Fréttablaðið - 06.02.2010, Side 47

Fréttablaðið - 06.02.2010, Side 47
LAUGARDAGUR 6. febrúar 2010 9 Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is. ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa um 400 manns, víðsvegar um landið sem og erlendis. ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1970 og hefur annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór- iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Framkvæmdagleði í fyrirrúmi EFTIRTALIN STÖRF ERU LAUS TIL UMSÓKNAR VEGNA VIRKJANAFRAMKVÆMDA Á GRÆNLANDI OG ANNARRA VERKEFNA: VÉLAVERKFRÆÐINGUR / VÉLTÆKNIFRÆÐINGUR ÍSTAK óskar eftir að ráða vélaverkfræðing/véltæknifræðing til starfa. Um er að ræða fjölbreytt verkefni og þátttöku í stjórnun framkvæmda. Viðkomandi mun hafa starfsstöð á Íslandi. Starfsreynsla við járnsmíði er æskileg en ekki skilyrði. Meðal verkefna: • Verkefnastjórnun • Gerð kostnaðaráætlana • Samskipti við innlenda og erlenda birgja • Tilboðsgerð • Úrlausn tæknilegra verkefna JARÐFRÆÐINGUR ÍSTAK óskar eftir að ráða jarðfræðing til starfa við jarðgangagerð á Grænlandi. Meðal verkefna eru jarðvegsrannsóknir og kort- lagning bergs. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af sam- bærilegum störfum. MÆLINGAMAÐUR ÍSTAK óskar eftir að ráða mælingamann til starfa. Um er að ræða landmælingar á framkvæmdasvæði fyrirtækisins í Grænlandi. Skilyrði er að viðkomandi hafi reynslu af sambærilegum störfum. BYGGINGARVERKFRÆÐINGUR / BYGGINGARTÆKNIFRÆÐINGUR ÍSTAK óskar eftir að ráða byggingarverkfræðing/byggingartækni- fræðing til starfa. Um er að ræða fjölbreytt verkefni og þátttöku í stjórnun framkvæmda. Viðkomandi þarf að hafa víðtæka reynslu af byggingaframkvæmdum. Þekking af virkjanaframkvæmdum æskileg. Meðal verkefna: • Verkefnastjórnun • Samningar við innlenda og erlenda birgja • Hönnunarstjórnun • Úrlausn tæknilegra verkefna VERKSTJÓRI Á VÉLAVERKSTÆÐI ÍSTAK óskar eftir að ráða verkstjóra á vélaverkstæði vegna framkvæmda fyrirtækisins í Grænlandi. Viðkomandi þarf að hafa víðtæka reynslu af viðgerðum tækja og vinnuvéla. Í starfinu felst almenn verkstjórn á vélaverkstæði auk vinnu við viðgerðir og viðhald tækja. VÉLVIRKI / VÉLSTJÓRI ÍSTAK óskar eftir að ráða vélvirkja, vélstjóra eða einstaklinga vana viðgerðum vinnuvéla og vörubíla. Í starfinu felst vinna við viðgerðir og viðhald véla og tækja á framkvæmdasvæði fyrir- tækisins í Grænlandi. á á Gullsmiðir . Bankastræti 11

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.