Fréttablaðið - 26.01.2010, Síða 36
BAKÞANKAR
Önnu
Margrétar
Björnsson
20 26. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hafið þið
fengið síðasta
pakkann sem
ég sendi ykkur?
Já, það
höfum
við.
Flott. Ekki
geta þau
gengið
um og
verið að
krókna úr
kulda.
Nú held ég að ég
verði að útskýra
nokkuð ...
Frá-
bært,
enn
fleiri.
Hæ, mamma. Og nú snúum við
okkur aftur að hinu
fyrirframákveðna mót-
þróafulla sambandi.
Ég elska þessa hátíð. Að
opna jólakort á fallegum
snæviþöktum degi sem
þessum gerir mig svo ham-
ingjusama.
Svo friðsæla, svo – GUÐ MINN
GÓÐUR, BENNET-FJÖLSKYLD-
AN SENDI OKKUR KORT!
Núna neyðist ég til að fara
út í þessu ömurlega veðri
til að kaupa kort handa
þeim. Ég hata þessa hátíð.
Allt í lagi,
ég tala við
þig seinna
mamma.
Hvað var
þetta?
Geðhvarfasýki-
hraðlestin.
Æ, nei! Ég
var að þrífa
þetta.
Í síðustu viku var merkileg frétt á vefn-um um að nýtt tákn hefði verið fund-
ið upp til að tákna kaldhæðni í tölvusam-
skiptum. Merkið „Sarc Mark“ er eins
konar útgáfa af satanísku @ merki og var
búið til af Bandaríkjamönnum sem eiga
greinilega erfitt með hugtakið. Fyrirtæk-
ið plöggar kaldhæðnistáknið með því að
kaldhæðni skiljist ekki á prenti, í msn-
samskiptum eða í tölvupósti og geti auð-
veldlega misskilist af viðtakandanum og
bakað manni ómæld vandræði. Þetta
er örugglega álíka og svipurinn sem
ég fæ svo oft í samræðum við fólk
eða fjölmörg spurningarmerki yfir
mínum súrrealísku Facebook-stat-
usum.
EN kaldhæðnislegt eitthvað. Hvað
verður um kaldhæðnina ef sér-
stakt tákn er notað í hvert skipti
sem hún er notuð? Er hún þá
yfirleitt eitthvað sniðug eða
fyndin? Við lifum kannski ein-
mitt í svo Bandaríkjavæddu
þjóðfélagi að kaldhæðni er
illa séð og sjaldan skilin. Ég
ætti kannski að prenta merk-
ið út og hafa það með mér í
partýin. Svo ef mér yrði á að
láta eitthvað kaldhæðnislegt
út úr mér þá rétti ég bara út
handlegginn …Kaldhæðni!
Á LAUGARDAGINN svelgdist mér á kaff-
inu mínu þegar ég fór að lesa myndlist-
arumfjöllun í Lesbókinni. Við mér blasti
svo löng og svo flókin setning að hún
var meistaraverk í sjálfu sér og höfundi
hafði tekist að koma inn slatta af gríðar-
lega háfleygum orðum í einni langri runu
ásamt því að nota hugtakið kaldhæðnis-
legur póst-módernismi í öðru hverju orði.
(Ég sem hélt að pómó hefði dottið úr tísku
fyrir tuttugu árum). Las setninguna yfir
fimm sinnum þar til ég fattaði! Ég var
ekkert endilega svona mikill fílístíni!
Skríbentinn hafði bara gleymt að setja
nýja „Sarc Mark“ táknið á eftir greininni.
UM kvöldið mundi ég eftir því að það
væri eins gott að dæsa ekkert yfir Les-
bókinni né annarri háfleygri menningar-
starfsemi. Í kjölfar frétta af niðurskurði
hjá sjónvarpi allra landsmanna var enn
skrýtnara að horfa á skjáinn um kvöldið.
Íslenskt efni verði ekki lengur keypt inn
en RÚV er samt tilbúið til að pródúsera
lög eftir tannlækna til að senda í keppni
yfir „verstu rusllög Evrópu“ eins og lítill
sonur minn kallaði þetta. (Eurovision er
víst nefnilega svo hresst og skemmtilegt
og sameinar alltaf þjóðina í litríkri geð-
veiki í maí). Ég sting upp á því að RÚV
setji „Sarc mark“ undir gamla og skrýtna
lógóið sitt, nú eða skipti því bara alfarið út
þarna í efra horninu hægra megin.
Eru ekki allir að djóka?
Allt sem þú þarft...
Auglýsing í
Fréttablaðinu
nær til yfir
91%
lesenda
blaðanna
Yfirburðir
Fréttablaðsins
staðfestir!
Lesa bæði
Fréttablaðið og
Morgunblaðið
Lesa bara
Morgunblaðið
Lesa bara
Fréttablaðið
59% 8,8%
32,2%
Skörun blaðalesturs að meðaltali á dag, mán. til lau., höfuðborgarsvæðið 18-49 ára.
Heimild: Blaðakannanir Capacent maí-okt. 2009.
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað
landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila
sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup
sýnir ótvírætt.