Samtíðin - 01.12.1947, Qupperneq 33
SAMTÍÐIN
31
ÞEIR VITRIJ
" SÖGÐU:
ANTOINE BIBESCO: „Okkur er
það jafn nauðsynlegt, að líta aðra
menn sömu augum og' þeir líta sjálfa
sig og okkur er hitt, að skoða sjálf
okkur frá sjónarmiði annarra“.
G. BERNARD SHAW: „Siðferði
þjóðar er eins og tennur hennar. Því
verra sem það er, því viðkvæmara
er það“.
HAROLD NICHOLSON: „Mér væri
sama, þó að ég ætti að lifa aftur það,
sem af er ævi minni, ef ég mætti
byrja hina nýju tilveru 18 ára. Þegar
mér verður hugsað til gelgjuskeiðs-
ins innan við 18 ára aldurinn, finnst
mér nauðalítið til þess koma, enda
þótt ég ætti við mestu sældarkjör
að »búa í æsku“.
STANLEY BALDWIN: „Einræði
í stjórnmálum er eins og beykitré.
Það er stórkostlegt á að líta, en í
skugga þess er enginn gróður“.
HAROLD NICHOLSON: „Ofsa-
fenginn og ósannur áróður borgar
sig áldrei, er til lengdar lætur. 1
heimsstyrjöldinni (1914-18) breiddu
Þjóðverjar út þann orðróm í Persíu,
að Englendingar ættu það til að
skjóta Persum úr fallbyssum. Var
þessu dreift út á prenti til dæmis
um það, hvernig Bretar færu með
Múhammeðstrúarmenn. — „Hjálpi
oss hamingjan!“ sögðu Persar. „Ef
Bretar eru svona ógurlega grimmir,
verðum við umfram allt að hafa það
hugfast að reita þá ekki á neinn hátt
til reiði“.
NYJAR BÆKUR
Skuli Gíslason: Sagnakver. Sigurður Nor-
dai gaf út. Myndir eftir Halldór Péturs-
son. 139 bls., íb. kr. 77.00 og 100.00.
Kjartan Gíslason: Fegurð dagsins. Ivvæði,
120 bls. ób. kr. 18.00, íb. kr. 28.00.
Estrid Ott: Kata bjarnarbani. Unglinga-
bók (3. óskabókin), 215 bls., ób. kr. 10.00.
Sven Edvin Salje: Riki mannanna. Sveita-
lífssaga (Framhald af sögunni Ketill i
Engihlíð). Ivonráð Vilhjáhnsson islenzk-
aði, 309 bls!, ób. kr. 32.00, ib. kr. 48.00.
Arthur Köstler: Myrkur um miðjan dag.
Skáldsaga. Jón Eyþórsson íslenzkaði,
276 bls., ób. kr. 25.00, íb. kr. 35.00.
W. Somerset Maugham: Líf og leikur eða
skuggi fortíðarinnar. Skáldsaga. Skúli
Bjarkan íslenzkaði, 277 bls. ób. kr. 25.00,
ib. kr. 3Í00.
Anna Sewell: Fagri Blakkur. Ævisaga
hests, sögð af honum sjálfum. Með
niýndum. Oscar Clausen íslenzkaði, 143
bls., ób. kr. 13.00, íb. 20.00.
Jesús og börnin. Bibliumyndir til litunar,
kr. 3.50.
Gunnar Jörgensen: Flemming og Kvikk.
Drengjasaga. Sigurður Gtiðjónsson ís-
lenzkaði, 176 bls., íb. kr. 19.00.
Ejnar Schroll: Litli sægarpurinn. Drengja-
saga. Gunnar Sigu’rjónsson íslenzkaði,
123 bls., ób. kr. 13.00.
Hall Caine: Kona. var mér gefin. Sagan af
Mary O’Neill. Fyrri liluli. Andrés Kristj-
ánsson íslenzkaði, 355 bls., ób. kr. 32.00,
íb. kr. 42.00.
Daphne du Maurier: Hershöfðinginn henn-
ar. Axel Thorsteinsson islenzkaði, 472
bls., ób. kr. 32.00, íb. kr. 45.00.
Kristján Röðuls: Undir norrænum himni.
Ljóð, 101 bls., íb. kr. 30.00.
Útvegum allar fáanlegar íslenzlcar bæk-
ur. Fjölbreytt úrval erlendra bóka. Send-
um gegn póstkröfu um land allt.
BóLU n
aló ocf mennmc^ar
Laugavegi 19, Reykjavík.
Sími 5055. Póethólf 392.