Fréttablaðið - 06.02.2010, Síða 44
Laust starf hjá Lyfjastofnun
Sérfræðingur á sviði upplýsinga og
skjalavistunar
Lyfjastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi starfsmann til starfa.
Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf.
Upplýsingar um starfið gefur Þórhallur Hákonarson, fjármálastjóri , sími 520 2100. Launakjör
eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsókn um starfið óskast send, ásamt
upplýsingum um fyrri störf og meðmælum, t il Lyfjastofnunar merkt: Starfsumsóknir
Umsóknarfrestur er t il og með 21. febrúar 2010.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknareyðublað ásamt nánari upplýsingum um Lyfjastofnun má finna á vefsíðu stofnunarinnar
www.lyfjastofnun.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun á sviði upplýsinga og skjalavistunar
• Frumkvæði og metnaður í starfi
• Reynsla í skjalastjórnun nauðsynleg
• Reynsla af mannaforráðum æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Góð tölvufærni
• Góð íslenskukunnátta
• Góð enskukunnátta nauðsynleg
Helstu verkefni eru m.a.:
• Uppbygging nýrrar þjónustudeildar
• Skipulag skjala/-gagnageymslu stofnunarinnar
• Þróun verkferla í samstarfi við önnur svið stofnunarinnar
• Þátttaka í þróun skjala og upplýsingamála stofnunarinnar
• Önnur tilfallandi störf
Skólamatur ehf. óskar eftir að ráða öflugan einstakling í stöðu innkaupa- og birgðastjóra.
Viðkomandi þarf að hafa menntun á sviði vörustjórnunar/viðskipta og hafa góða reynslu
og þekkingu á matvæla-/veitingageiranum. Eingöngu er unnið á virkum dögum á dagvinnutíma.
Við leitum að áhugasömum einstaklingi sem hefur drifkraft og frumkvæði, er ábyrgur og
skipulagður og hefur ríka þjónustulund og samskiptahæfileika.
Skólamatur ehf. er fjölskyldufyrirtæki þar sem starfsandinn er til fyrirmyndar og metnaður er
mikill. Skólamatur matreiðir hollan, góðan og heimilislegan mat fyrir grunnskólanemendur.
Hjá fyrirtækinu starfa 40 manns á 15 starfsstöðvum. Rík áhersla er lögð á fjölskylduvænt
starfsumhverfi og góðan starfsanda.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Vörustjórnunar- eða viðskiptanám
Reynsla af matvæla-/veitingageiranum
Brennandi áhugi á öllu sem viðkemur mat
Góð skipulagshæfni
Afburða samskiptahæfni
Þjónustulund og vilji til að leysa úr vandamálum
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2010
Umsjón með starfinu hefur Lind Einarsdóttir hjá Talent Ráðningum, sími 552 1600
eða lind@talent.is
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu
Talent Ráðninga, www.talent.is
Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær
Hollt, gott og heimilislegt
Innkaupa- og birgðastjóri
Laus störf hjá Air Atlanta Icelandic
Flugvirkjar
Laus eru til umsóknar störf fl ugvirkja í skipulags- og verk-
fræðideild félagsins.
Laun skv. kjarasamningi Air Atlanta Icelandic og FVFÍ. Um
fullt starf er að ræða.
Ferðadeild
Laust er til umsóknar starf í ferðadeild fyrirtækisins. Leitað
er að einstaklingi með reynslu af bókunum viðskiptaferða,
kunnáttu á Amadeus, góða almenna tölvuþekkingu og
mjög góða enskukunnáttu. Um fullt starf er að ræða.
Áhafnaskrá (Crewing)
Helsu verkefni:
• Eftirlit með að fylgt sé stöðlum varðandi vinnutíma
fl ugáhafna og bregðast við og leysa breytingar sem
koma upp án fyrirvara (fl ugum afl ýst, veikindi
áhafnameðlina o.s.frv.) með því að skipuleggja breytta
áætlun.
• Skráning í gagnagrunn (RM-kerfi )
• Samskipti við fl ugáhafnir
• Dagleg samskipti við útstöðvar
• Um fullt starf er að ræða
Hæfniskröfur:
• Góð tölvukunnátta og hæfi leiki til að tilleinka sér
nýjungar
• Frábær enskukunnátta (lesa, skrifa, tala)
• Stúdentspróf eða sambærilegt.
• Reynsla af störfum í fl uggeiranum er kostur
Eingöngu verður tekið við umsóknum á tölvupóstfang
starfsmannasviðs; hr@airatlanta.com fyrir
15. febrúar 2010.
BARNAVERNDARSTOFA