Fréttablaðið - 06.02.2010, Qupperneq 36
6. febrúar
2010
2
Kaffibarþjónafélag Íslands stend-
ur fyrir Íslandsmóti í fagsmökkun
á kaffi sem fram fer í kaffihúsinu
Kaffismiðjunni á morgun.
Þetta er í fimmta sinn sem slíkt
mót er haldið hér á landi og gengur
fagsmökkun út á að greina á milli
tveggja kaffitegunda í svokallaðri
þríhyrningssmökkun. Þátttakend-
ur dreypa á þremur bollum sem
allir innihalda kaffi, tveir bollar
innihalda sömu tegund af kaffi
en sá þriðji er öðruvísi. Mark-
mið þátttakenda er að greina, með
aðstoð bragð- og lyktarskyns, hver
þessara þriggja er öðruvísi. Alls
eru þríhyrningarnir átta talsins
og er sá þátttakandi hlutskarp-
astur sem hefur flesta rétta á sem
skemmstum tíma. Fagsmökkun er
ein af fjórum kaffitengdum keppn-
isgreinum sem veita sigurvegara
keppnisrétt á heimsmeistaramót-
inu sem haldið verður í London í
júní.
Sonja Björk Grant, formaður
Kaffibarþjónafélagsins, segir
fagsmökkunina vera spennandi
keppni sem gaman er að fylgjast
með. „Þetta er skemmtilegt að því
leyti að það eru ekki dómarar sem
dæma sigurvegara heldur er þetta
eins konar tímaþraut þar sem
keppendur þurfa að leysa þrautina
á sem skemmstum tíma. Við erum
heldur ekki að gera keppendum
auðveldara fyrir því oft eru kaffi-
tegundirnar mjög líkar. Stundum
er þetta hreinn kvikindisskapur og
ég man eftir einu tilfelli þar sem
báðar tegundirnar voru úr baunum
frá Gvatemala en ekki frá sama
héraðinu. Maður þarf því að vera
með vel þjálfaða bragðlauka til að
sigra í þessari keppni,“ segir Sonja
Björk.
Íslendingum hefur gengið vel á
heimsmeistaramótum undanfarin
ár og hrepptu meðal annars annað
sætið, sem er jafnframt okkar
besti árangur. Sonja Björk segir
Norðurlöndin ávallt standa sig
vel á þessum mótum enda miklar
kaffidrykkjuþjóðir.
Keppnin hefst klukkan 13 í hús-
næði Kaffismiðjunnar á Kárastíg 1.
sara@frettabladid.is
Keppt í kaffismökkun
Íslandsmótið í fagsmökkun á kaffi fer fram á kaffihúsinu Kaffismiðjunni á morgun. Sonja Björk Grant,
formaður Kaffibarþjónafélagsins, segir keppnina spennandi enda sé um eins konar tímaþraut að ræða.
Á Þjóðminjasafni Íslands er að
finna marga áhugaverða hluti
sem gaman er að skoða með
fjölskyldunni.
Á Þjóðminjasafninu eru sérstök
svæði helguð skemmtimenntun
fyrir börn og fullorðna. Boðið er
upp á margs konar fræðslu- og
skemmtiefni fyrir fjölskyldur auk
skemmtilegra leikja þar sem fjöl-
skyldur leysa saman ýmsar þraut-
ir eða fara í ratleiki um safnið.
Þegar búið er að skoða safnið er
hægt að fá sér hressingu á kaffi-
húsinu Kaffitári, sem er á fyrstu
hæð safnsins. Einnig er tilval-
ið að heimsækja safnbúðina sem
býður upp á gott úrval af þjóð-
legum leikföngum og bókum eða
kíkja á sýninguna Ævispor, þar
sem sýnd eru útsaumsverk eftir
Guðrúnu Guðmundsdóttur.
„Á sunnudaginn er tveir fyrir
einn á safnið og að venju er frítt
inn fyrir börn. Við bjóðum upp á
sérstaka barnaleiðsögn klukkan
14.00 á sunnudag þar sem farið
verður um safnið og sagðar sögur
af beinagrindum, vopnum og æva-
fornum skó. Leiðsögnin sem í boði
er á sunnudaginn er ætluð börnum
á aldrinum 5 til 8 ára, en auðvit-
að mega eldri börn koma með ef
þau vilja,“ segir Helga Vollertsen,
kynningarstjóri Þjóðminjasafns-
ins. Slík barnaleiðsögn fer fram
fyrsta sunnudag hvers mánaðar
og að sögn Helgu hefur leiðsögn-
in ávallt verið vel sótt.
Fjölskyldur geta einnig tekið
þátt í skemmtilegum ratleik sem
hægt er að nálgast í afgreiðslu
safnsins og heimsótt skemmtiher-
bergið þar sem börn og fullorðnir
geta meðal annars mátað herklæði
og aðra búninga. Þegar búið er að
skoða safnið er hægt að heim-
sækja safnbúðina og kaupa gam-
aldags bolluvönd eða öskupoka.
- sm
Ratleikur á meðal fornminja
Að sögn Helgu Vollertsen er ýmislegt í boði fyrir fjölskyldur á Þjóðminjasafninu, þar á
meðal skemmtilegur ratleikur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sonja Björk Grant, formaður Kaffibarþjónafélagsins, segir keppni í fagsmökkun á kaffi spennandi. Þátttakendur þurfa að vera
með vel þjálfaða bragðlauka til að sigra í keppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
OPINN HLÁTURJÓGATÍMI verður hjá Manni lifandi í dag frá klukk-
an 10.30 til 11.30. Hláturjóga er blanda af hláturæfingum og jógaöndun.
Hláturjóga verður á dagskrá í vetur fyrsta laugardag í hverjum mánuði.
NÁMSKEIÐ Í BAKNUDDI
helgina 13 – 14 febrúar nk.
frá kl. 10.00 – 14.00
Verð: kr. 20.000 innifalið í verði ilmolíufl aska og
mappa. Ath! aðeins 6 manns í hóp.Námskeiðið
byggist upp á slökunarnuddi á bak, háls og
handleggi með sérvöldum ilmkjarnaolíum.
Djúp- og þrýstipunktanuddi ásamt svæða-
meðhöndlun. Farið í ilmolíur og góðar uppskriftir.
Upplýsingar í síma 552 1850 / 896 9653.
Sjá www.heilsusetur.is E-mail: prema@mmedia.is
Ef halda skal veislu, námskeið eða hópefli eru fáir staðir betur
staðsettir en Grímsá sveitasetur. Tökum að okkur allar tegundir
af veislum og uppákomum.
Glæsilegur salur sem tekur 10-70 manns og gisting fyrir allt að
36 manns. Í húsinu er gufubað og heitur pottur svo hægt er að
slaka vel á eftir góðan dag.
Veislu- og fundarhöld
á glæsilegu sveitasetri í fallegu og afslöppuðu umhverfi.
Pöntunarsímar:
6180083 & 4370083
www.grimsa.is
NÁMSKEIÐ Í
UNGBARNANUDDI
fi mmtudaginn 11 febrúar nk. kl. 14.00
fyrir foreldra ( 2ja til 8 mánaða ) ungbarna.
Hefur reynst vel við kveisu lofti í þörmum
og svefnvandamálum og stuðlað að
tengslamyndun allhliða værð og velllíðan.
Viðurkendur ungbarnanuddkennari
með yfi r 20 ára reynslu. Uppl.
www.heilsusetur.is og í síma 8969653
Stórhöfði 17
(gengið inn um Veggsport)
Sími: 695 8464 og 772 1025
www.jogastudio.org
Ný og persónuleg jógastöð
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447