Fréttablaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
IdeaPad U350
Skjár: 13,3” HD LED glossy (1366x768) 16:9 200 nits
Örgjörvi: Intel Core 2 Solo SU2700 1,3GHz
Rafhlaða: LiIon 4 sellu, allt að 5:00 klst.
Flýtiminni: 2MB
Stýring: Mobile Intel GS40
Minni: 3GB (4GB mest, 2 raufar)
Diskur: 250GB 5400sn. 2,5”
Myndavél: Já, 1,3Mp
Þyngd: 1,6 kg
Lenovo ThinkPad X100e
Ætluð fyrirtækjum og einstaklingum.
Skjár: 11,6”
Örgjörvi: AMD
Þyngd: 1,47 kg
Rafhlöðuending: Að lágmarki 5 klst
Væntanleg í sölu hér á landi í febrúar 2010.
Umslög fyrir smærri fartölvur.
Mikið litaúrval.
ThinkPad
Fartölvutöskur.
Borgartúni 37 • www.nyherji.is
Lenovo ThinkPad Edge
Ætluð smærri fyrirtækjum og
einstaklingum.
Skjár: 13,3” HD skjár
Nýtt lyklaborð – sömu gæðin
Örgjörvi: AMD og Core 2 Duo
Pinna- og snertimús
Rafhlöðuending: 7:40 klst
Stærð: 332x228x14-30mm
Þyngd: 1,7kg
Vætanleg í sölu hér á landi
í febrúar 2010.
IdeaPad og ThinkPad hafa
fengið góða dóma fyrir hönn-
un og virkni. Enn fullkomnari
vélar á leiðinni, segir Gísli
Þorsteinsson hjá Nýherja.
„Öll þróun fartölva miðar að því að
gera þær léttari og þynnri án þess að
fórna afköstum og gæðum. Notend-
ur eru alltaf á ferðinni, vilja tengj-
ast umheiminum og nálgast gögn
hvar og hvenær sem er. IdeaPad-
og ThinkPad-vélar frá Lenovo eru
dæmi um slíkt en framleiðandinn
hefur unnið til fjölda verðlauna
fyrir hönnun og virkni,“ segir Gísli
Þorsteinsson hjá Nýherja.
Flestir þekkja ThinkPad-vélarn-
ar en þær hafa áunnið sér traust-
an sess sem eitt helsta og ending-
arbesta atvinnutækið. IdeaPad-
vélarnar eru léttari og ætlaðar
til sérhæfðari verka: léttrar rit-
vinnslu, ráps á netinu eða kvik-
myndaáhorfs. „IdeaPad eru ákaf-
lega nettar fartölvur og henta vel
fyrir heimili og grunn- og fram-
haldsskólanema, þar sem áherslan
er á netið og hvers kyns einfaldar
aðgerðir,“ segir Gísli og bætir við
að IdeaPad hafi fengið góða dóma í
fagtímaritum og vakið athygli fyrir
góða hönnun, eins og framleiðand-
inn Lenovo er þekktur fyrir.
„Þær ThinkPad-vélar sem eru
væntanlegar í sölu taka einnig mið
af því að notendur vilja smærri og
léttari vélar en gera áfram kröfu
um mikil afköst. Svokallaðar Edge-
vélar taka mið af þeirri þróun en
þær eru ætlaðar atvinnulífinu og
þeim sem þurfa á öflugu vinnutæki
að halda. ThinkPad Edge-vélarnar
er með um 13 tommu skjá og fást í
fleiri en einum lit, rauðum og svört-
um, sem er nýlunda hjá ThinkPad-
vélum, en þær eru þekktar fyrir
sinn svarta lit.“
Gísli segir ThinkPad-vélarn-
ar hafa unnið til fjölda verðlauna
frá því að þær komu fyrst á mark-
að. „Helstu ástæður fyrir því eru
hönnun á lyklaborði, gæði og svo hin
margrómaða ThinkVantage-tækni
þar sem áhersla er á notendaum-
hverfið, rekstrarkostnað og öryggi.
Einnig hefur Lenovo verið fyrst á
markað með margar nýjungar, allt
frá DVD-drifi til TPM-öryggis-
lausna, hreyfiskynjara fyrir diska
og fingrafaralesara í fartölvum.“
Þá má nefna að ThinkPad X-
og T Series-tölvurnar eru með
skynjara sem nemur breyting-
ar, til dæmis ef þær falla í gólf-
ið. „Um leið og vélin skynjar það
læsir hún lestrararmi harða disks-
ins og minnkar þar með hættuna
á skemmdum. Með þessum búnaði
er fjórum sinnum ólíklegra að tölv-
an verði fyrir skemmdum við áfall
eins og að detta á gólf.“
Einnig er byggingarefni Think-
Pad T Series títaníum og magnes-
íum sem gerir það að verkum að
þær eru einstaklega léttar. Hægt
er að hafa eitt drif í vélinni sem má
skipta út þótt tölvan sé í gangi. „Þá
er hún sterkari en aðrar sambæri-
legar tölvur.“
Léttari vélar væntanlegar
Gísli Þorsteinsson segir ýmsar spennandi nýjungar á leiðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gunnar Guðjón Ingvarsson á sér
óvenjulegt áhugamál en hann
hefur á síðustu fjórtán árum safn-
að gömlum tölvum af ýmsum toga.
„Þetta byrjaði með því að ég fór að
safna leikjatölvum sem voru fram-
leiddar frá 1974-1980 en ákvað
svo að safna sjaldgæfum tölvum,
svo sem Sinclair og Atari,“ segir
Gunnar .
Elsti gripurinn, Magnavox Od-
yssey, er leikjatölva frá árinu
1974 en yngsti 17 ára leikjavél
frá Commodore. Gunnar státar af
einni fartölvu, Commodore SX-64,
frá 1983/84 sem er með þeim elstu
sem hafa verið framleiddar fyrir
almennan markað. „Hún er ekk-
ert í líkingu við þær nýju enda 15
kíló og því níðþung,“ segir hann og
hlær en til samanburð-
ar má geta
þess að létt-
ustu fartölvur
vega rúmt kíló
í dag.
Í tölvusafni
Gunnars eru nú
200 vélar, allar
heillegar. „Svo á
ég líka um fjörutíu
tölvur sem ekki eru
heilar en sit á þeim
þar til ég eignast
betri eintök,“ upp-
lýsir hann og bætir
við að hann fari eftir
ákveðnu kerfi við
söfnunina. „Ég
sa fna ek k i
yngri tölvum
en frá 1994
þar sem flest-
ir samkeppnisaðilar
PC hurfu þá af sjónarsviðinu
og framboðið varð á vissan hátt
einsleitara.“
Stóran hluta tölvanna hefur
Gunnar keypt á uppboðsvefsíð-
um þar sem sjaldgæfir söfnun-
argripir eru sjaldséðir hérlendis.
Hann viðurkennir að áhugamálið
sé dýrt. „Varahlutirnir eru dýrir.
Einn takki á lyklaborð getur kost-
að 3.000 krónur og sú tala er fljót
að hækka ef takkarnir eru marg-
ir.“ En hvar er þetta allt saman
geymt. „Á góðum á stað,“ segir
Gunnar og hlær. - rve
Safnar sjaldgæfum gripum
Gunnar hefur safnað tölvum um árabil og á nú meira en 200 safngripi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Commodore SX-64 fartölva,
sem vegur hvorki meira né
minna en 15 kíló.