Fréttablaðið - 26.01.2010, Page 42

Fréttablaðið - 26.01.2010, Page 42
26 26. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR EM Í AUSTURRÍKI EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON skrifar frá Vín eirikur@frettabladid.is Milliriðill 1 Ísland-Króatía 26-26 (15-12) Mörk Íslands (skot): Ólafur Stefánsson 8 (13), Snorri Steinn Guðjónsson 6/4 (8/4), Róbert Gunnarsson 5 (5), Alexander Petersson 3 (6), Aron Pálmarsson 2 (8), Arnór Atlason 2 (3), Guðjón Valur Sigurðsson 0 (1). Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 15/1 (40/5, 38%), Hreiðar Guðmundsson 0 (1/1, 0%). Hraðaupphlaup: 2 (Alexander, Ólafur). Fiskuð víti: 4 (Róbert 2, Snorri Steinn, Aron). Utan vallar: 16 mínútur (Sverre rautt). Mörk Króatíu (skot): Ivan Cupic 5/5 (6/6), Vedran Zrnic 3 (3), Denis Buntic 3 (4), Ivano Balic 3 (4), Igor Vori 3 (4), Tonci Valcic 3 (8), Domagoj Duvnjak 2 (3), Marko Kopljar 2 (3), Zeljko Musa 1 (1), Manuel Strlek 1 (2), . Varin skot: Mirko Alilovic 8 (31/2, 26%), Goran Carapina 1 (4/2, 25%). Hraðaupphlaup: 3 (Balic, Valcic, Zrnic). Fiskuð víti: 6 (Vori 2, Strlek, Balic, Blazenko Lackovic, Duvnjak). Utan vallar: 10 mínútur (Buntic rautt). Dómarar: Horacek og Novotny frá Tékklandi. Noregur-Austurríki 30-27 Rússland-Danmörk 28-34 STAÐAN Króatía 3 2 1 0 81-77 5 Ísland 3 1 2 0 90-85 4 Noregur 3 2 0 1 81-76 4 Danmörk 3 2 0 1 89-84 4 Austurríki 3 0 1 2 94-30 1 Rússland 3 0 0 3 80-92 0 EM Í HANDBOLTA HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds- son landsliðsþjálfari var óánægður með frammistöðu tékkneska dóm- araparsins í leik Íslands og Króa- tíu á EM í handbolta í gær. Ísland fékk alls átta brottvísanir og Guð- mundur sagði að þær hefðu verið afar ódýrar. „Ég er vonsvikinn því við vorum nálægt því að vinna sigur í þessum leik. Brottvísanirnar sem við feng- um voru alveg svakalega ódýrar og þó svo að við vorum klaufar í ein- hver skipti voru þær yfirleitt fyrir afar litlar sakir.“ Guðmundur segir þó að það væri enn mjög jákvætt að Ísland væri enn taplaust á mótinu og hann taldi Króatíu vera með eitt af fjórum bestu liðum mótsins. „Það er gott að fá stig gegn þessu frábæra liði. Nú bætir enn í safnið og við erum með fjögur stig. Við getum því farið fullir sjálfstrausts í næstu leiki. Liðið hefur verið að spila mjög vel og varnarleikurinn er nú orðinn mun betri.“ Hann er ánægður með hvern- ig leikmenn skiluðu sinni vinnu í leiknum miðað við það sem hann sjálfur lagði upp með. „Heldur betur, bæði í vörn og sókn. Við vorum að fá þau færi sem við ætluðum að skapa okkur og þeir skiptu úr sinni 3-2-1 vörn í 6-0 vörn. Oftast vorum við að leysa hana líka vel þó svo að þetta lið spili frábæra vörn og er með hörkugóðan markvörð. Það er erfitt að skora í hverri sókn gegn þessu liði og við getum verið afar sáttir við heildarmyndina.“ Hann segir þó erfitt að sætta sig við niðurstöðu leiksins. „Þegar maður er í þeirri stöðu að geta unnið Króatíu endar maður á að svekkja sig aðeins á því að hafa tapað stigi. Það þýðir þó ekk- ert. Nú verður maður bara að snúa sér að næsta leik.“ Ísland mætir Rússlandi í dag og ljóst að það verður erfitt verkefni, eins og allir aðrir leikir á mótinu. „Það verður fundur strax á eftir og nú hefst undirbúningur á fullu. Við erum reyndar þegar byrjaðir á þeirri vinnu og það mun reyna mikið á okkur að koma okkur strax aftur í gírinn, rétt eins og hjá and- stæðingnum.“ Guðmundur segir fulla ástæðu til að fara í leikinn í dag beinir í baki. „Við erum fullir eftirvænting- ar og sjálfstrausts. Við höfum enn ekki tapað leik og megum vera mjög stoltir af því,“ segir Guð- mundur Guðmundsson landsliðs- þjálfari. - esá Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var ekki sáttur við tékkneska dómaraparið í gær: Förum fullir sjálfstrausts í Rússaleikinn LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Vildi fá sigur í gær og var ekki sáttur við dómara leiks- ins sem komu frá Tékklandi. MYND/DIENER/LEENA MANHART HANDBOLTI „Ef við vinnum næstu tvo leiki þá erum við öruggir um sæti í undanúrslitum. Það er því enn það sem við stefnum að,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson eftir leikinn í gær. „Það er fullt sem við getum bætt en það var þó gott að fá eitt stig úr leiknum. Sóknarleikur- inn gekk nokkuð vel, sérstaklega þar sem þeir spiluðu óvenjulega vörn sem erfitt er að eiga við. Mér fannst við leysa hana nokk- uð vel.“ Guðjón Valur segir íslenska liðið vera með grundvallaratrið- in í lagi. „Þetta eru engin ný vísindi. Ef vörn og markvarsla standa fyrir sínu þá er allt mögulegt í þessum bolta.“ - esá Guðjón Valur Sigurðsson: Stefnum enn á undanúrslit GUÐJÓN VALUR Komst aldrei þessu vant ekki á blað í gær. MYND/DIENER/LEENA MANHART HANDBOLTI Róbert Gunnarsson var svekktur eftir jafnteflið við Króatíu á EM í handbolta í gær en sagði ekki þýða að dvelja lengi við það. Fram undan er leikur gegn Rússlandi strax í dag. „Það er bara fínt að fá að spila strax aftur. Nú getum við ekkert svekkt okkur og þurfum að þrífa þennan leik af okkur í sturtunni,“ sagði Róbert við Fréttablaðið. „Það er full ástæða til að vera jákvæðir. Við erum enn taplausir og ætlum að halda áfram af full- um krafti.“ - esá Róbert Gunnarsson: Þrífum þetta af okkur RÓBERT Átti magnaðan leik í gær á línunni. MYND/DIENER HANDBOLTI Ísland er enn taplaust eftir fyrstu fjóra leiki sína á Evr- ópumeistaramótinu í handbolta í Austurríki. Liðið gerði jafntefli við Króatíu, 26-26, í sínum fyrsta leik í milliriðlakeppninni í Vínarborg. Íslendingar mega þó vera svekktir með leikslokin þar sem þeir leiddu í 40 mínútur í leiknum og allt þar til fimm mínútur voru til leiksloka. Þá náðu Króatarnir frumkvæð- inu í leiknum og komust þríveg- is yfir. En það lýsir þeirri þraut- seigju sem býr í íslenska liðinu að það jafnaði ávallt metin og stóð svo af sér síðustu sókn Króatanna. Björgvin Páll Gústavsson hafði þá betur gegn skyttunni Tonci Val- cic sem lét vaða á markið á loka- sekúndu leiksins. Króatar geta þakkað það að hafa náð stigi í leiknum þeirri stað- reynd að tékknesku dómararnir létu ítrekað blekkjast af tilburð- um þeirra í sókninni og fiskuðu Króatarnir þar með íslenska varn- armenn hvað eftir annað af velli. Átta sinnum fengu íslensku leik- mennirnir brottvísun og alls sex sinnum í síðari hálfleik. Sverre Jakobsson fékk sína þriðju brott- vísun þegar rúmar 20 mínútur voru enn eftir af leiknum en Vign- ir Svavarsson leysti stöðu hans í vörninni með miklum sóma. Klókindum þeirra Ivanos Balic og Igors Vori virtust engin tak- mörk sett og var sorglegt að sjá tékknesku dómarana láta glepjast hvað eftir annað. Sem betur fer er einn af stærstu kostum íslenska landsliðsins hvað það er öflugt í undirtölu. Það sann- aðist enn og aftur í gær en liðið skoraði alls þrjú mörk í undirtölu og fékk ekki nema sex á sig. Hafa ber í huga að íslenska liðið vantaði einn mann inn á í um stundarfjórð- ung. Leikurinn var mjög hægur en íslensku strákarnir tókust á við hann af mikilli yfirvegun, bæði í vörn og sókn. Varnarleikurinn var afar öflugur en tíðar brottvísan- ir gerðu það að verkum að sókn- arleikurinn var á oft stirður enda vörn Króata gríðarlega sterk. Ólafur Stefánsson og Róbert Gunnarsson áttu frábæran leik í gær, eins og reyndar fleiri í íslenska liðinu. Þetta var besti leik- ur Ólafs á mótinu og sannaðist það að hann er aldrei betri en þegar liðið þarf mest á honum að halda. Hann skoraði átta mörk í leiknum. Þá er ekki annað hægt en minn- ast á þátt Snorra Steins Guðjóns- sonar. Hann nýtti sín færi gríðar- lega vel og hann stjórnaði liðinu mjög vel þegar hann spilaði. Aron Pálmarsson átti svo mjög öfluga innkomu í sóknina í fyrri hálfleik og Arnór Atlason stóð fyrir sínu og gott betur í þeim síðari. Alexand- er Petersson skoraði nokkur mik- ilvæg mörk og var sem fyrr afar mikilvægur hlekkur í vörninni. Varnarleikurinn var í einu orði sagt frábær og ekki oft að Króatar skori aðeins sautján mörk á fyrstu 45 mínútunum í leik. Björgvin var svo mjög öflugur í markinu. Niðurstaðan er eitt stig sem gæti reynst dýrmætt þegar upp verður staðið. Ísland er öruggt í undanúr- slit mótsins með sigri á Rússum í dag og Norðmönnum á fimmtu- daginn og því full ástæða til bjart- sýni. Björgvin bjargaði stigi í lokin Ísland gerði í gær jafntefli, 26-26, við Króatíu í fyrsta leik sínum í milliriðlakeppninni á EM í Austurríki. Ísland leiddi lengst af en missti frumkvæðið undir lokin. Björgvin Páll reyndist hetja leiksins í leikslok. ÓHRÆDDUR Aron Pálmarsson var frá- bær í fyrri hálfleik. MYND/DIENER FYRIRLIÐINN HEITUR Ólafur Stefánsson átti sinn besta leik á EM í gær á móti Króöt- um. Skoraði glæsileg mörk og lagði upp fleiri. MYND/DIENER ÓGURLEG ÁTÖK Róbert Gunnarsson stóð í ströngu í gær en gekk afar vel að eiga við hávaxna og sterka varnarmenn Króata. MYND/DIENER

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.