Fréttablaðið - 23.01.2010, Page 11
LAUGARDAGUR 23. janúar 2010 11
© 2010 KPMG hf., íslenski aðilinn að KPMG International Cooperative (“KPMG International“), svissnesku samvinnufélagi. Öll réttindi áskilin.
Skattavika KPMG
fróðleikur með morgunkaffinu
Miklar breytingar voru gerðar á skattalögum og öðrum lögum um tekju öflun ríkissjóðs
á árinu 2009. Til að gera þeim sem best skil og miðla áhuga verðum fróðleik er boðið til
skattaviku KPMG frá þriðjudeginum 26. til föstu dagsins 29. janúar.
Fyrirlestrarnir verða haldnir í Borgartúni 27 og hefjast þeir kl. 8.30. Boðið verður upp á
morgunhressingu frá kl. 8.00. Öllum er heimil þátttaka og er aðgangur ókeypis. Þeir sem
ætla að sækja fundina eru beðnir að skrá sig á vefsíðu félagsins. Áætlaður fundartími er
1,5 klst. Hver fundardagur veitir 1,5 endurmenntunareiningu hjá FLE.
kpmg.is
Dagskrá
Þriðjudagur 26. janúar
Gjaldeyrishöft Seðlabanka Íslands – komin
til að vera – aftur?
Ingibjörg Guðbjartsdóttir frá Seðlabanka Íslands
Nýjar reglur um skatt á fjármagnstekjur
Ágúst Karl Guðmundsson, KPMG
Miðvikudagur 27. janúar
Virðisaukaskattur í 20 ár – hvað höfum við
lært og hverju þarf að breyta?
Kristín Norðfjörð frá ríkisskattstjóra
Tekjuskattur og skattskuldbindingar félaga
– helstu breytingar
Steingrímur Sigfússon, KPMG
Fimmtudagur 28. janúar
Breytingar á skattkerfinu
Ingvar J. Rögnvaldsson vararíkisskattstjóri
Skattalagabreytingar á liðnu ári
Sigurjón Högnason, KPMG
Föstudagur 29. janúar
Nýir og breyttir skattstofnar –
umfjöllun og dæmi um útreikninga
Guðrún Björg Bragadóttir, KPMG
Mismunur á skattlagningu eftir
félagaformum
Jónas Rafn Tómasson, KPMG
Nýsköpunarfyrirtæki og skattkerfið
– dragbítur eða hvati?
Þórður Magnússon, Eyrir Invest
DÓMSMÁL Skrifstofustjóri Alþingis kærði ekki sér-
staklega eftir 100. grein hegningarlaga, sem fjallar
um það, þegar ráðist er á Alþingi.
Ríkissaksóknari, Valtýr Sigurðsson, fullyrti
hins vegar í blaðinu í gær að svo hefði verið, í
máli níu sakborninga sem hafa verið ákærðir
fyrir að brjótast inn í Alþingi, þannig að fólk
meiddist.
„Ég sagði hins vegar í almennri greinargerð
að Alþingi njóti sérstakrar verndar, samkvæmt
greininni. En það er ríkissaksóknari sem
skrifar ákæruna og metur málsatvik,
það er hann sem verður að færa
málsgögnin undir hegningarlaga-
greinarnar,“ segir Helgi Bernód-
usson, skrifstofustjóri.
Í kæru skrifstofustjórans til
lögreglu er minnt á að Alþingi
njóti þessarar verndar samkvæmt 100. greininni.
Einnig er reifað að brot gegn henni þýði að lágmarki
eins árs refsingu og allt að lífstíðarfangelsi.
Hins vegar segir í kærunni að skrifstofa
Alþingis telji að „þessi atvik [sem kærð eru]
verði að rannsaka m.a. með það í huga hvort
brotið hafi verið gegn 106. gr. almennra
hegningarlaga,“ um brot gegn valdstjórn-
inni. Engin lágmarksrefsing er við henni og
hámarksrefsing er sex ára fangelsi. Þá telur
skrifstofan að hugsanlega hafi verið brotið gegn
fjórum öðrum lagagreinum, sem kveða
ekki á um lágmarksrefsingu. - kóþ
í kæru skrifstofustjóra Alþingis er minnst á 100. greinina, en aðrar taldar brotnar:
Alþingi ákvað ekki ákæruna
HELGI BERNÓDUSSON Í kærunni minnti hann
á 100. grein, um sérstaka vernd Alþingis, en
taldi að rannsaka þyrfti hvort aðrar greinar
hefðu verið brotnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti kynnti á
fimmtudag hertar reglur um
starfsemi fjármálafyrirtækja.
Meðal annars verður ríkinu gert
heimilt að takmarka það hversu
stór og flókin starfsemi þeirra
getur orðið. Einnig verður hægt
að takmarka möguleika þeirra til
að taka þátt í áhættuviðskiptum.
„Aldrei aftur munu bandarísk-
ir skattgreiðendur verða teknir
í gíslingu af bönkum sem eru of
stórir til að geta farið á hausinn,“
sagði Obama.
Nýju reglurnar hafa fengið
góðar undirtektir meðal Evrópu-
ríkja. Í Bandaríkjunum féllu hins
vegar hlutabréf stóru bankanna í
verði eftir að Obama kynnti þessi
áform sín. - gb
Barack Obama:
Herðir tökin á
stórbönkunum
BARACK OBAMA Bandaríkjaforseti ætlar
að setja bönkum strangari skorður.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEIÐI Umhverfisráðuneytið hefur
að tillögu Umhverfisstofnunar
ákvarðað hreindýraveiðikvóta
ársins 2010. Samkvæmt auglýs-
ingunni verður heimilt að veiða
allt að 1.272 hreindýr.
Líkt og undanfarin ár er tarfa-
veiði heimil frá og með 15. júlí til
og með 15. september. Veiðitími
á kúm verður lengdur um fimm
daga en veiði á kúm er heimil
frá og með 1. ágúst til og með 20.
september. Veturgamlir tarfar
eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði
því við tveggja vetra og eldri
tarfa. Ekki verður heimilað að
veiða kálfa og er það breyting frá
eldri reglu. - shá
Hreindýrakvóti ákveðinn:
Veiða má 1.272
hreindýr í ár
FJÖLMIÐLAR Stjórn Ríkisútvarps-
ins gagnrýnir í yfirlýsingu álykt-
un flokksráðs Vinstri grænna frá
því um síðustu helgi og „hafnar
þeim aðdróttunum sem þar er
beint að starfsfólki og starfsemi
RÚV“. Segist stjórnin telja „álykt-
unina meiðandi fyrir starfsfólk
Ríkisútvarpsins og lýsa fádæma
vanþekkingu flutningsmanna og
þeirra sem hana samþykktu“.
Í ályktun flokksráðsins var
spjótum beint að RÚV og stefna
þess gagnrýnd. Stofnuninni væri
illa stjórnað. Þess má geta að for-
maður stjórnar RÚV er Svanhild-
ur Kaaber, sem um skeið var vara-
formaður Vinstri grænna. - sh
RÚV hafnar aðdróttunum:
Stjórn RÚV
gagnrýnir VG
HEILBRIGÐISMÁL Einungis 58 pró-
sent kvenna á aldrinum 20 til 24
mæta í krabbameinsskoðun á
Íslandi. Það er áhyggjuefni, segir
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri
Krabbameinsfélags Íslands, sem
bendir á að í kjölfar skipulegrar
leitar hafi tíðni leghálskrabba-
meins lækkað um 68 prósent og
dánartíðni um 87 prósent.
Árleg árveknisvika, Evrópu-
vika gegn leghálskrabbameini,
hefst 24. janúar. Af því tilefni
verða seldar svokallaðar Vísdóm-
sperlur um land allt í verslunum
Lyfju, Apóteksins, Lyf og heilsu
og Apótekarans. Ágóðinn af söl-
unni rennur til styrktar legháls-
krabbameinsleit Leitarstöðvar
Krabbameinsfélagsins.
Í Evrópu deyja 25.000 konur
á ári hverju úr leghálskrabba-
meini. - sbt
Átak gegn krabbameini:
Konur hvattar
til krabba-
meinsskoðunar
VÍSDÓMSPERLA Ágóðinn af sölunni
rennur til styrktar leghálskrabbameins-
leit Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins.