að þeir skuli Iiafa grcitt skáld-
sagnaunnendum vorum aðgang að
fornfrægu riti mikillar hókmennta-
j)jóðar. S. Sk.
Þeir, sem nota
„MILOss sápnna
einu sinni —
nota hana áftur.
Við höfum
tækifærisgjafir, sem yður vantar.
Glæsilegt úrval af gull-, silfur-,
plett- og kristallsvörum.
Munið, að kaupa
úrin og klukkurnar
hjá Franch.
Að ógleymdum trúlofunarhringj-
unum af mörgum gerðum.
Sent gegn póstkröfu.
^JrancL Lfjicheiien
úrsmíðameistari
Laugaveg 39. Reykjavík.
Pósthólf 812. Sími 7264.
IIAFIÐ
HK.IAVF
að láta ljósa- og
hitatæki frá
Raftækjaverzlun
Lúðvíks Guðmundssonar
prýða heimili yðar.
UllÍAVIO «•
Laugavegi 46. — Sími 7777.