Fréttablaðið - 26.01.2010, Síða 24
26. JANÚAR 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Hrímnir PRO
Sætið er einstaklega þægilegt og
veitir gott jafnvægi.
Hið einstaka Dupont® hnakkvirki
dreifir þyngd knapans vel yfir
bak hestsins. Hægt er stilla vídd
virkisins með X-change járnum.
Bayflex® í undirdýnum, sæti og
hnépúðum.
Stærri hnépúðar en Hrímnir
Legacy og styður því betur
við knapa sem leita eftir
lóðréttri ásetu.
Leðrið er frá Remy Carriat
í Frakklandi.
Verð 339.900
Hrímnir Legacy SoftSeat
Sætið er einstaklega
þægilegt og veitir gott
jafnvægi.
Hið einstaka Dupont®
hnakkvirki dreifir þyngd
knapans vel yfir bak hestsins.
Hægt er stilla vídd virkisins
með X-change járnum.
Bayflex® í undirdýnum,
sæti og hnépúðum.
Hnakkurinn er úr ítölsku leðri
Verð 299.900
TÝR
Svipuð uppbygging og
Hrímnir hnakkarnir, nema
undirdýnurnar eru með
AMS® kerfi, þ.e. kjarninn
er ull (A), utan um hana
er þunnur neoprene
svampur (B) og yst er
leðrið. Neoprene svam-
purinn dregur úr því að
álagspunktar myndast fá
ullinni og stuðlar því að
betri þyngdardreyfingu.
Verð 299.900
Pessoa þjálfunarbúnaður
Notað rétt getur
búnaðurinn verið
frábær til að hjálpa
hestinum að finna jafn-
vægi sitt og byggja upp
meiri burð.
X-change járn
Hægt að stilla vídd
hnakkanna með því að
skipta út járnunum og
tekur það ekki nema
örfáar mínútur.
Fáanleg í M, MW, W
og XW
Icesaddles er fyrirtæki sem sér-
hæfir sig í þróun á framleiðslu
á reiðtygjum fyrir íslenska
hestinn. Rúnar Þór Guðbrands-
son, eigandi fyrirtækisins,
segir hnakkana njóta mikilla
vinsælda hérlendis sem og
erlendis en þeir eru seldir í tíu
löndum.
Hnakkarnir eru framleiddir undir
vörumerkinu Hrímnir og Týr og
búnir að vera á markaðnum í tíu
ár. „Þetta eru hágæðahnakk-
ar, geysivinsælir og vinsældir
Hrímnis, sem til er í nokkrum út-
gáfum, eru stöðugt að aukast en
hann hefur reynst vel í keppni og
við almennar útreiðar. Vinsælasti
hnakkurinn í dag, Hrímnir PRO,
kom á markað fyrir um það bil
einu og hálfu ári og er hnakkur í
hæsta gæðaflokki,“ segir Rúnar.
Hrímnir PRO er framleidd-
ur úr leðri frá Remy Carriat í
Frakklandi. „Í hnakknum er frá-
bært hnakkvirki sem kallast Du-
Pont Flex-tree, sem hefur góða
mýkt og lagar sig vel að byggingu
og hreyfingum hestsins. Hnakk-
urinn er með undirdýnum sem
heilsuvörufyrirtækið Bayer þróaði
í samvinnu við hnakkaframleið-
andann. Þær eru steyptar í mót,
eru þar af leiðandi mjög mjúkar,
eftirgefanlegar og dreifa þyngd
knapans vel. Knapinn er þannig
kominn í hámarkssamband strax
í fyrsta reiðtúr,“ segir Rúnar Þór
og bætir við að ekki þurfi að fylla
eða stoppa í þessar dýnur.
Hnakkurinn veitir mjög gott
sæti og dreifir þyngd knapans vel
yfir bak hestsins. Hnépúðarnir
styðja einnig vel við knapann og
gefa honum góða ásetu.
„Virkið er líka með svokölluðum
„X-change“ möguleika sem gefur
fólki möguleika á að stilla vídd
virkisins sem er gríðarlega áríð-
andi því hnakkurinn þarf að passa
hestinum, rétt eins og við sjálf
þurfum að ganga í skóm af réttri
stærð. Til að hesturinn geti geng-
ið rétt og eðlilega og hafi mögu-
leika á að byggja upp vöðva verð-
ur hann að vera óþvingaður undir
hnakknum.“
Fyrirtækið er líka með hnakk
sem heitir Hrímnir Legacy sem
reynst hefur frábærlega og þykir
mjög mjúkur og þægilegur fyrir
bæði knapa og hest. „Einnig
erum við með hnakkinn Týr sem
er svipað uppbyggður og Hrímn-
ir Legacy nema hann er með ull
í undirdýnunum. Auk hnakk-
anna framleiðum við jafnframt
öll helstu reiðtygi fyrir íslenska
hestinn.“
Vörur Icesaddles eru seldar í
verslunum Líflands í Reykjavík
og á Akureyri, í Fákasporti á Ak-
ureyri, í Hestahorni B&B Akra-
nesi og verslun Baldvins og Þor-
valdar á Selfossi.
Mikilvægt að hnakkurinn
henti hestinum sem best
Hnakkar Icesaddles þykja búa yfir miklum gæðum en Rúnar Þór Guðbrandsson, eigandi fyrirtækisins, segir að fólk geti kynnt sér
vörurnar frekar á www.hnakkar.is. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● VINSÆL ÍSTÖLTSÝNING Í DANMÖRKU Ekki eru mjög mörg ár síðan farið var að
keppa í tölti á skautasvelli innanhúss en með sanni má segja að sú hugmynd hafi
verið með þeim betri sem íslenskir hestamenn hafa fengið. Bæði hefur slík
keppni notið mikilla vinsælda hér heima en einnig hefur hún vakið athygli
erlendis. Slík mót hafa verið sett á fót í nokkrum nágrannalöndum okkar, þar
á meðal Danmörku.
Á heimasíðu Íslandshestafélagsins í Danmörku er sagt frá því að löngu er
orðið uppselt á uppákomuna Istölt 2010 sem haldin verður í skautahöllinni í
Frederikshavn á Jótlandi næstkomandi föstudag, 29. janúar. Þá hefur keppnin
einnig fengið töluverða umfjöllun og var meðal annars innslag á sjónvarpsstöð-
inni TV2 Nord á dögunum. www.islandshest.dk
Nýtt kaffihús var opnað á neðri
hæð Reiðhallarinnar í Víðidal á
laugardag. „Mætingin var góð,
ekki síst í ljósi þess að þetta var
varla auglýst,“ segir Sonja Gylfa-
dóttir, hjá kaffihúsinu, sem er í
eigu Björns Baldurssonar, eiganda
og rekstrarstjóra veitingastaðar-
ins Domo.
Stöðugur straumur gesta var á
kaffihúsið sem er það fyrsta sem
er opnað í húsinu og gátu þeir
meðal annars gætt sér á kaffi,
kakói, gosi, ávaxtadrykkjum,
bakkelsi og sushi. „Hér leggjum
við mikið upp úr heimabakstri til
að halda verðinu niðri,“ útskýrir
Sonja og bætir við að sushi-ið sé
frá Domo komið.
Opnun kaffihússins
mæltist vel fyrir meðal
gesta, einkum hunda-
eigenda sem var
velkomið að koma
inn fyrir með þá
hunda sem höguðu
sér vel. „Fólk hefur
um langt skeið verið
að pressa á Björn að opna kaffihús
í Reiðhöllinni, en hann hefur ekki
haft tíma til að láta verða af því
fyrr en nú,“ segir Sonja.
Kaffihúsið verður fyrst um sinn
haft opið um helgar frá klukk-
an 12 til 18. Sonja reiknar
þó með að opnunartím-
inn verði sveigjanlegri
eftir því sem nær dreg-
ur vori.
Nýtt kaffihús í Reiðhöllinni
Kaffi og sushi er á meðal þess sem er
á boðstólum.