Fréttablaðið - 14.01.2010, Page 54
42 14. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. stig, 6. frá, 8. knæpa, 9. ögn, 11.
tveir eins, 12. skrá, 14. gimsteinn, 16.
samtök, 17. í viðbót, 18. dýrahljóð,
20. átt, 21. krot.
LÓÐRÉTT
1. slitrótt tal, 3. tveir eins, 4. kjaft-
stopp, 5. tillaga, 7. fitlari, 10. sæ, 13.
stæla, 15. hrumur, 16. eyrir, 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. skor, 6. af, 8. krá, 9. fis,
11. ðð, 12. skjal, 14. tópas, 16. aa, 17.
auk, 18. urr, 20. sa, 21. riss.
LÓÐRÉTT: 1. tafs, 3. kk, 4. orðlaus,
5. ráð, 7. fiktari, 10. sjó, 13. apa, 15.
skar, 16. aur, 19. rs.
„Þeir höfðu nú bara samband við mig fyrir
skömmu og sögðu mér frá þessu verki sínu.
Mér fannst þetta bara fyrst og fremst skond-
ið,“ segir Guðrún Eva Mínervudóttir. Tveir
franskir listamenn, þau Baptiste og Chloe frá
París, urðu fyrir svo miklum áhrifum af smá-
sagnasafni Guðrúnar, Á meðan hann horfir á
þig ertu María mey, að þeir ákváðu að búa til
listaverk sem er í raun myndskreytt útgáfa af
smásagnasafninu.
Guðrún segist ekki kunna nein deili á lista-
mönnunum, hún hafi bara haft samskipti við
þá í gegnum tölvupóst. „Þeir fengu tölvupóst-
fangið mitt hjá útgefandanum í Frakklandi og
ég gat ekkert annað gert en bara þakka þeim
kærlega fyrir að lesa bókina,“ segir Guðrún
en smásagnasafnið kom út árið 2008 í Frakk-
landi og Guðrún hafði eiginlega gefið frekara
líf þess upp á bátinn. „Fyrst fannst mér bara
gaman af því að Frakkar skyldu vilja gefa
hana út og núna hefur hún ein-
hvern veginn öðlast sitt eigið
líf,“ segir Guðrún sem ætlar
að prenta út myndir af lista-
verkinu og hengja það upp á
svokallaðan „innblástursvegg“.
„Ætli það yrði ekki til að kóróna
hringrásina ef þetta yrði mér
síðan innblástur að nýrri bók.“
- fgg
Smásagnasafn Guðrúnar verður listaverk
SKONDIÐ Guðrún Eva
veit ekkert um frönsku
listamennina Baptiste
og Chloe frá París sem
bjuggu til listaverk
upp úr smásagnasafni
hennar.
Hamskiptin, leiksýning Vesturports, var
nýverið valin besta alþjóðlega leiksýn-
ingin á árinu sem var að líða af tveimur
áströlskum blöðum. Annars vegar The
Week og hins vegar sunnudagsblaðinu
The Herald Sun sem er í Sydney. Blöð-
in eru feikilega mikið lesin í Ástralíu og
hefur hamingjuóskum hreinlega rignt
yfir Gísla Örn Garðarsson frá andfætl-
ingum að undanförnu. „Já, þetta virðist
hafa vakið mikla athygli og við getum ekki
annað en verið glöð yfir viðtökunum,“ segir
Gísli Örn en hann er að undirbúa frum-
sýningu Fást sem verður í Borgarleik-
húsinu á föstudaginn. Gísli hlær
þegar hann er inntur eftir því
hvort vinskapur Vesturports
og Nicks Cave, óskabarni
áströlsku þjóðarinnar, hafi
ekki leikið stórt hlutverk
í þessum miklu vinsæld-
um. „Jú, jú, það hlýtur að
vera,“ segir hann.
Annars stefnir í að
Hamskiptin nái því að
verða sýnd í flestöllum byggðum heimsálfum
því fyrirhugaðar eru leikferðir til New
York og Kólumbíu á þessu ári. Evrópa, Asía
og Eyjaálfa verða þá að baki en eflaust er
vonlaust að setja upp sýninguna á Suður-
skautslandinu. „Við eigum þá bara eftir
Afríku, það yrði kannski bara gaman að
koma þangað og setja verkið upp þar,“
segir Gísli. Þá hafa tekist samningar við
Borgarleikhúsið í Malmö um kaup á leik-
gerðinni sjálfri að Hamskiptunum. „Þetta
gæti alveg orðið smá iðnaður, að selja þessa
leikgerð til annarra leikhúsa og yrði
bara skemmtilegt ef afurðin fengi
sjálfstætt líf.“ - fgg
Ástralar elska Vesturport
ÁSTRALAR HRIFNIR The
Week og The Herald Sun
völdu leiksýningu Vestur-
ports sem alþjóðlegu
sýningu ársins á árinu sem
var að líða.
„Þetta eru kannski þau verðlaun
fyrir mig sem fagmann sem er
hægt að taka mest mark á því
þetta eru kollegar manns sem velja
mann inn. Þetta eru svo hreinrækt-
uð fagverðlaun,“ segir leikmynda-
hönnuðurinn Karl Júlíusson.
Hann hefur verið tilnefnd-
ur til hinna virtu Art Directors
Guild-verðlauna fyrir kvikmynd-
ina The Hurt Locker sem fjallar
um sprengjusérfræðinga í Írak.
Karl segir þetta eftirsóknarverð-
ari verðlaun en sjálfan Óskarinn.
„Engin spurning, því þetta eru
marktækir menn sem hafa tekið
þessa ákvörðun hvað varðar mitt
fag.“
Art Directors Guild-verðlaunin
eru veitt í Bandaríkjunum á hverju
ári fyrir leikmyndahönnun og list-
ræna stjórnun bæði í kvikmynd-
um og sjónvarpsþáttum. Auk The
Hurt Locker eru tilnefndar í sama
flokki, eða myndum sem gerast í
nútímanum, þær Angels & Dem-
ons, The Hangover, The Lovely
Bones og Up in the Air.
Karl segir að tilnefningin hafi
komið sér í opna skjöldu. „Já, það
gerði það því þetta er mynd sem
er ekkert rosalega stór í leik-
myndalegu tilliti miðað við mynd-
ir almennt. Sem dæmi má nefna að
það er ekki óalgengt að meðalstór
kvikmynd hafi milli 100 og 150
leikmyndir á meðan þessi hafði
á milli 35 og 40,“ segir Karl, sem
hefur einnig unnið við myndir á
borð við Antichrist, A Little Trip
to Heaven, K-19, The Widowmaker
og Dancer in the Dark.
Karl segir óvíst hvort hann verði
viðstaddur verðlaunaathöfnina í
Beverly Hills 13. febrúar. „Ég verð
að sjá til. Það fer eftir því hvern-
ig málin æxlast og hvaða verk-
efni ég tek fyrir næst. Það sem
ég hefði mestan áhuga á að gera,
vegna þess að ég er kominn svo vel
af stað með það, er víkingamynd
Baltasars. Ég veit ekki hvort hún
verður á næstunni eða hvort það
verður bið á henni. En hún verður
örugglega gerð. Síðan er ýmislegt
annað eins og amerísk mynd sem á
að skjóta í Mexíkó sem fjallar um
mexíkósku eiturlyfjamafíuna,“
segir hann.
Óskarsverðlaunin verða afhent
7. mars en Karl hefur litla trú á að
hann hljóti náð fyrir augum aka-
demíunnar. „Það eru períódumynd-
ir sem eru hvað oftast tilnefndar
þar,“ segir hann og á þar við mynd-
ir sem gerast ekki í nútímanum.
„Þetta er lítil mynd í amerískum
skilningi. Hún er gerð fyrir litla
peninga og hún hefur ekki feng-
ið allan þennan blástur sem hinar
myndirnar hafa fengið, en maður
tekur því bara eins og hverju öðru
hundsbiti ef það kemur.“
freyr@frettabladid.is
KARL JÚLÍUSSON: VIL FREKAR ÞESSI VERÐLAUN EN ÓSKARINN
Leikmynd Karls í The Hurt
Locker meðal þeirra bestu
KARL JÚLÍUSSON Karl hefur verið tilnefndur til hinna virtu Art Directors Guild-verð-
launa sem verða afhent 13. febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hljómsveitin FM Belfast er ein af
þeim sveitum sem enska tísku- og
tónlistartímaritið Clash telur líklega
til að gera góða hluti í ár. Blaðið
segir FM Belfast flytja fyrirferðar-
mikið og ástleitið popp sem sé
spilað með hjartanu af
flokki hljóð-bardaga-
manna. Það er því
meðbyr með FM Belf-
ast nú þegar platan
þeirra How to Make
Friends (kom út hér
2008) er loksins
að koma út á
alþjóðamark-
aði.
Hvanndalsbræður taka þátt í for-
keppni Eurovision á laugardaginn
með stuðlaginu Gleði og glens. Til
að treysta sóknina hefur hljóm-
sveitin fengið til liðs við sig tvær
helstu bakraddadívur landsins.
Þetta eru þær Rögn-
valdur gáfaði (sem
hætti í Hvanndalsbræðr-
um í fyrra, en hefur aldrei
látið sig hverfa almenni-
lega) og Guðmundur
Svafarsson. Guðmundur
er þessi síðskeggjaði í
Ljótu hálfvitunum. Það
þótti sigurstranglegt
að hafa hann með
því hann hefur áður
verið sigursæll í
þáttum í Ríkissjón-
varpinu.
Metsölulisti Eymundsson kom út í
gær og ber þess greinileg merki að
nýtt ár er gengið í garð. Því Alman-
ak Háskóla Íslands fyrir árið 2010
er mest selt á árinu. Athygli vekur
þó að Andsælis á auðnuhjólinu
eftir Helga Ingólfsson stingur sér í
annað sætið en hin vinsæla kvik-
mynd Jóhannes, með
Ladda í aðalhlutverki,
var einmitt byggð á
þeirri bók.
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Besti bitinn finnst mér vera
nepalski veitingastaðurinn Kit-
chen á Laugavegi. Maturinn þar
er mjög góður og sterkur sem er
gott í kuldanum.“
Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmda-
stjóri Reykjavik Fashion Festival.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 8.
1 Sextug.
2 Bedroom Community.
3 Portúgölum.