Fréttablaðið - 06.02.2010, Síða 4
4 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
Í grein Einars Benediktssonar 30.
janúar misritaðist málsgrein sem er
svofelld rétt: Þá er ljóst að í því opna
umhverfi viðskipta og efnahagslegra
samskipta sem ríkjandi verður í
heiminum getur Ísland ekki búið við
kerfi peningamála sem byggir á eigin
gjaldmiðli.
LEIÐRÉTTING
GENGIÐ 05.02.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
231,2663
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,47 129,09
201,71 202,69
175,70 176,68
23,596 23,734
21,367 21,493
17,173 17,273
1,4348 1,4432
197,78 198,96
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
HEILBRIGÐISMÁL Komum á bráða-
þjónustu geðsviðs Landspítalans
fjölgaði um rúm tíu prósent frá því
að hrun hófst í október 2008 og til
loka september 2009. Notkun geð-
lyfja hefur hins vegar staðið í stað,
eða heldur minnkað á sumum teg-
undum á milli ára 2008 og 2009.
Tíðni sjálfsvíga hefur ekki breyst
og sjálfsvígstilraunum sem leiða
til komu á sjúkrahús hefur fækk-
að verulega allt frá árinu 2006 til
2009.
Þetta kom fram í viðtali Frétta-
blaðsins við Pál Matthíasson, fram-
kvæmdastjóra geðsviðs LSH, og
Matthíasi Halldórssyni aðstoðar-
landlækni.
„Á fyrstu þremur mánuðum eftir
hrunið varð sautján prósent aukn-
ing á komum á bráðamóttöku, sem
hefur heldur jafnast út,“ útskýrir
Páll. „Innlögnum á bráðageðdeildir
fjölgaði um rúm sex prósent 2008-
09. Hins vegar fækkar legudögum
vegna styttri legutíma sjúklinga.
Meðallegutími nú er ellefu dagar á
bráðageðdeildum, en heldur styttri
fyrir flesta.“
Páll segir að fækkun legudaga
stafi meðal annars af því að betur
gangi nú en áður að koma fólki í
önnur úrræði eftir dvöl á geðdeild.
Þetta þýði að geðsviðið hafi meiri
getu til að taka inn nýja sjúklinga.
Aukning í innlögnum felist ekki í
því að fólk sé að koma aftur vegna
þess að það hafi verið útskrifað of
snemma.
Matthías bætir við að opnuð hafi
verið ný móttaka í kjölfar hruns.
„Hún var mjög lítið notuð svo
henni var fljótlega lokað aftur,“
segir hann.
„Hvað sjálfsvígin varðar hafa
meðaltöl þeirra verið 35 á síðustu
tíu árum. Bráðabirgðatala fyrir árið
2009 er 32 sjálfsvíg.“
Páll segir fólk þurfa að vera með-
vitað um að kreppa hafi áhrif á
heilsufar, einkum andlega heilsu.
Jaðarhópum hætti til að lenda í
vanda, svo sem öldruðum, útlend-
ingum, fólki með geðfatlanir og
börnum þessara hópa.
„Það verður að halda sérstaklega
utan um þetta fólk og standa vörð
um það.“
Páll segir eftirtektarvert að inn-
lögnum vegna áfengis- og vímu-
efna hafi fjölgað um rúm sex pró-
sent milli 2008 og 2009.
„Heildarniðurstaðan er sú, að
álagið hefur aukist jafnt og þétt á
geðsviðið,“ segir Páll, „meðan fjár-
veitingar hafa verið skornar niður
um 4,6 prósent 2009 og 6,9 prósent
2010“. jss@frettabladid.is
Fleiri á bráðamóttöku
geðsviðs eftir hrunið
Komum fólks á bráðaþjónustu geðsviðs LSH fjölgaði um sautján prósent fyrstu
þrjá mánuðina eftir bankahrunið. Frá október 2008 til loka september 2009 var
aukningin tíu prósent. Geðlyfjanotkun og tíðni sjálfsvíga standa í stað.
GEÐDEILD LANDSPÍTALA Álagið á geðsvið Landspítala - háskólasjúkrahúss hefur auk-
ist jafnt og þétt meðan fjárveitingar hafa verið skornar niður um 4,6 prósent 2009 og
6,9 prósent 2010.
KOMUR Á BRÁÐA-
ÞJÓNUSTU GEÐSVIÐS
Tímabil fjöldi aukning
01/10/08 - 30/09/09 6.545 10,0%
01/10/07 - 30/09/08 5.942
01/10 - 31/12 ‘08 1.624 16,5%
01/10 - 31/12 ‘07 1.394
01/01 - 31/12 ‘09 6.481 5,0%
01/01 - 31/12 ‘08 6.172 7,9%
01/01 - 31/12 ‘07 5.718
SJÁLFSVÍGSTILRAUNIR
og hugsanlegar sjálfsvígstilraunir
2006 252
2007 223
2008 198
2009 178
HEIMILD: LANDSPÍTALI
HEIMILD: LANDSPÍTALI
VIÐSKIPTI Svo kann að fara að fag-
fjárfestum, svo sem lífeyrissjóð-
um, verði boðið að kaupa stóran
hlut Arion banka í Högum í lok-
uðu útboði fyrir skráningu félags-
ins á markað seinni hluta árs og
þeir verði mótvægi við aðra hlut-
hafa félagsins sem fá að kaupa í
opnu útboði. Finnur Sveinbjörns-
son, bankastjóri Arion banka,
segir þetta á meðal þeirra hug-
mynda sem unnið sé með í samráði
við erlendan ráðgjafa í útfærslu á
útboðsferlinu.
Finnur segir ekkert standa gegn
því að einstakir hluthafar og aðilar
þeim tengdir geti tryggt sér meira
en 33 prósenta hlut í Högum. Gerist
það eru þeir skyldir til að gera
öðrum hluthöfum yfirtökutilboð
lögum samkvæmt. Aðrir hluthafar
munu þá þurfa að vega það og
meta, að sögn Finns. Samkvæmt
samkomulagi um skráningu Haga
fá eigendur og stjórnendur Haga
að kaupa allt að fimmtán prósenta
hlut Arion banka í Högum. Þar af
getur Jóhannes Jónsson, stofnandi
Bónuss og stjórnarformaður Haga,
keypt tíu prósenta hlut.
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
og framkvæmdastjórar eiga nú um
tveggja prósenta hlut í félaginu.
Finnur sagði í samtali við Frétta-
blaðið í gær að stjórnendur fyr-
irtækisins og hópur starfsfólks
myndu nýta rétt sinn. Erlendir
fjárfestar koma ekki að fjárfest-
ingunni, að hans sögn. - jab
FINNUR SVEINBJÖRNSSON Verði yfir-
tökutilboð lagt fram í Haga eftir skrán-
ingu félagsins í Kauphöll verða aðrir
hluthafar að meta hvort þeim finnist
það sanngjarnt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ekki útilokað að Hagar komist aftur í eigu fárra eftir skráningu á markað:
Fagfjárfestar verða mótvægi
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
7°
1°
0°
5°
2°
2°
0°
0°
22°
7°
15°
-1°
17°
-2°
7°
14°
-2°
Á MORGUN
3-8 m/s en
hvassara allra syðst.
MÁNUDAGUR
Austlæg eða
breytileg átt.
1
0
-4
-2
-4
0
0
3
3
5
-6
8
7
5
3
4
3
3
8
8
15
6
3
-1
0
1
3 3 3
1
-10
LITLAR
BREYTINGAR
Næstu dagar verða
tíðindalitlir. Vindur
verður austlægur
og fremur hægur
nema allra syðst,
þar má búast við
strekkingi. Yfi rleitt
verður bjart með
köfl um og él á
stöku stað. Heldur
dregur úr frosti á
morgun og mánu-
daginn.
Soffía
Sveinsdóttir
Veður-
fréttamaður
HEILBRIGÐISMÁL Niðurskurður á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
verður ekki jafnmikill og forsvars-
menn hennar töldu áður óhjá-
kvæmilegt. Á fundi stjórnenda
stofnunarinnar með heilbrigðis-
ráðherra í gær kom fram að áhrif
skertra framlaga á rekstur stofn-
unarinnar hefðu verið ofmetin, að
því er segir í tilkynningu.
„Vegna þessa er ljóst að stjórn
HSS verður að endurmeta fyrri
ákvarðanir og standa vonir til að
hægt verði að halda þjónustu við
sykursjúka áfram opinni og sama
er að segja um sálfélagslegu þjón-
ustuna. Þá verður almenn móttaka
lækna um helgar áfram opin,“
segir í tilkynningu. - sh
Ofmátu áhrif skertra framlaga:
Minna skorið
niður hjá HSS
SVEITARFÉLÖG Skíðafélag Ólafs-
fjarðar hefur keypt snjófram-
leiðslukerfi Norðfirðinga í Odd-
skarði. Kerfið, sem keypt var
árið 2006, var selt á þrjá milljónir
króna. Austurglugginn greinir frá
þessu.Í frétt blaðsins kemur fram
að söluandvirðinu verði varið til
framkvæmda á skíðasvæðinu í
Oddskarði, meðal annars stækkun
bílastæðis og uppsetningu á
snjósöfnunargirðingum. - bþs
Norðfirðingar selja snjóbyssur:
Ólafsfirðingar í
snjóframleiðslu
Vegna fyrirhugaðra áheyrnarprufa
vegna hlutverks Sollu stirðu, sem fara
fram á Hilton Nordica laugardaginn
13. febrúar, er rétt að taka fram að
aldursbilið er 8-28 ára.
ÁRÉTTING
LÖGREGLUMÁL Þrír karlmenn voru
teknir fyrir vímuakstur í Reykja-
vík í fyrradag.
Karlmaður á fimmtugsaldri
var tekinn fyrir ölvunarakstur.
Hann hafði lent í árekstri í Álf-
heimum í hádeginu og stakk af
frá vettvangi. Hann var stöðv-
aður og handtekinn skammt
frá. Maðurinn hafði þegar verið
sviptur ökuleyfi.
Þá voru tveir ökumenn teknir
fyrir að aka undir áhrifum fíkni-
efna. Báðir voru stöðvaðir um
miðjan dag, annar í miðborginni
en hinn í Háaleitishverfi. Annar
þeirra hafði þegar verið sviptur
ökuleyfi. Í bíl hins fundust ýmsir
munir sem grunur leikur á að séu
þýfi. - jss
Höfuðborgarsvæðið:
Þrír teknir í
vímuakstri
FERÐAMÁL Hin árvissa Mid-Atl-
antic kaupstefna Icelandair hófst
á fimmtudag og stendur fram
á sunnudag. Markmiðið er sagt
vera að tengja saman kaupend-
ur og seljendur ferðaþjónustu í
Bandaríkjunum og Evrópu.
„Fulltrúar á Mid-Atlantic eru
nú um 500 alls frá fjórtán lönd-
um. Að þessu sinni koma mun
fleiri fulltrúar erlendis frá en
undanfarin ár, eða um 350,“ segir
á vef Ferðamálastofu. „Þar af er
von á um 150 kaupendum ferða-
þjónustu frá Bandaríkjunum og
Kanada, sem sýnir óvenjumikinn
áhuga.“
- óká
Mid-Atlantic ráðstefna:
Nú koma fleiri
frá útlöndum
Höfðingleg gjöf
Lionshreyfingin á Íslandi hefur fært
Slysavarnafélaginu Landsbjörgu eina
milljón króna til kaupa á tveimur raf-
stöðvum fyrir Íslensku alþjóðabjörg-
unarsveitina en slíkar rafstöðvar eru
meðal þess búnaðar sveitarinnar sem
skilinn var eftir á Haítí þegar sveitin
fór til hjálparstarfa þar.
ÖRYGGISMÁL
Minnt á 112
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur
í samstarfi við Námsgagnastofnun
gefið út smálestrarbókina Númi og
konurnar þrjár. Bókin er til lestrarþjálf-
unar auk þess sem henni er ætlað
að vekja ungmenni til vitundar um
mikilvæg atriði í tengslum við slysa-
varnir. Einnig minnir hún á neyðar-
númerið 112.
ÖRYGGISMÁL