Fréttablaðið - 06.02.2010, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI6. febrúar 2010 — 31. tölublað — 10. árgangur
Ekki deilt um megin-
markmið breytinga
SKATTAR 28
MATUR
VIÐTAL 20
Fréttablaðið er með 212% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í nóvember 2009 – janúar 2010.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
73,8%
23,7%
TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG
matur
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]
febrúar 2010
Nýtir alltaf afganga
Margrét Sigfúsdóttir leggur áherslu á hag-
sýni í eldamennsku. SÍÐA 5
Alltaf vinsælar
Helga Sigurbjörnsdóttir kann uppskrift
að kleinum sem klikka ekki.
SÍÐA 6
LITRÍKT
ÆVISKEIÐ
Steingríms Hermannssonar
minnst í máli og myndum
Opið 10–18
Þóra Tómasdóttir ræðir
um fjölmiðla og ný
tækifæri
MINNING 22
CELINE Í
ENDUR-
NÝJUN
LÍFDAGA
TÍSKA 44
ERU ÁLFAR
KANNSKI
MENN?
TÓNLIST 32
Allir vilja kleinur
HLAUPIÐ Á VATNI Þessi ungi maður fór á stökki yfir ísilagða Reykjavíkurtjörnina í kuldanum síðdegis í gær og virtist ekki hafa nokkrar áhyggjur af því að ísinn bæri hann ekki.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STJÓRNMÁL Grundvöllur að nýjum
samningaviðræðum um Icesave er
í sjónmáli. Bjartsýni og jákvæðni
gætir á öllum vígstöðvum. Sam-
ræður stjórnar og stjórnarand-
stöðu á Íslandi síðustu daga hafa
gengið vel og fært menn nær
hvern öðrum. Góður tónn var í
breskum og hollenskum ráðherr-
um á fundi með þremur flokks-
formönnum í Haag fyrir rúmri
viku.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins leggja Bretar og Hol-
lendingar höfuðáherslu á að fá
höfuðstól Icesave-skuldarinnar
greiddan. Nemur hann tæpum
700 milljörðum króna. Lýstu þeir
sig reiðubúna til viðræðna um
hvaðeina annað, svosem afborg-
unartíma og vexti. Á móti kemur
að þeir vilja ekki að málið verði
sett í dóm. Er horft til þess að
vextir verði breytilegir, en ekki
fastir eins og bundið var í fyrri
samninga.
Eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst miðar nú vinnan á
Íslandi ekki síst að því að leita
allra leiða til að hámarka eignir
þrotabús Landsbankans. Erlend-
ir sérfræðingar hafa verið fengn-
ir til ráðgjafar. Nýjustu spár gera
ráð fyrir að eigurnar kunni að
duga fyrir rúmlega níutíu pró-
sentum Icesave-skuldanna. Von-
góðir segja mögulegt að eigurnar
standi undir öllum kostnaðinum.
Niðurstaðan kemur ekki í ljós
fyrr en að nokkrum árum liðnum
þar sem þrotameðferð tekur jafn-
an talsverðan tíma.
Það er Bretum og Hollending-
um nokkurt kappsmál að málinu
verði lokið sem fyrst. Íslensk-
ir stjórnmálamenn eru sömu
skoðunar. Hérlendis óttast menn
raunar að snurða kunni að hlaupa
á þráðinn ef málið tefst úr hófi
fram. Þokist sjáanleg lausn of
nærri fyrirhugaðri þjóðarat-
kvæðagreiðslu um Icesave-lögin
frá því í desemberlok geti spillst
fyrir nýfengnu ágætu samstarfi
formanna flokkanna. Þeir þurfi
að beita sér í kosningabaráttu.
- bþs
Flest bendir til mun
betri Icesave-lausnar
Bretar og Hollendingar leggja höfuðáherslu á að fá höfuðstól Icesave-skuldar-
innar greiddan. Þeir hafa lýst sig reiðubúna til að semja upp á nýtt um afborg-
anir og vexti. Unnið að tæknilegum úrlausnum á hámörkun eigna þrotabús LÍ.
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Helstu verkefni
· Rekstur og fjárfestingar sjóða
· Mat viðskiptatækifæra og greining samkeppnismöguleika· Þátttaka í mótun fjárfestingastefnu sjóðanna
Ármúla 13a · www.mp.is
Við viljum ráða framkvæmdastjóra með
reynslu af fjárfestingum og störfum á
verðbréfamarkaði. Viðkomandi þarf að
hafa ríka ábyrgðartilfinningu, frumkvæði
og góða samskiptahæfileika. Hæfni til að
greina viðskiptatækifæri og stýra þróun
og eflingu framboðs sjóða er einnig skilyrði.
Menntunar og hæfniskröfur
· Mikil reynsla af störfum á verðbréfamarkaði, þ.m.t. reynsla af eignastýringu
· Háskólamenntun á sviði verkfræði, hagfræði og/eða viðskipta
· Próf í verðbréfaviðskiptum í samræmi við 53. gr. laga um fjármálafyrirtæki
· Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
· Góðir samskiptahæfileikar
MP sjóðir eru með 7,4 milljarða í stýringu en ríkisskuldabréfasjóður MP hóf starfsemi í nóvember 2008. MP Sjóðir hf., sem er dótturfélag MP Banka hf., er fjármálafyrirtæki með
starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingarsjóða skv. 7. tölul. og b-lið 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. og 1.-3. tölul. 1. mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Starfsleyfið tekur til reksturs verðbréfa- og fjárfestingarsjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu skv. 7. tölul. 1. mgr. 3. gr. og til eignastýringar, fjárfestingarráðgjafar
og vörslu og stjórnunar fjármálagerninga í sameiginlegri fjárfestingu skv. 1.-3. tölul. 27. gr. laga nr. 161/2002. MP Sjóðir hf. hafa útvistað hluta af daglegum rekstri til MP Banka hf.
á grundvelli 18. gr. laga um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði, nr. 30/2003.
Framkvæmdastjóri MP Sjóða
Nánari upplýsingar veitir Hildur
Þórisdóttir, starfsmannastjóri
MP Banka, hildur@mp.is. Umsóknar-
frestur er til og með 15. febrúar n.k.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir
að sækja um starfið á heimasíðu
MP Banka, www.mp.is/starfsumsokn
eða senda umsóknir á starf@mp.is.
SPENNANDI STÖRF HJÁ TRAUSTU FYRIRTÆKI
Hjá Eimskip starfar fjölbreyttur og skemmtilegur hópur öflugra starfsmanna og nú leitum við að einstaklingum til að slást í þann hóp og takast á við spennandi framtíðarstörf.
Ráðgjafi í flugþjónustu
Vegna aukinna umsvifa leitum við að ráðgjafa í sölu og þjónustu flugflutninga sem er hluti af þjónustu
innflutningsdeildar. Ráðgjafi í flugþjónustu ber ábyrgð á faglegri ráðgjöf, sölu, tengslum við viðskiptavini
og heildarþjónustu vegna flugþjónustu Eimskips.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Færni í mannlegum samskiptum og
framúrskarandi góð þjónustulund
• Hröð og nákvæm vinnubrögð
• Frumkvæði og skipulagshæfileikar
• Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta
Eimskip býður alhliða flugþjónustu við inn-
og útflytj d í fi
Verkefnastjóri í upplýsingatækni
Upplýsingatæknideild ber ábyrgð á rekstri upplýsinga-tæknikerfa Eimskips. Helstu verkefni verkefnastjóra eru þróun og viðhald á samþættingarlausnum og innleiðing á SAP PI, auk þess að sinna gæðaeftirliti á núverandi lausnum í Web Methods og samskiptum við verktaka.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á svið kerfis-
eða tölvunarfræði
• Verkefnastjórnun
• Þekking á SAP viðskiptakerfi
• Mjög góð enskukunnátta í rituðu
og töluðu máli
Bifvélavirki
Á vélaverkstæði Eimskips á Húsavík annast bifvélavirkjar véla- og tækjaviðgerðir á eignum Eimskips víðsvegar af landinu. Fyrir réttan aðila er í boði fjölbreytt og
krefjandi framtíðarstarf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistarapróf í bifvélavirkjun
er æskilegt
• Reynsla af viðgerðum á tækjum
og vögnum
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð þjónustulund og jákvæðni
• Íslenskukunnátta
Vélstjóri á flutningaskip
Eimskip vill ráða vélstjóra með full réttindi á skip
félagsins. Almennt gildir að siglt er í 2 vikur og frí
í 2 vikur. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Full réttindi STCW samkvæmt reglum
lll/1, lll/2 og lll/3
• Nauðsynlegt að geta unnið undir álagi
• Jákvæðni og þjónustulund
• Íslenskukunnátta
Einnig er möguleiki á ráðningum í stöður vélstjóra
með minni réttindi, STCW lll/3.
P
IP
A
R
\ T
B
W
A
•
S
Í A
•
1
0
03
2 2