Samtíðin - 01.12.1947, Qupperneq 8
6
SAMTÍÐIN
EIRIKUR SIGURBERGSSDN :
Verzlunarviðskipti
Islendinga og Frakka
[Ýmsar greinar í þessu liefti eru lielg-
aðar Frakklandi, seni vér góðu heilli
höfum talsvert menningarsamband við.
Oss hefur lengi leikið grunur á, að nokk-
urt sleifarlag væri rikjandi i samhandi
við verzlunarviðskipti vor við Frakka.
Höfum vér því beðið lir. Eirik Sigurbergs-
son viðskiptafræðing, sem ekki hefur ein-
ungis stundað háskólanám í París í fræði-
grein sinni, heldur veitir og forstöðu
Fransk-islenzka verzlunarfélaginu i
Reykjavik, að skýra lesendum vorum frá,
hvernig ástatt sé um verzlunarviðskipti
íslendinga og Frakka. f eftirfarandi grein
hefur honum tekizt ágætlega að varpa Ijósi
á þau atriði, sem vér spurðum hann um
og mestu máli skipta i þessu sambandi.
Væri vel, að forráðamenn íslenzku þjóð-
arinnar gæfu gaum að eftirfarandi frá-
sögn og tillögum Eiriks. — Ritstj.].
C*KILYRÐIN fyrir góðri afkomu vor
** Islendintía eru þau, að vér getum
aukið framleiðsluna og selt hana
greiðlega á erlendum markaði. Til
þcss að tryggja, að sala geti jafnan
verið greið, þarf að dreifa henni á
sem flesta staði. Ef einn staðurinn
bregzt, verður þá minna í húfi. Það
er hættulegt að treysta um of á einn
—tvo sölustaði, en vanrækja aðra,
því þá getur svo farið, að vér verð-
um einn góðan veðurdag — allt i
einu — að draga verulega úr fram;
leiðslunni, en það getur þýtt sama
og hungur og neyð,
Verzlunarviðskipti vor Islendinga
við aðrar þióðir eru að vonum á
bernskuskeiði, ekki nema nokkrir
tugir ára síðan vér fórum að sjá oss
sjálfir farborða. Ef vér lítum til ná-
granna vorra, Skandínava, sjáum
vér, að þeir verzla við ýmsar þjóðir,
er vér fram að þessu höfum lítt skipt
við, selja þeim sams konar vörur,
sem vér höfum á boðstólum, og
kaupa af þeim ýmsa vöru, er vér
þurfum á að halda.
Viðskipti vor við Frakka byggjast
á jafnvirðiskaupum. Vér verðum að
kaupa af þeim vörur fyrir andvirði
framleiðslu vorrar, er vér seljum
þeim. Mörgum leiðandi mönnum hér
á landi þykir þessi verzlunannáti
ekki hagkvæmur, vegna þess að vér
þurfum mjög á svo kölluðum frjáls-
um gjaldevri að halda, þ. e. sterlings-
pundum og þó einkum dollurum.
Þessu er því að svara, að ef vér get-
um keypt í Frakklandi vörur, sem
vér þui-fum að kaupa lil landsins fyr-
ir frjálsan gjaldeyri, geta þessi við-
skipti verið mjög hagkvæm- ef var-
an fæst við sæmilegu verði — því
að með því getum vér aukið fram-
leiðslu vora sem því svarar og hætt
þannig heildarafkomu vora. Það er
því í raun og veru jafn þýðingar-
mikið alriði, þegar um jafnvirðis-
kaup er að ræða, að afla nýtilegra
vara með sæmilegu verði og að selja
framleiðsluna.
Frakkar framleiða fjölda vöruteg-
unda, sem vér þurfum að flytja til
landsins. Margir hafa haft þá trú hér
á landi, að Frakkar framleiddu ekki
annað en vín og snyrtivörur til út-