Fréttablaðið - 14.01.2010, Page 22
14. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
UMRÆÐAN
Haukur Arnórsson og Sigur-
björg Sigurgeirsdóttir skrifa
um beint lýðræði
Sú ákvörðun forseta Íslands að skjóta lögum um ríkisábyrgð
á Icesave til þjóðarinnar hefur
vakið að nýju ákafar umræður um
íslenska stjórnskipan og lýðræði.
Því hefur verið haldið fram að aukin
áhersla á þjóðaratkvæðagreiðslu
efli lýðræðið. Það er umdeilt. Eink-
um það hvort beint lýðræði, eins og
þjóðaratkvæðisgreiðsla, sem inn-
leidd er á kostnað fulltrúalýðræð-
is, leiði til betra lýðræðis. Rétt er
að þjóðaratkvæðagreiðsla hentar
vel við ákveðnar aðstæður, ef unnt
er að tryggja vandaða og upplýsta
umræðu. Þegar forseti Íslands vís-
aði fjölmiðlalögunum til afgreiðslu
þjóðarinnar árið 2004 vísaði hann
til þess að gjá hafi myndast milli
þings og þjóðar, þ.e. gjá milli vilja
þjóðarinnar og vilja fulltrúa henn-
ar á þingi. Ef auka á áherslu á þjóð-
aratkvæðagreiðslur sem leið til að
taka ákvarðanir í sameiginlegum
málum þá er ástæða til að hafa í
huga að það eru fleiri gjár í götu
lýðræðisins, en sú gjá sem stundum
má finna milli þings og þjóðar.
Gjár í götu lýðræðis
Í fyrsta lagi þá hefur myndast gjá
milli eftirspurnar almennings eftir
netþjónustu og framboðs ríkisins á
rafrænni þjónustu. Þessi gjá hefur
myndast þrátt fyrir að almenning-
ur á Íslandi hafi um langt árabil
verið betur nettengdur en almenn-
ingur í öðrum ríkjum hins vest-
ræna heims. Þessi gjá hefur dregið
úr vægi skoðana stjórnmálamanna
og hlutlausra upplýsinga stjórn-
valda í opinberri umræðu, en hefur
aftur auðveldað einstaklingum úti
í bæ og góðum bloggurum að hafa
mikil skoðanamótandi áhrif. Vegna
þessarar gjár er upplýsingagjöf
og umræða um opinber mál ófull-
komnari en ella væri. Gjá milli
eftirspurnar og framboðs á netþjón-
ustu er minni í nágrannaríkjunum
þar sem færri meðal almennings
eru nettengdir og framboð opin-
berra vefja er mikið betra en hér á
landi (íslenska ríkið er lakast Vest-
ur-Evrópuríkja samkvæmt nýjum
upplýsingum frá EU).
Í öðru lagi er að finna gjá milli
netheima og gömlu fjölmiðlanna.
Netheimar og gömlu fjölmiðlarnir
eru verulega aðskildir heimar. Það
er ekki bara ríkið sem hefur látið
undir höfuð leggjast að byggja upp
netþjónustu. Hefðbundnir fjölmiðl-
ar á Íslandi hafa verið lengi að taka
nýjungar netsins í notkun. Þá hafa
starfandi netmiðlar litla ritstýr-
ingu. Það veldur því að óhróður og
árásir eru daglegt brauð á netinu.
Þessu er hins vegar töluvert öðru-
vísi farið erlendis þar sem er að
finna mörg dæmi þess, að vandað-
ir fjölmiðlar starfa á netinu, eins og
við Íslendingar höfum séð á síðustu
dögum. Þá er ljóst að í opinberri
umræðu hafa þær hefðir myndast
að hátt hlutfall lesendabréfa (oft
um 20% í Bandaríkjunum) er hent
vegna ónógra gæða. Góð ritstýr-
ing þýðir að þeir sem skrifa fyrir
netmiðla erlendis eru væntanlega
betur varðir en hér á landi.
Netið og hin upplýsta umræða
Múgæsing getur átt frítt spil á
netinu. Upplýsingar og sjónarmið
stjórnvalda, stjórnmálamanna,
fræðimanna, háskólaumhverfisins
og vandaðra fréttamanna ná síður
til almennings, þar sem opinberir
vefir og vefir fjölmiðla hafa ekki
þróast með eðlilegum hraða í staf-
ræna átt.
Samræðan á netinu er einnig of
frumstæð og stenst engar gæða-
kröfur. Það gerir það meðal ann-
ars að verkum að einstaklingar og
kannski einkum fræðimenn, sem
eru vandir að virðingu sinni og vilja
ekki fá yfir sig persónulegar sví-
virðingar, taka ekki þátt í umræð-
unni á netinu. Þess í stað birta þeir
efni sitt í ritstýrðum miðlum, svo
sem í tímaritum, í blaðagreinum
eða koma fram hjá góðum ljósvaka-
miðlum. Þessir ólíku heimar gera
það að verkum að þeir sem nota
gömlu miðlana, gætu haft lítil skoð-
anamyndandi áhrif á netinu. Ef það
er tilfellið dregur sú staða verulega
úr lýðræðislegu gildi umræðunnar
á netinu.
Þannig er ekki tryggt að sú
umræða sem fram fer á netinu
styðjist við vandaðar upplýsing-
ar og sannindi eins og þau gerast
best hverju sinni. Því er eðlilegt
og réttmætt að spyrja um upplýsta
skoðanamyndun á netinu.
Rafrænt lýðræði
Framtíðarsýn hinna alþjóðlegu
hugmynda um rafrænt lýðræði
stefnir ekki út fyrir kerfi fulltrúa-
lýðræðisins. Rafrænt lýðræði hefur
víðast erlendis einkum snúið að því
að miðla upplýsingum til almenn-
ings og auka þátttöku hans og áhrif
á ýmsum stigum fulltrúalýðræðis-
ins. Aukin þátttaka almennings
hefur vissulega áhrif á ákvarðana-
töku, en rafræna lýðræðið bein-
ist þó ekki að því að breyta formi
ákvarðanatökunnar. Rafrænt lýð-
ræði er þannig hugsað sem viðbót
og stuðningur við fulltrúalýðræðið.
Slíkur stuðningur er lítill á Íslandi
þar sem stjórnvöld hafa ekki byggt
upp öflugar upplýsingaveitur og
verkfæri fyrir stjórnmálaþátttöku
almennings á netinu, og því ekki
lagt sitt af mörkum til að mæta
stjórnmálaáhuga almennings á net-
inu. Það kemur sér sérstaklega illa
núna þegar byggja þarf upp traust
á stjórnvöldum að nýju.
Beint lýðræði
Hugmyndir íslenskra netverja og
jafnvel forseta Íslands um beina
lýðræðið boða lýðræðisbreyting-
ar, sem ganga í aðra átt en rafræna
lýðræðið í okkar heimshluta. Svo
virðist sem hugmyndir netverja
hér á landi beinist oft að ákvarð-
anatökunni sjálfri (takkalýðræði).
Aftur á móti eru flestir fræðimenn
sammála um að beint lýðræði sé of
frumstætt stjórnarform fyrir heil-
ar þjóðir og að hættan á harðræði
meirihlutans sé of nálæg. Einfalt
meirihlutalýðræði gefur ekki endi-
lega besta svarið við ýmsum flókn-
um samfélagslegum spurningum.
Bein ákvarðanataka almennings er
því alltaf háð sérstökum aðstæðum
og spyrja má hvort þær aðstæður
séu til staðar.
Hið norræna lýðræði
Stjórnmál á hinum Norðurlöndun-
um hafa einkennst af samræðu-
eða samráðsstjórnmálum, meðan
stjórnmál á Íslandi einkennast
af átakahefð. Fulltrúalýðræðið á
Norðurlöndum er álitið eitt þró-
aðasta lýðræði í heimi. Ákvarð-
anataka fulltrúalýðræðisins gerir
ráð fyrir upplýstum umræðum og
víðtæku samráði. Ekki er tryggt í
þjóðaratkvæðagreiðslu að ákvarð-
anir einstaklinga byggi á slíku.
Við hrun íslenska fjármála-
kerfisins hefur komið á daginn
að þróun íslenska lýðræðisins er
skemmra á veg komin en ætla
mátti. Ef vilji stendur til þess
að þróa og styrkja framkvæmd
íslenska fulltrúalýðræðisins í átt
til hins norræna og þar með leitast
við að draga úr þeirri átakahefð
sem hér hefur ríkt, er nauðsyn-
legt að styrkja rafrænt lýðræði.
Þá þurfa ákvarðanir um þjóðarat-
kvæðagreiðslur að taka mið af því
markmiði og það tryggt að vandað-
ar upplýsingar berist almenningi
og að skoðanaskipti séu málefnaleg
og boðleg að öðru leyti. Beint lýð-
ræði þarf að styðja við þróun full-
trúalýðræðisins. Að öðrum kosti er
hæpið að þjóðaratkvæðagreiðslur
efli íslenska lýðræðið.
Höfundar eru
stjórnsýslufræðingar.
Er beint lýðræði betra lýðræði?
HAUKUR
ARNÓRSSON
SIGURBJÖRG
SIGURGEIRSDÓTTIR
Ef markmiðið er að þróa og
styrkja íslenska fulltrúalýð-
ræðið í átt til hins norræna
og þar með að draga úr þeirri
átakahefð sem hér hefur ríkt,
er nauðsynlegt að styrkja
rafræna stjórnsýslu, þróa
netmiðla betur og auka þátt-
töku almennings í opinberum
málum.
UMRÆÐAN
Reynir Sigurbjörnsson skrifar
um borgarmál
Hvað á að gera við nýja sam-göngumiðstöð ef hún á aðeins
að skapa vinnu fyrir verkfræð-
inga og iðnaðarmenn í tímabundin
störf og vera endastöð fyrir lands-
byggðina?
Ef þetta verður raunin er betra
að verja fjármunum lífeyrissjóð-
anna í önnur verkefni, nema að
farið verði í heildarskipulag á
höfuðborgarsvæðinu þar sem allt
er undir.
Reykjavík á að vera félagslega
örugg, með góðri nærþjónustu og
vistvænum samgöngum. Byrja
mætti á því sem hægt er að kalla
miðju borgarinnar, út frá nýrri
samgöngumiðstöð og spítala, en
þarna eru einnig tveir háskólar
og gamli miðbærinn. Þarna verð-
ur til sá möguleiki að byrja að
skipuleggja nýja vistvæna borg.
Með nýrri sam-
göngumiðstöð
er hægt að
leggja teina til
Keflavíkur og
taka upp lest-
arsamgöng-
ur frá miðborg
Reykjavíkur
með tengingu
við nágranna-
sveitarfélögin
til Keflavíkurflugvallar sem yrði
drifin á innlendum orkugjafa.
Þegar hægt er að komast á milli
miðborgar og flugvallar á skömm-
um tíma verður fyrst grundvöll-
ur til að leggja niður flugvöllinn í
Vatnsmýrinni.
Með grænni samgöngustefnu og
innlendum orkugjöfum á almenn-
ingsfarartæki verður Reykjavík
leiðandi í vistvænum samgöngum
og sýnir þar með hvernig hægt
er að leggja sitt af mörkum til að
draga úr kolefnislosun. Jafnframt
styrkjast efnislegir og félagslegir
innviðir höfuðborgarsvæðisins,
með uppbyggingu og atvinnusköp-
un vegna samgöngumannvirkja,
uppsetningar á kerfum fyrir inn-
lenda og vistvæna orku sem er þar
að auki gjaldeyrissparandi.
Ný borgarstjórn á að láta
Orkuveituna beina kröftum
og fjármagni í samvinnu við
ríkið til uppbyggingar fyrir
vistvænar samgöngur á höfuð-
borgarsvæðinu.
Með flutningi verkefna frá
ríki til borgar, sem Samfylking-
in ætti að beita sér fyrir í nýrri
borgarstjórn, getur borgin tekið
yfir alla nærþjónustu sem hefur
verið á forræði ríkis, eins og t.d.
löggæslu, umferðarmál, öldrun-
armál, málefni fatlaðra og fleira.
Þar er Reykjavík mun betur
í stakk búin að greina þarfir
íbúanna en ríkisvaldið.
Höfundur er rafvirki og býður sig
fram í prófkjöri Samfylkingar-
innar í Reykjavík.
Vilja borgarbúar samgöngumiðstöð?
REYNIR
SIGURBJÖRNSSON
*Aðalvinningar dregnir úr öllum
innsendum skeytum 29. janúar.
Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum,
Kópavogi. Með því að taka þátt ertu
kominn í SMS klúbb. 149 kr./SMS-ið.
Þú færð 5 mínútur til að svara spurningu.
Leik lýkur 29. janúar 2010
Viltu vinna sjónvarp?
Geggjaðir aukavinningar!
...og margt fleira!
DVD myndir GSM símar
T.
d.
þ
es
sa
r
boðsmiðar
frumsýnd 8. janúar
tölvuleikir
T.d. þessir
Sendu SMS skeytið
ESL EUT
á númerið 1900.
Þú færð spurningu og
svarar með Því að
senda SMS skeytið ELKO
A, B eða C
á númerið 1900.
Þú gætir unnið!
palla
dine 3
2”
LCD s
jónva
rp
Full H
D
10. HVER
VINNUR
!