Fréttablaðið - 04.02.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég er mjög hrifin af þeirri tísku sem er í gangi núna, svolítið rokk-að,“ segir Sigríður Dagbjört, sem stundar nám á viðskiptabraut í Versló. Meðfram skólanum vinnur hún í tískuvöruversluninni Topshop og þegar hún er beðin um aðfrá u áh
mér vel í vetur.“ Sigríður spáir mikið í tísku og fylgist vel með. Fataskápurinn hennar inniheldur þó ekki einungis föt úr Topshop því hún á saumavél sem hún notarmikið
yfirumsjón með búningunum í sýningunni.
„Þetta er rosalega skemmtilegvinna og ég gæti alv hfl
Saumar þegar hægist um
Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir, nemandi í Verzlunarskóla Íslands, heldur utan um búningana í Thriller-
sýningu Versló auk þess að vinna í tískuvöruverslun. Hún fylgist vel með tískunni.
Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir heldur mikið upp á leggings, gróf stígvél og svartar stuttbuxur sem hún fékk í Topshop.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TÍMARITIÐ LOVE tók sér allsérstætt verkefni fyrir hendur
á dögunum. Það fékk átta frægar fyrirsætur til að sitja fyrir í
nákvæmlega sömu stellingunni og síðan voru prentaðar átta
mismunandi forsíður fyrir hverja og eina. Meðal þeirra sem
sátu fyrir voru Kate Moss, Lara Stone og Naomi Campbell.
FIMMTUDAGUR
4. febrúar 2010 — 29. tölublað — 10. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Uppstokkun og uppgjör
„Ég hef fyrir því sterka tilfinningu
að nú sé kominn verulegur skrið-
ur á uppgjörið eftir bankahrunið,“
skrifar Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra. UMRÆÐAN 24
Hillur og skáparSÉRBLAÐ • FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2010
SIGRÍÐUR D. ÁSGEIRSDÓTTIR
Tekur upp saumavélina
þegar um hægist
• tíska
Í MIÐJU BLAÐSINS
Leitar að
Sollu stirðu
Gunnar Helgason býst
við fjölmörgum
umsækjendum.
FÓLK 54
Íslenskir víkingar
umhverfismeðvitaðir
Nýju ljósi varpað á
landnám í riti um
fornleifauppgröft
að Hofsstöðum í
Mývatnssveit.
TÍMAMÓT 32
FÓLK Íslenska hljómsveitin Steed
Lord kemur fram í nýrri tísku-
auglýsingu fyrir fyrirtækið
WESC með leikurunum Jason
Lee og Peter Stormare. Lee er
hvað þekktastur fyrir leik sinn í
sjónvarpsþáttunum My Name Is
Earl en Stormare hefur leikið í
kvikmyndum á borð við Fargo og
Dancer in the Dark. Auglýsinguna
má sjá á heimasíðu fyrirtækisins.
Steed Lord er nú að leggja loka-
hönd á nýja breiðskífu og áætlar
að fara í ferðalag um Bandaríkin í
mars og apríl. - fgg / sjá síðu 54
Steed Lord í Ameríku:
Auglýsa með
stórstjörnum
...er að eiga
alltaf lýsi
VERTU MEÐ Á
BYLGJUNNI OG
FACEBOOK
www.bt.is
BT bæklingurinn
HILLUR OG SKÁPAR
Hugmyndarík hönnun
og sniðugar lausnir
Sérblað um hillur og skápa
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
VIÐSKIPTI Skiptastjóri þrotabús fjárfestingar-
félagsins Saxbygg hefur stefnt fyrri eigendum
fyrirtækisins vegna sölu á erlendum fasteigna-
verkefnum til félaga þeim tengdum, lánveitinga
Saxbygg til eigenda og ráðstöfunar eigna til
fyrirtækja þeim tengdum. Lánin sem eigendur
Saxbygg veittu sjálfum sér samanstanda af
norskum krónum, evrum og pundum og hljóða
upp á 5,3 milljarða króna á núvirði. Skiptastjóri
vill að viðskiptunum verði rift.
Einar Gautur Steingrímsson skiptastjóri
segir að eigendur Saxbygg, Nóatúnsfjölskyldan
svokallaða og eigendur Byggingarfélagsins
Gunnars og Gylfa, hafi stofnað fjögur einka-
hlutafélög. Þau heita Stenia, Aldersgate Invest,
Brandenburg Invest og Cromwell Holdings sem
var móðurfélag hinna þriggja. Inni í hverju
hinna þriggja dótturfélaga voru erlend fast-
eignaverkefni; í Stenia norsk fasteignaverkefni,
Aldersgate hélt utan um fasteignaverkefni í
London í Bretlandi og í Brandenburg var verk-
efni í Berlín í Þýskalandi. Svo virðist sem Sax-
bygg hafi veitt félögunum þremur kúlulán til
kaupa á fasteignunum. Eignirnar eru ekki leng-
ur í félögunum og telur skiptastjóri að þær hafi
verið seldar til fyrirtækja ytra árið 2008. Engir
fjármunir virðast hafa skilað sér í bækur félag-
anna við sölu þeirra.
Skiptastjóri gerir bæði athugasemdir við að
eignirnar voru seldar með kúlulánum og að
þeim hafi verið ráðstafað áfram og því ekki
innan seilingar. „Ekkert var greitt við söluna
heldur átti að greiða það síðar. Það sættum við
okkur ekki við,“ segir Einar Gautur skipta-
stjóri.
Björn Ingi Sveinsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Saxbygg, er framkvæmdastjóri
allra fyrirtækjanna sem um ræðir. „Ég hef
ekkert um þetta að segja, ekki nokkurn skapað-
an hlut,“ segir hann í samtali við Fréttablaðið.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykja-
víkur í dag. - jab / sjá síðu 20
Lánuðu sér 5,3 milljarða
Skiptastjóri þrotabús Saxbygg hefur stefnt Nóatúnsfjölskyldunni og eigendum Byggingarfélags Gunnars og
Gylfa vegna sölu á erlendum fasteignaverkefnum til félags í þeirra eigu. Ekki er vitað hver á eignirnar nú.
HANDBOLTAÆÐI Frábær árangur íslenska landsliðsins í handbolta á síðustu tveimur stórmótum hefur heldur betur glætt áhuga
þjóðarinnar á íþróttinni, eins og sjá mátti á þessum krökkum í Flataskóla í Garðabæ, þar sem þeir léku sér í handbolta utandyra,
og það á gervigrasi. Ár og dagar eru síðan það tíðkaðist að spila handbolta utanhúss. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
Úrkomulaust SV-lands Í dag
verða austan 5-10 m/s en stífari
við S-ströndina. Skýjað með köfl-
um og él við ströndina, einkum
NA-til. Frost víða 0-10 stig.
VEÐUR 4
-2
-2
-5
-4
0
Einstök
byrjun
Aron Pálmarsson
byrjar betur með
landsliðinu en aðrir
meðlimir
bronsliðs-
ins.
ÍÞRÓTTIR 48
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Það er enginn að segja að
bréfið sé hrein syndakvittun en þetta eru ekki
alvarlegar athugasemdir,“ segir Árni Sigfússon,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar, um bréf sem eftir-
litsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent
vegna fjárhagsáætlunar 2010.
Í bréfinu kemur fram að ekkert verði aðhafst
að svo stöddu, en varnaðarorð um forsendur fjár-
hagsáætlunarinnar og fjárhagsstöðu ítrekuð og
óskað sé eftir ársfjórðungslegum upplýsingum um
stöðuna. Það segir Árni eðlilegt.
„Mér finnst ekki sanngjarnt að það sé horft á
að við séum í einhverri gjörgæslu eða undir ein-
hverri smásjá,“ segir Árni. Eðlilegt sé að menn
vilji fylgjast með því að hagræðing í rekstri gangi
eftir. Hann vill ekki kvitta upp á að offjárfesting
hafi verið í Reykjanesbæ síðustu ár.
- pg / sjá síðu 16
Árni Sigfússon segir Reykjanesbæ ekki í gjörgæslu eftirlitsnefndar sveitarfélaga:
Ekki alvarlegar athugasemdir
GETRAUNIR Enginn var með allar
tölur réttar í Víkingalottóinu í
gærkvöldi og gekk stóri potturinn
því ekki út. Fyrsti vinningur var
rúmar 300 milljónir.
Potturinn verður þar af leið-
andi þrefaldur næst og það
þýðir að í honum gætu orðið
upp undir 1,6 milljarðar króna
fyrir sex rétta og ofurtölu. Verð-
ur það stærsti vinningur í sögu
Íslenskrar getspár. - sh
Risapottur í Víkingalottó næst:
Stefnir í 1.600
milljóna pott