Fréttablaðið - 06.02.2010, Side 10

Fréttablaðið - 06.02.2010, Side 10
 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR Námskeið í tölvufærðu bókhaldi Velkomin 569 5100 skyrr@skyrr.is Námskeiðið hefst 15. febrúar og verður kennt fyrir hádegi mánudaga til fimmtudaga í 4 vikur. Helstu þættir sem farið verður í: ▪ Grunnur ▪ Innkaup og birgðir ▪ Sala ▪ Samþykktarkerfi ▪ Fjárhagur ▪ Laun ▪ Innheimtukerfi ▪ Tollakerfi Á námskeiðinu eru afhent vönduð kennslugögn sem koma að góðum notum til frekari færni í tölvufærðu bókhaldi. Flest stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 75% af námskeiðsgjöldum. VR veitir styrk fyrir allt að 75% af námskeiðsgjöldum eftir inneign og réttindum. Þeir sem koma á vegum VR eða VMST fá að auki 25% styrk frá Skýrr. Fullt verð fyrir námskeiðið án aðkomu stéttar- félags, VR eða VMST er 89.000 kr. Nánari upplýsingar eru á skyrr.is og í síma 569 5100. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á skyrr@skyrr.is ISO 27001 IS 542464 Nú býðst þér yfirgripsmikið námskeið hjá Skýrr í tölvufærðu bókhaldi sem er að mestu leyti niðurgreitt af Vinnumála- stofnun (VMST) og þínu eigin stéttarfélagi. OPNUN KOSNINGASKRIFSTOFU Karen E. Halldórsdóttur OG MYNDLISTARSÝNING Hfjörð. Opnun 6. febrúar milli 14 -16. Bæjarlind 14 - 16, KópavogiPR Ó FK JÖ R SJ Á LF ST Æ Ð IS FL O K K SI N S 20 . F EB R Ú A R K Ó P A V O G U R - G E R U M E N N B E T U R KAREN Í 4. SÆTI Vilja öryggi Skorað hefur verið á stjórnvöld að tryggja öryggi sjó- manna við landið með því að veita nægu fjármagni til Gæslunnar. Myndi fólk í landi sætta sig við að vera án sjúkrabíla? spyrja sjómenn. TF-LÍF Öryggisreglur LHG kveða á um að ekki sé farið út fyrir 20 sjómílur nema öryggi flugáhafnar sé tryggt. Það er gert með annarri þyrlu á bakvakt eða að skip á flugleiðinni sé ekki meira en klukkustund að sigla að þyrlunni brotlendi hún í sjón- um. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Er það svo að Landhelgis- gæslan geti ekki haldið úti lögbundnu hlutverki sínu nema með þeim pening- um sem hún hefur haft og er lítið hægt að skerða þau framlög? Að þessu spyr ég mig þessa dagana. Allt sem gert er virðist ógna öryggi sjómanna og það er hrikalegt að þurfa að horfast í augu við það,“ segir Ragna Árnadóttir dómsmála- ráðherra, um stöðu Landhelgisgæsl- unnar. En mun hún beita sér fyrir því að LHG verði tryggt fjármagn til að halda úti tveimur þyrluvöktum? „Við komum alltaf að því að sama. Hvaðan eiga þessir peningar að koma? En ef það er engin önnur leið til að spara en að fækka þyrlum eða áhöfnum þeirra finnst mér komin upp sú staða að ríkisstjórnin þurfi að taka ákvörðun um hvað skuli gera. Við erum að tala um þjónustu sem er jafn mikilvæg og margt annað sem við teljum sjálfsagt – til dæmis sjúkrahús og heilsugæsla.“ Ragna segist skilja áhyggjur sjómanna og niðurskurður hjá LHG sé mjög við- kvæmt mál. „Blessunarlega tókst að koma sjómanninum heim óhultum í þessu tilviki. Ég verð að segja að það gengur ekki að fólk sé með lífið í lúkunum í orðsins fyllstu merk- ingu. Þetta atvik gefur fullt tilefni til að ráðuneytið og Gæslan fari yfir þetta.“ HRIKALEGT AÐ HORFAST Í AUGU VIÐ ÞETTA RAGNA ÁRNADÓTTIR ÖRYGGISMÁL Samtök útvegsmanna og sjómanna skora á stjórnvöld að efla starfsemi Landhelgisgæslunn- ar svo hún fái sinnt lögbundnu eft- irlits- og öryggishlutverki sínu. Til- efnið er alvarleg veikindi sjómanns um helgina á togaranum Sturlaugi Böðvarssyni. LHG gat ekki orðið við beiðni um aðstoð þar sem skip- ið var um sjötíu sjómílur frá landi og aðeins ein þyrluvakt til taks. Við slíkar aðstæður er þyrla ekki send lengra en tuttugu mílur á haf út. Jakob Örn Haraldsson, skipsverji á Sturlaugi, lýsti því í viðtali við Fréttablaðið í gær hversu hastar- lega hann veiktist. Í bráðaaðgerð á Landspítalanum kom í ljós að æð til hjartans var nær alveg stífluð og hann því í bráðri lífshættu. Tog- arinn var um tíu klukkustundir að sigla í land og var Jakobi „haldið gangandi“ á sprengitöflum og súr- efni, eins og hann orðaði það. Landssamband útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og VM - félag vélstjóra og málm- tæknimanna sendu frá sér áskorun í gær vegna þessa máls sem und- irstriki að niðurskurður á rekstr- arfé LHG ógni öryggi sjómanna á hafi úti. Þeir minna á að Landhelg- isgæslunni er ætlað að sinna mjög víðfeðmu hafsvæði og hún gegni mikilvægu öryggishlutverki fyrir íslenska sjómenn. „Upp geta komið tilvik eða aðstæður, þar sem tími til björgunar er svo naumur að þyrla er eina tækið sem sjómenn geta treyst á. Þótt þrengingar séu í ríkisrekstri er það dýrkeyptur sparnaður að vega að ákveðnum grunnþáttum á borð við þyrluþjón- ustu LHG og þar með öryggi sjó- manna á hafi úti. Í viðtölum Fréttablaðsins við sjómenn er undantekningarlaust lýst áhyggjum af þeirri stöðu sem komin er upp. Eftir stendur spurn- ing þeirra um hvort það sé réttlæt- anlegt, og þá í ljósi staðhæfinga stjórnvalda um að byggja upp vel- ferðarríki að norrænni fyrirmynd, að hluti þjóðarinnar þurfi að sætta sig við að lifa í óvissu um hvort hann verði sóttur þegar alvarleg veikindi eða slys ber að höndum. Flugdeildin er dýrasti rekstrar- þáttur LHG eða um 60 prósent af heildarkostnaði sem er þrír millj- arðar króna. Talið er að með 400 til 500 milljóna króna framlagi rík- isins væri hægt að reka flugdeild- ina eins og gert var ráð fyrir eftir brotthvarf varnarliðsins og kraf- ist er af samtökum sjómanna og útvegsmanna. svavar@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.