Fréttablaðið - 14.01.2010, Síða 38
26 14. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Nýtt íslenskt tímarit, Furðusögur, lítur
dagsins ljós á næstunni. Það verður
helgað skáldskap og myndlist undir
áhrifum frá hryllingi, fantasíum og
vísindaskáldskap. Ritstjórinn, Alex-
ander Dan Vilhjálmsson, bindur vonir
við að þetta framtak hleypi nýju blóði
í þessar listgreinar á Íslandi. „Útgáfa
á íslenskum skáldskap sem fellur bein-
línis í þennan flokk bókmennta hefur
verið strjál og ég vonast til að snúa blað-
inu við með Furðusögum,“ útskýrir
Alexander.
Alexander segist ekki gera sér grein
fyrir af hverju íslenskir listamenn hafi
hingað til ekki látið meira að sér kveða
á þessum vettvangi. „Ég held það sé
engin einhlít skýring á þessu. Mönn-
um hefur kannski fundist þjóðsögurn-
ar fylla þetta skarð. En það er samt
svolítið skrítið þar sem þessar bók-
menntagreinar njóta vaxandi vinsælda
hérlendis.“
Sjálfur er Alexander mikill áhuga-
maður um allt sem fantasíuskáld-
skap viðkemur. „Sérstaklega finnst
mér gaman að lesa skáldskap þar sem
þessum greinum er blandað saman.
China Miéville er einn þeirra höfunda
sem róa á slík mið og nær einstökum
hæðum með sögum í anda hinnar um-
deildu new-weird stefnu, sem gengur út
á uppstokkun á viðteknum hugmyndum
um bókmenntagreinar.“ Þá segir Alex-
ander höfundinn H.P. Lovecraft í sér-
stöku uppáhaldi. „Hann skrifaði mikið
fyrir tímarit sem kallaðist Weird Tales,
en þaðan er einmitt heitið Furðusögur
fengið,“ útskýrir hann og brosir.
Að sögn Alexanders er öllum velkom-
ið að senda inn efni í tímaritið og hvet-
ur hann sérstaklega myndlistarmenn til
að vera með.
„Þótt Furðusögur verði að miklu leyti
helgað ljóðum, smásögum og jafnvel
framhaldssögum er tímaritið ekki síður
hugsað sem vettvangur fyrir myndlist
af svipuðum toga,“ segir hann og von-
ast til að tímaritið verði höfundum og
myndlistarmönnum jafnframt hvatning
til samstarfs.
„Það væri mjög gaman að birta í því
myndskreyttar sögur eða teiknimynda-
sögur.“
En hvernig hafa viðtökurnar verið?
„Mjög góðar. Skilafrestur á efni í fyrsta
tímaritið rann reyndar út 4. janúar síð-
astliðinn en okkur er enn að berast efni
og það er bara um að gera að halda
áfram að senda inn. Því enda þótt inn-
sent efni fái kannski ekki allt pláss í
fyrsta tölublaðinu er vel hugsanlegt að
það birtist í því næsta,“ segir Alexander,
sem telur hugsanlegt að tímaritið komi
út í blaðaformi minnst tvisvar á ári. „Á
tímabili veltum við því fyrir okkur að
birta tímaritið á Netinu og spara okkur
þannig prentkostnað en urðum síðan
sammála um að áhrifameira yrði að
gefa það út í blaðaformi.“
Stefnt er að útgáfu Furðusagna í
mars/apríl og verður tímaritið fáan-
legt í öllum helstu bók- og ritfanga-
verslunum landsins, auk spilabúðar-
innar Nexus. Alexander bendir áhuga-
sömum á að senda fyrirspurnir og efni
á furdusogur@furdusogur.is.
roald@frettabladid.is
ALEXANDER DAN VILHJÁLMSSON: STOFNAR TÍMARITIÐ FURÐUSÖGUR
Nýju blóði hleypt í hrollvekjuna
RITSTJÓRI Alexander Dan Vilhjálmsson hefur stofnað tímaritið Furðusögur sem verður helgað skáldskap og myndlist í anda hryllings, fantasía og
vísindaskáldskapar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sigurður Ingvi Snorrason klarinettuleik-
ari var truflaður á æfingu og spurður
aðeins út í nýárstónleika sem Salonsveit-
in verður með í Salnum á laugardaginn
klukkan 17. Hann segir sveitina skipaða
einvalaliði og að í ár sé óperusöngkonan
Auður Gunnarsdóttir með henni.
„Það er árviss viðburður hjá okkur í
Salonsveitinni að bjóða upp á nýárstón-
leika með svellandi Vínartónlist, völs-
um, polkum og frægum óperettulög-
um. Við förum líka aðeins út fyrir Vín-
arrammann, vildum gægjast inn annars
staðar og leituðum uppi lög sem voru
vinsæl kringum seinna stríð og eru
þekkt enn í dag,“ lýsir Sigurður Ingvi og
bætir við. „Raunverulega eru öll þessi
lög, líka Vínarlögin, samin á 100 ára
tímabili og eru tímalaus. Þetta er ein-
faldlega góð tónlist og slík tónlist á sér
engan sérstakan tíma.
Í dagskrárkynningu Salarins er
minnst á glæsinúmer Sigrúnar Eðvalds-
dóttur fiðluleikara. „Já,“ segir Sigurð-
ur Ingvi. „Sigrún stendur alltaf upp og
gefur okkur eitt glæsinúmer á hverj-
um svona tónleikum og svo fær Bryndís
Halla að blómstra í einu lagi líka.“ - gun
Þetta er einfaldlega góð tónlist
SALONSVEITIN Hún verður með nýárstónleika
á laugardaginn. MYND/SALURINN
Ólafur Jóhann Sigurðsson (1918-1988) var
íslenskur rithöfundur sem skrifaði og gaf út
bækur stöðugt frá árinu 1934.
Á ferli sínum gaf hann út sex skáldsög-
ur, tvær smáskáldsögur (novellur), fimm
smásögur, fjögur ljóðasöfn og jafn margar
barnabækur. Fyrir ljóðabækurnar Að lauf-
ferjum og Að brunnum hlaut Ólafur fyrst-
ur Íslendinga bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs.
Þess má geta að síðan þá hafa fimm ís-
lenskir höfundar hlotið verðlaunin eftir-
sóttu. Snorri Hjartarson fyrir Hauströkkrið
yfir mér árið 1981, Thor Vilhjálmsson fyrir
Grámosinn glóir árið 1988, Fríða Á. Sigurð-
ardóttir fyrir Meðan nóttin líður árið 1992,
Einar Már Guðmundsson fyrir Engla al-
heimsins árið 1995 og Sjón fyrir Skugga-
Baldur árið 2005. Heimild: wikipedia.org
ÞETTA GERÐIST: 14. JANÚAR 1976
Ólafur hlýtur bókmenntaverðlaun
MERKISATBURÐIR
1255 Oddur Þórarinsson drep-
inn í Geldingaholti.
1501 Marteinn Lúter byrjar í Erf-
urt-háskóla sautján ára.
1690 Klarinettið fundið upp í
Nürnberg í Þýskalandi.
1918 Læknafélag Íslands stofn-
að.
1939 Noregur gerir tilkall til
Matthildarlands á Suður-
heimskautinu.
1954 Marilyn Monroe giftist Joe
DiMaggio.
1978 Johnny Rotten hættir í
Sex Pistols.
1984 Þorlákur helgi Þórhalls-
son biskup (1133-1193)
lýstur verndardýrlingur Ís-
lendinga af Jóhannesi Páli
páfa.
1992 Ísland: Hitamet í janúar
sett á Dalatanga: 18,8° C.
50 ára
er í dag 14. janúar
Ásgeir J. Þorvaldsson.
Í tilefni þess býður hann ætting jum
og vinum til léttra veitinga laugar-
daginn 16. janúar að heimili sínu
Hálsaseli 20 milli kl 16-19.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðfinnur Kristinn
Jónsson
Furugerði 1, áður Unufelli 29,
andaðist á Landspítalanum þann 10. janúar.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
19. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á
Krabbameinsfélagið.
Guðrún Magnúsdóttir
Magnús Guðfinnsson Inga Dóra Halldórsdóttir
Sigurður Jón Guðfinnsson Halla Elísabet
Guðmundsdóttir
Guðni Guðfinnsson Sondy Haldursdóttir Johansen
Jens Guðfinnsson Erla Rúna Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
EMILY WATSON FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1967.
„Til allrar hamingju lít ég
þannig út að mér hafa ekki
boðist hlutverk sem ganga
út á innihaldslausa útlits-
dýrkun.“
Emily Watson er bresk leik-
kona, þekktust fyrir túlk-
un sína á hinni ógæfusömu
Bess McNeill í kvikmynd-
inni Breaking the Waves
(1996). Hún hefur einnig leik-
ið í myndum á borð við Gos-
ford Park og Angela´s Ashes
og tvívegis verið tilnefnd til
Óskarsverðlauna.
Snjótittlingur er einkennisspörfugl á auðnum og í fjallendi. Í
vetrarhörkum sækja snjótittlingar í stórum hópum þangað
sem þeim er gefið en þeir eru fræætur og er hveitikorn og
kurlaður maís, það sem selt er í verslunum sem smáfuglafóð-
ur, í uppáhaldi hjá þeim. Á sumrin er karlinn snjóhvítur nema
svartur á baki og vængbroddum og kallast þá sólskríkja. Flug
snjótittlings er hratt og bylgjótt. Hann tyllir sér á steina, þök
og víðar, þó sjaldan í tré. Er afar félagslyndur á veturna en á
sumrin eru pör eða fjölskyldur saman. Söngurinn er hljóm-
þýður og syngur fuglinn bæði sitjandi og á flugi. Á veturna
gefur hann frá sér ómþýtt tíst. Snjótittlingur er algengur varp-
fugl til fjalla og á hálendi en strjáll á láglendi. Finnst þó í grýttu
landi og klettum við ströndina, svo og í eyjum. Hreiðrið er
vandlega ofin karfa í glufu eða sprungu í bergi eða í hlöðnum
vegg. Hluti stofnsins hefur vetursetu í Skotlandi og grænlenskir
fuglar eru far- og vetrargestir hér. www.fuglavernd.is
FUGL VIKUNNAR: SNJÓTITTLINGUR
Vetrarfuglinn okkar
SNJÓTITTLINGUR Hann tyllir sér á steina, þök og víðar en sjaldan í
tré. wMYND/JAKOB SIGURÐSSON