Fréttablaðið - 06.02.2010, Síða 13
LAUGARDAGUR 6. febrúar 2010
SKIPULAGSMÁL Lúðvík Geirsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir
að þrátt fyrir formlegt svar frá
Rannveigu Rist, forstjóra Alcan
á Íslandi, séu enn atriði sem
þarfnist útskýringar varðandi
viðhorf fyrirtækisins til nýrr-
ar íbúakosningar um stækk-
un álversins í Straumsvík. Þetta
kom fram á síðasta fundi bæjar-
ráðs. Þar benti áheyrnarfulltrúi
Vinstri grænna á að álversfor-
stjórinn hefði sagt að fyrirtækið
sæktist ekki eftir stækkun. Þess
utan komi fram í svari fyrirtæk-
isins að það hafi ekki aðgang að
orku sem þurfi fyrir stækkunina.
- gar
UPPLÝSINGATÆKNI Íslenska vírus-
vörnin Lykla-Pétur (F-PROT Ant-
ivirus í útlöndum) hefur fengið
svokallaðan
VB100-gæða-
stimpil tíma-
ritsins Virus
Bulletin.
Með VB100-
vottuninni er
Lykla-Pétur
sagður settur í
hóp öflugustu
vírusvarna
heims, en Virus
Bulletin prufu-
keyrir reglulega allar helstu
vírusvarnir sem í boði eru.
VB100-vottunin hefur verið
veitt frá árinu 1998, en til þess
að fá slíkan gæðastimpil verður
vírusvörn að sýna fram á að hún
grípi alla tölvuóværu sem gengur
laus, bæði í skönnun og í vöktun.
Þá má vírusvörnin ekki mis-
greina hreinar skrár sem vírusa
þegar leitað er í ósýktum skrám.
Friðrik Skúlason ehf. fram-
leiðir Lykla-Pétur. - óká
Vírusvörnin Lykla-Pétur:
Fær VB100
gæðastimpilinn
FRIÐRIK SKÚLASON
ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK Bæjarstjórinn í
Hafnarfirði óskar nánari upplýsinga frá
Alcan.
Lóð undir nýja slökkvistöð
SHS fasteignum, dótturfélagi Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins bs., hefur
verið úthlutað lóð við Skarhólabraut
í Mosfellsbæ undir slökkvi- og lög-
reglustöð.
MOSFELLSBÆR
Fyrirhuguð íbúakosning vegna stækkunar álversins:
Bæjarstjórnin vill fá
skýrari svör frá Alcan
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fann hundrað kannabisplöntur við
húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Grafar-
holti í fyrradag. Karlmaður á þrítugs-
aldri játaði aðild sína að málinu.
LÖGREGLAN
Tók 100 kannabisplöntur
SAMFÉLAGSMÁL Björgunarfélagið
Eyvindur fékk fyrir skömmu að
gjöf hjartastuðtæki frá Kvenfélagi
Hrunamannahrepps.
„Tækið er mikið öryggistæki en
íbúar sveitarfélagsins eru um 800
auk þess sem fjölmörg frístunda-
hús eru í hreppnum. Kvenfélagið
styrkti kaup á þessu tæki, með því
að láta allan ágóða af veitingasölu
á aðventuhátíð sem haldin var í
desember síðstliðnum renna til
kaupa á tækinu,“ að því er fram
kemur á vef björgunarfélagsins.
Að auki gáfu velunnarar góðra
málefna í sveitarfélaginu og þar
eiga frístundahús 100 þúsund
krónur til styrktar verkefninu. - óká
Björgunarfélagið Eyvindur:
Fékk gefins
hjartastuðtæki
Frelsisher gegn sjóránum
Frelsisher fólksins í Kína (PLA) tekur
þátt í baráttu gegn sjóræningjum
undan ströndum Sómalíu. South
China Morning Post greindi nýver-
ið frá því að til skoðunar væri að
hermenn yrðu um borð í skipum frá
Hong Kong á hættulegum siglinga-
leiðum.
KÍNA
Menntun og vöxtur
DAGSKRÁ
Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI
- Störfin og menntunin
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra
Iðnmeistarakerfi í mótun
Ingi Bogi Bogason, Kristrún Ísaksdóttir, Ferdinand Hansen
og Baldur Gíslason greina frá stöðu þess
Styrkur SI til kennslu á vinnustað verður afhentur
Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
- Háskólamenntun til vaxtar
Sigurður Ólafsson, fræðslustjóri Alcoa og
Iðunn Kjartansdóttir sérfræðingur hjá IÐUNNI fræðslusetri
- Hvernig er mannauður mótaður og metinn?
Fundarstjóri er Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri MENTOR
Hvernig treystir menntakerfið undirstöður atvinnulífsins?
Hvaða hlutverki gegna skólar í að byggja upp íslenskt atvinnulíf?
Felur hagræðingarkrafa í menntakerfinu í sér tækifæri til sóknar?
Samtök iðnaðarins bjóða til málþings
miðvikudaginn 10. febrúar frá kl. 9 til 12
á Grand Hóteli Reykjavík.
Málþingið er opið meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis.
Skráning fer fram á mottaka@si.is.
Aukin þekking gefur iðnaðinum takmarkalausa möguleika til vaxtar og nýsköpunar.
Iðnfyrirtæki treysta á öflugt menntakerfi.
Málþing á Menntadegi iðnaðarins 2010
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
50 kassar utan um augnakonfekt.
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is