Fréttablaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 21
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég er nú sennilega þekktastur
fyrir bragðsterkan ítalskan mat,“
segir Kristján brosandi og kveðst
ekki í neinum vandræðum með að
ná sér í það hráefni hér á landi sem
til þurfi í slíkan mat. Hann segir
íslenskan fisk líka oft á borðum
og lýkur lofsorði á fiskbúðina í
Hófgerði í Kópavogi.
Þennan daginn ætlar hann samt
að elda kjúkling. „Þessi réttur er
afar vinsæll hjá dóttur minni
og afastelpunum mínum tveim-
ur sem eru ekki enn þá komn-
ar upp á lagið með að borða mat
með pepperoncino (chilipipar).
Þau minnstu eru líka of ung fyrir
krydd.“ Hann segir réttinn einfald-
an en góðan og hafa komið öllum
á óvart sem hafi smakkað hann.
„Þeir sem vilja auka bragðið geta
sett rönd af sojasósu yfir kjötið,“
tekur hann fram.
Kristján byrjar á að setja hrís-
grjónin af stað, kveðst oftast nota
basmati-grjón en hverjum og
einum sé frjálst að nota það sem
best þyki. gun@frettabladid.is
Börnin elska afamatinn
Þótt stórtenórinn Kristján Jóhannsson sé önnum kafinn flesta daga við sitt fag þá tekur hann sér líka
tíma til að elda. Hér gefur hann lesendum Fréttablaðsins smá nasasjón af því sem hann ber á borð.
Kristján í essinu sínu að elda ofan í fjölskylduna. Með honum á myndinni eru börnin hans Rannveig með Þóreyju Ingvarsdóttur á
handleggnum og Víkingur sem heldur á Völu Ingvarsdóttur, eiginkonan Sigurjóna sem heldur á Júlíu Ingvarsdóttur og tengda-
dóttirin Katia sem heldur á Kristjáni litla Ingvarssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kjúklingur með
sítrónu
Kjúklingabringur 1-2
pakkar eftir fjölda í mat.
Smjör
Ólífvuolía, ljós
1 sítróna
Ég sker bringurnar
í þunnar sneiðar og
ber þær létt, þannig
að þær verði þunn-
ar. Salta og pipra
sneiðarnar áður en
ég steiki þær á pönnu
upp úr samblandi
af bræddu smjöri
og léttri ólívuolíu.
Þegar kjúklingurinn er
steiktur bæti ég smjöri
á pönnuna (saman
við kjúklinginn) og
þegar það er vel bráðið
kreisti ég eina sítrónu
yfir dásemdina – ed
ecco tutto é pronto!
Sítrónan gerir kjúkling-
inn gullinbrúnan og
sítrónu smjörsósan er
fín ofan á hrísgrjónin.
Fennikusalat
1 fennika
1 appelsína
Salt
Pipar
1 pk. Snowpeas (sykur-
baunir)
Fennikan er skorin í
hárfínar sneiðar, sett
í skál og krydduð
létt með salti, pipar
og grænni ólívuolíu.
Appelsínan er afhýdd
og líka skorin í þunnar
sneiðar og blandað
saman við fennikuna.
Sykurbaunirnar eru
steiktar upp úr smjöri,
svo skelli ég smá hvít-
víni yfir og læt malla.
Eplakaka Svönu
Í desert er uppáhalds-
kakan mín. Jóna fékk
uppskriftina hjá kven-
skörungnum Svönu,
systurdóttur minni.
125 g sykur
125 g smjölíki
125 g hveiti
2 stk. egg
1/2 tsk. lyftiduft
2 msk. mjólk eða rjómi
1 tsk. vanilludropar
2 epli
Hrært í vél, eplin skorin
í sneiðar og raðað ofan
á, kanilsykri stráð yfir
og bakað við 200° C í
20-30 mín. Borin fram
volg með þeyttum
rjóma eða ís.
KJÚKLINGUR KRISTJÁNS OG EPLAKAKA SVÖNU
Léttur réttur FYRIR FJÖLSKYLDUNA
FOOD & FUN hátíðin verður haldin dagana 24.
til 28. febrúar. Heiðursgestur verður René Redzepi,
yfirmatreiðslumaður NOMA í Kaupmannahöfn.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
Snitzel
samloka
Kaffi tería Perlunnar á 4. hæð
Snitzel samloka með súrsuðum rauðlauk,
fersku káli og piparrótarsósu
Allt í steik
4ra rétta veisla frá 4.990 kr.
Aðeins
790 kr.
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447