Samtíðin - 01.12.1947, Page 16
14
SAMTÍÐIN
Það, sem nú er sýnt, gerist í Rúss-
landi, og drengurinn er Arensky.
Svangur og kaldur berst hann fyr-
ir tilveru sinni; hann er líka met-
orðagjarn.
Arensky strýkur að heiman og fær
illa launaða vinnu hér og þar.
Hann fær vinnu í gistihúsi. Þar
finnur hann í herbergi hljóðfæri, sem
ekki er notað. Hann svíkst um J)að,
sem hann á að gera, og situr við
hljóðfæríð öllum stundum. Það end-
ar með því, að hann er rekinn. Hann
fær vinnu við kvikmyndahús. Þar er
gamalt og hálffalskt hljóðfæri. Hann
æfir sig, þegar hann getur.
Næst sést hann vera að hjálpa
gamalli og veikri konu. Hann gefur
henni meðul og hagræðir koddanum
fyrir hana. Loks þarf að kaupa meiri
meðul. 1 tösku gömlu konunnar er
stór bunki af peningaseðlum. Hann
hættir nú nema stöku sinnum að
gefa henni meðulin, sem eru henni
lífsnauðsynleg. Hún fær slag og deyr.
Hann stingur á sig peningunum og
strýkur til Parisar. Nú er vegurinn
opinn til náms og cf til vill frama.
Nú koma aftur atriði frá Rúss-
landi. Faðirinn er deyjandi í ömur-
legri fátækt. Vonin um hjálp frá
syninum heldur honum J)ó uppi um
stund, en engin hjálp kemur. Hann
deyr. En á meðan faðirinn heyir
dauðastríðið í fátæklega herherginu,
situr Arensky, sem nú er tvítugur,
dýrlega veizlu i stóru og fínu gisti-
húsi í París.
Maxine lokaði augunum. Hún gat
ekki horft á meira.
„Hamingjan Jhjálpi mér“, stundi
hún upp, J)egar hún og Billie voru
komnar upp i herbergi hennar.
„Hvað við erum fyrirlitleg dýr öll
saman, og fyrirlitlegust af öllu er
sjálfselska mannanna. — En hver er
ég, að ég skuli dirfast að dæma aðra
J)ar?“ bætti hún við.
Billie kinkaði kolli og stóð upp.
„Ég býst við, að við eigum þar öll
hlut að máli“, sagði hún og fór inn
tif sín.
Arensky kom ekki til morgun-
verðar daginn eftir og heldur ekki
inn í dagstofuna að lokinni máltíð.
Maxine gekk að hljóðfærinu og æfði
sig í klukkutíma. Carrillo kom og
lagði sig á lcguhekkinn. Mcðan Max-
ine var að spila, sá hún, að hörnin
stóðu fyrir utan og gægðust inn um
glúggann. Þau liorfðu í hrifningu á
Carrillo.
Maxine stóð upp og sótti þau. Þau
voru fús að koma inn, en vildu ekk-
ert þiggja, sögðust vera búin að
borða morgunverð. Þau voru ákaf-
lega hæversk og horfðu án afláts á
Carrillo, meðan þau töluðu við Max-
ine. Þeim leið augsýnilega ekki vel í
nærveru dansmeyjarinnar. Carrillo
hafði heilsað þeim vingjarnlega, cn
lá nú með lokuð augu og veitti þeim
ekki frekari eftirtekt.
Börnin horðuðu hádegisverð með
fólkinu. Við J)að beindist athyglin
frá Arensky, þegar hann settist að
horðinu. Þegar Carrillo stóð upp,
lagði hún höndina andartak á koll-
inn á Juan. Drengurinn hrökk við,
eins og hann hefði verið sleginn ut-
anundir og náfölnaði. Þegar Carrillo
\-ar farin út úr herbergi-nu, urðu
Dolly og Bassie strax frjálslegri í
framkomu, og Juan náði sér brátt