Fréttablaðið - 23.01.2010, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 23.01.2010, Blaðsíða 39
ÍS LE N SK A S IA .I S PO S 48 66 3 01 /1 0 Hlutverk Póst- og fjarskiptastofn- unar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Starf stofnunarinnar mótast af alþjóðlegum kröfum og tekur breytingum í samræmi við öra alþjóðlega þróun. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti og tengd mál. Hjá PFS starfa 24 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, viðskiptalegra og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar. PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni. Sjá nánari upplýsingar á www.pfs.is Í boði eru fjölbreytt og áhugaverð störf hjá stofnun sem leggur áherslu á gildin fagmennsku, traust og víðsýni. Um framtíðarstörf er að ræða. Þrjú störf sérfræðinga laus til umsóknar LÖGFRÆÐINGUR Lögfræðideild PFS ber ábyrgð á vinnslu stjórnsýslumála, lausn ágreiningsmála, álagningu og eftirfylgni kvaða sem leiða af ákvæðum fjarskipta- og póstlaga. Hlutverk lögfræðideildar er jafnframt að vera ráðgefandi fyrir stjórnvöld varðandi löggjöf og reglusetningu á fyrrnefndum réttarsviðum. Starfssvið / Starf lögfræðings er m.a. fólgið í samningu álitsgerða og stjórnsýsluákvarðana, lögfræðilegri ráðgjöf, samskiptum við póst- og fjarskiptafyrirtæki og undirbúningi stjórnsýslureglna. Menntunar og hæfniskröfur / Embættispróf, ML í lögfræði eða sambærilegt próf. Þekking og starfsreynsla á sviði fjarskiptaréttar, stjórnsýsluréttar eða samkeppnisréttar er æskileg. SÉRFRÆÐINGUR Í GREININGARDEILD Greiningardeild PFS ber ábyrgð á markaðs- og kostnaðargreiningum, tölfræðivinnslu, hagfræðirannsóknum og öðrum verkefnum er lúta að viðskiptalegum þáttum eftirlits á fjarskipta- og póstmarkaði. Starfssvið / Starf sérfræðings í greiningardeild er fólgið í markaðs- og kostnaðargreiningum auk annarra sérverkefna á verksviði deildarinnar ásamt stuðningi við störf annarra deilda. Menntunar og hæfniskröfur / Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærileg menntun. Framhaldsnám eða starfsreynsla á sviði fjarskipta er kostur. Almennar hæfniskröfur í öll störfin / Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á íslensku og ensku, búa yfir ríkulegri samskiptafærni auk þess að vera agaðir og skipulagðir í vinnu- brögðum. Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í samskiptum við markaðsaðila á póst- og fjarskiptamarkaði. Umsóknarfrestur / Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2010. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um störfin á heimasíðu PFS www.pfs.is og senda jafnframt ferilskrár í viðhengi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. SÉRFRÆÐINGUR Í TÆKNIDEILD Tæknideild PFS ber ábyrgð á skipulagningu númeramála og tíðnirófsins á Íslandi ásamt úthlutun á tíðnum og upplýsingagjöf um notkun. Einnig ber deildin ábyrgð á net- og upplýsingaöryggi. Starfssvið / Starf sérfræðings í tæknideild er m.a. fólgið í vinnu við skipulagningu tíðnirófsins, númeramál og markaðseftirlit. Einnig úthlutun tíðna ásamt þróun upplýsinga- gjafar varðandi tíðnimál, númeramál og fjarskiptavirki. Menntunar og hæfniskröfur / Háskólapróf í verk- eða tæknifræði eða sambærileg menntun. Framhaldsnám eða starfsreynsla á sviði fjarskipta er kostur. Reynsla af verkefnastjórnun er einnig kostur. Nánari upplýsingar um störfin veitir Anna Dóra Guðmundsdóttir, mannauðs- og gæðastjóri, í síma 510 1500. Einnig má senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið annadora@pfs.is Starfsmaður óskast í Fyrirtækjaþjónustu Borgunar Vegna aukinna umsvifa í netviðskiptum óskum við eftir kraftmiklum einstaklingi til starfa í Fyrirtækjaþjónustu. Fyrirtækjaþjónusta Borgunar annast færsluhirðingu milli korthafa og söluaðila og býður fyrirtækjum upp á ýmsar tæknilausnir fyrir greiðslumiðlun. Nánari upplýsingar veitir Anna Rut Þráinsdóttir starfsmannastjóri (art@borgun.is) í síma 560 1579 eða Sigurður Guðmundsson forstöðumaður fyrirtækjaþjónustu í síma 560 1600. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu okkar www.borgun.is. Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar næstkomandi. Borgun er framsækið fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í öruggri greiðslumiðlun í 30 ár. Fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum færsluhirðingu fyrir MasterCard, Maestro, Visa, Visa Electron, JCB, Diners og American Express. Ármúla 30 | 108 Reykjavík | Sími 560 1600 | www.borgun.is Helstu verkefni: Móttaka og yfirferð umsókna um viðskipti− Áreiðanleikagreining umsækjenda− Eftirfylgni með seljendum vöru og þjónustu á netinu− Almenn samskipti og þjónusta við viðskiptavini − Önnur tilfallandi verkefni− Menntun og hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi− Reynsla af greiðslumiðlun kostur− Mjög góð enskukunnátta− Greiningarhæfni og áhugi á rannsóknarvinnu á netinu− Skipulögð og nákvæm vinnubrögð− Sjálfstæði í starfi og hæfni til að vinna undir álagi−
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.