Fréttablaðið - 29.01.2010, Qupperneq 12
12 29. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Lögmál lögspekinnar
„Síðan tók ég á endanum,
þegar ég þurfti að komast að
ákveðinni niðurstöðu, annan
pól í hæðina.“
PETER GOLDSMITH, LÖGFRÆÐIRÁÐ-
GJAFI BRESKU RÍKISSTJÓRNARINN-
AR, UM AÐ HANN HAFI HÆTT VIÐ
AÐ TELJA ÍRAKSSTRÍÐIÐ ÓLÖGLEGT.
Fréttablaðið, 28. janúar
Datt nokkrum það í hug?
„Við höfum ekki játað nein
brot enda hafa engin brot
verið framin.“
ÁGÚST GUÐMUNDSSON BAKKAVAR-
ARBRÓÐIR UM YFIRHEYRSLUR HJÁ
SÉRSTÖKUM SAKSÓKNARA VEGNA
RANNSÓKNAR Á FJÁRMÁLUM
EXISTU.
Fréttablaðið, 28. janúar
HANDBOLTI
SPILAÐ AÐ ÓSK HITLERS
■ Íþróttir líkar handbolta hafa verið
spilaðar víða um heim í aldanna rás.
Nútímaútgáfan er þó yfirleitt talin
upprunin í Danmörku. Fyrstu regl-
urnar voru skjalfestar
af dönskum íþrótta-
kennara árið 1898.
Þýskar reglur voru
útgefnar árið 1917,
og fyrsti landsleikur-
inn var leikinn eftir
þeim reglum árið
1925 milli Þýska-
lands og Austurríkis. Íþróttin var spil-
uð á Ólympíuleikunum í Berlín árið
1936 samkvæmt sérstakri ósk frá
Adolf Hitler. Handbolti var ekki með
á leikunum 1940, og komst ekki á
dagskrá aftur fyrr en árið 1976.
Halaleikhópurinn frumsýnir í næstu
viku leikritið Sjöundá-Svartfugl
Gunnars Gunnarssonar sem fjallar
um eitt þekktasta sakamál Íslands-
sögunnar, morðin á Sjöundá og rétt-
arhöldin yfir þeim Bjarna Bjarnasyni
og Steinunni Sveinsdóttur. Ágústa
Skúladóttir leikstýrir verkinu sem er
þriðja verkefnið í röð sem hún tekur
að sér og gerist á 19. öldinni.
Ágústa segir það vera tilviljun að hún hafi feng-
ist við svona mörg verkefni tengd nítjándu öld-
inni undanfarið. „En ég hef mjög gaman af
þessu og verkin eru öll skemmtilega ólík,“ segir
Ágústa sem er á kafi í undirbúningi fyrir leik-
ritið um morðin á Sjöundá og eftirmála þeirra,
réttarhöldin yfir þeim Bjarna Bjarnasyni og
Steinunni Sveinsdóttur en þeim var gefið að sök
að hafa lagt á ráðin og banað mökum sínum.
„Leikgerðin upp úr verki Gunnars er ný en ég
gerði hana í samvinnu við Þorgeir Tryggvason
og leikhópinn,“ segir Ágústa. Þorgeir er einn
meðlima í hljómsveitinni Ljótu hálfvitarnir en
einn eða fleiri úr þeirri sveit koma við sögu í
þessum verkefnum sem öll gerast á nítjándu
öldinni. „Í fyrra setti ég upp leikprógramm
um Jörund hundadagakonung eftir handriti
tveggja, meðlimir úr sveitinni sömdu handrit að
verki um Bólu-Hjálmar sem ég leikstýri,“ segir
Ágústa og lætur vel af þessu samstarfi sem
reyndar hefur oftar en einu sinni hlotið verð-
laun, sýningin um Bólu-Hjálmar hlaut Grímu-
verðlaunin sem barna og unglingaleiksýning
ársins 2009 og sýningin Klaufar og kóngsdætur
sömuleiðis þar sem Þorgeir var einn höfunda.
Í leikgerð Halaleikhópsins um morðin á
Sjöundá er mikil áhersla lögð á réttarhöld-
in yfir Bjarna og Steinunni. „Við bjuggum til
tvo nýja karaktera, stelpur sem líta um öxl og
rifja atburðina upp. Annars erum við trú texta
Gunnars sem auðvelt reyndist að setja í díalóga.
Þetta voru dramatísk réttarhöld sem lauk með
játningu þeirra beggja,“ segir Ágústa en þess
má geta að Steinunn dó í fangelsi hér á landi en
Bjarni var tekinn af lífi í Kaupmannahöfn.
Halaleikhópurinn er áhugaleikhópur fatl-
aðra og ófatlaðra einstaklinga sem hefur verið
mjög virkur frá stofnun 1992. Ágústa hefur
ekki unnið með þeim áður og segir það mjög
skemmtilegt og áhugavert. „Við erum með mjög
flotta leikara á öllum póstum.“
sigridur@frettabladid.is
Með hugann við 19. öldina
Á LEIÐ Á ÆFINGU Ágústa Skúladóttir leikstjóri, þriðja frá vinstri í aftari röð, stillti sér upp ásamt leikurum í Halaleik-
hópnum þegar Fréttablaðið leit inn á æfingu í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Halaleikhópurinn var stofnaður 27. september
1992 með það að markmiði að „iðka leiklist fyrir
alla“ og hefur starfað óslitið síðan. Við höfum sett
upp veglega leiksýningu á hverju ári, stundum
fleiri en eina, sjö leikrit hafa verið frumsamin fyrir
leikhópinn og hafa þær jafnan vakið mikla athygli.
Þar sem leikhópurinn er samansettur af ólíkum
einstaklingum, fötluðum sem ófötluðum, verður
fjölbreytnin meiri og þar af leiðandi túlkunin.
Þannig hefur hópurinn opnað augu almennings
fyrir því að fatlað fólk getur einnig, þrátt fyrir
ýmsar hindranir, leikið á sviði eins og allir aðrir.
Þetta áhugaleikfélag hefur lyft grettistaki í að
eyða fordómum og styrkja einstaklinga til að taka
skref, sem annars hefðu verið ófarin og styrkir því
marga Halafélaga á einn eða annan hátt. Fötlun er
eitthvað sem gleymist í þessu áhugaleikfélagi.“
www.halaleikhopurinn.is
LEIKLIST FYRIR ALLA
Á annað hundrað manns mættu á
stofnfund samtaka um heilsuferð-
arþjónustu sem haldinn var í gær á
kaffi Nauthól í Nauthólsvík. Mark-
mið samtakanna er „að stuðla að
fagmennsku og gæðum í heilsu-
ferðaþjónustu og kynna sérstöðu
landsins, náttúru og hreinleika
í tengslum við heilsu og vellíð-
an … og auka verulega markaðs-
hlutdeild heilsuferðaþjónustu í
íslenskri ferðaþjónustu fyrir árið
2015 og auka tekjur af heilsuferða-
þjónustu sem er afar arðsöm und-
irgrein ferðaiðnaðarins,“ segir í
fréttatilkynningu.
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðar- og
ferðamálaráðherra tilkynnti um
fjögurra milljóna króna fjárveit-
ingu til verkefnisins á fundinum
en aðstandendur þess vonast eftir
fjölgun ferðalanga í heilsuferðum
þegar næsta haust.
Að fundi loknum voru gest-
ir lóðsaðir um Nauthólsvíkina á
reiðhjólum af þeim Stefáni Helga
Valssyni og Ursulu Spitzbart sem
stofnuðu fyrirtækið Reykjavík
Bike Tours síðastliðið sumar. - sbt
Mikill áhugi á nýjum samtökum um heilsuferðaþjónustu:
Íslandi áfangi í heilsuferðamennsku
HJÓLUÐU Í NAUTHÓLSVÍKINNI Að loknum fundi um heilsuferðamennsku hjóluðu
fundargestir í Nauthólsvíkinni undir leiðsögn meðal annars Stefáns Helga Valssonar
sem hér sést ásamt Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðar- og ferðamálaráðherra, og Ólöfu Ýrr
Atladóttur ferðamálastjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nemendur Birkimelsskóla á
Barðaströnd tóku til hendinni
fyrir jólin og efndu til söfnunar
fyrir ungan dreng, sveitunga
sinn, sem á við erfiðan sjúk-
dóm að stríða.
„Þau föndruðu bæði engla
og kort. Svo keyrði ég þau
um sveitina að selja. Þetta
var ljómandi gott framtak
hjá þeim,“ segir Ragnar Guð-
mundsson, bóndi á Brjánslæk,
sem er afi fjögurra barna í
skólanum.
Hefð er fyrir því að börn-
in í skólanum efni til söfnun-
ar af þessu tagi fyrir jólin. Að
þessu sinni söfnuðust 32 þús-
und krónur.
Keran Stueland Ólason fékk
ágóðann af sölunni. Hann er
með taugahrörnunarsdjúk-
dóminn SMA1, sem hefur í för
með sér vöðvarýrnun og skerta
hreyfigetu. - gb
Góðverk á Barðaströnd:
Söfnuðu fyrir
ungan dreng
DUGNAÐARKRAKKAR Nemendur
Birkimelsskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/FANNEY
„Það er allt glimrandi fínt að frétta,“ segir Helga
Sigrún Harðardóttir, fyrrverandi alþingismaður
Framsóknarflokksins. Hún leggur nú stund á
laganám við Háskólann í Reykjavík og er búin
með hálft annað ár – hálfa BA-gráðu, hvorki
meira né minna.
„Þetta hefur gengið ofsalega vel,“ segir
Helga Sigrún. „Þetta er eitthvað það
skemmtilegasta sem ég gert í mínu lífi,
fyrir utan það að verða amma,“ bætir hún
við. „Ég fann fjölina mína algjörlega á degi
þrjú. Þetta er frábært fag, sérstaklega þegar
maður hefur margvíslega reynslu af lífinu
þá tengist það svo mörgu af því sem
maður hefur gert. Ég tala nú ekki
um þegar maður hefur unnið
í þinginu og setið þar inni.
Þetta er bara svo ofboðslega
mannlegt fag.“
Helga Sigrún saknar ekki stjórnmálanna. „Það
er svo ótrúlega margt í stjórnkerfinu sem maður
rak sig á og hefur rekið sig á í gegnum tíðina,
sem er í svo miklu ólagi að fyrir mína parta þá er
þetta umhverfi alveg skelfilegt,“ útskýrir
hún. „Ég sakna þess ekki neitt og er
ekki á leiðinni til baka.“
Helga Sigrún segir laganámið
taka mikinn toll og því sé ekki mikið
pláss fyrir annað í hennar lífi þessi
misserin. Hún er þó byrjuð að huga
að næsta sumri og farin að skipu-
leggja stangveiðiferðir með manni
sínum og fleiri veiðifélögum.
„Það verður að skipuleggja
það strax,“ segir hún, en
þau reyna að komast í
urriðaveiði í Laxárdal á
hverju sumri.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HELGA SIGRÚN HARÐARDÓTTIR, FYRRVERANDI ÞINGMAÐUR
Byrjuð að skipuleggja stangveiðina