Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 55
matur 5
Nýtni að leiðarljósi
Þetta er dæmigerður íslensk-ur heimilismatur sem vekur alltaf lukku,“ segir Margrét
um kjöt í karrýi og bætir við að
afgangana megi nýta á ýmsa vegu,
til dæmis í kjötsúpu eða pottrétti og
ef mikið er afgangs af hrísgrjónum
sé hægt að skella í góðan grjóna-
graut. „Möguleikarnir eru óendan-
legir,“ segir hún og tekur fram að
afgangana megi líka geyma í boxi
í frysti.
Margréti finnst Íslendingar
ekki hafa verið nógu nýtnir í elda-
mennskunni síðustu ár, en seg-
ist hafa skynjað breytingu þar á.
„Þessi þróun er að snúast við, sem
er bara jákvætt. Við eigum að nota
og nýta vel það sem landið gefur af
sér.“ Hún bætir við að nemendur
hennar séu hæstánægðir með að
spreyta sig á íslenskum heimilis-
mat. „Þeim finnst frábært að læra
grunnaðferðir við að búa til þessa
rétti, svo sem kjötsúpu og steiktan
fisk.” - rve
Afgangana má nýta á ýmsa vegu, til að mynda í gómsæta kjötsúpu.
Kjöt í karrýi er herramannsmatur.
„Lambið er ekki síður hollt en kjúkling-
urinn, það er bara ágætt að skera fituna
burt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LAMBAKJÖT
1-1,2 kg lamba framhryggj-
arbitar
Vatn
1 tsk. salt ásamt 1 súputen-
ingi
2 laukar
4-6 gulrætur (eftir stærð)
Snyrtið kjötið og skolið í köldu
vatni. Setjið í pott ásamt vatni
og kryddi. Skerið laukinn og
setjið út í pottinn. Kjötið soðið
í 20 mín; þá eru gulræturnar
settar út í og soðið áfram í 30
mín. Athugið að þegar suðan
kemur upp á að lækka hitann
og fleyta ofan af froðu. Ekki
láta kjötið bullsjóða. Ef kjöt er
látið sjóða við of háan hita er
hætta á að það verði þurrt.
KARRÝSÓSA
1 msk. olía
1 tsk. karrý
5 dl kjötsoð
4 msk. hveiti
1 ½ dl kalt vatn
½ dl mjólk eða rjómi
Setjið olíu í pott ásamt karrý og
látið krauma. Setjið kjötsoðið
í og látið suðuna koma upp.
Hristið saman vatn og hveiti í
hristiglasi (vatnið fer í á undan
hveitinu). Hellið út í kjötsoð
og hrærið stöðugt í á meðan
(kanski þarf ekki allan hveitijafn-
inginn). Setjið mjólk eða rjóma
út í. Smakkið til. Þurfi að bæta
meira karrý út í þarf að hræra
það út með smá vatni áður en
það er sett út í sósuna. Vanti
meiri súpukraft setjið hann þá
beint út í, hann leysist þar upp.
Athugið að súpukraftur er salt-
ur. Berið fram með soðnum
hrísgrjónum.
ÍSLENSK KJÖTSÚPA ÚR
AFGÖNGUM
1,2 kg framhryggjarsneiðar
1 ½ - 2 lítrar vatn
1 laukur
2 tsk. salt
1 dl hrísgrjón
1 gulrófa
6-8 gulrætur
1/8 hvítkálshaus
1/3 poki súpujurtir
½ búnt söxuð stein-
selja
Þvoið kjöt í köldu
vatni og sker-
ið sjáanlega fitu
burt. Setjið það í pott með sjóð-
andi vatni ásamt söxuðum lauk.
Setjið hvít hrísgrjón út í pottinn
þegar kjötið hefur soðið í 15
mín ásamt súpujurtum og niður-
skorinni gulrófu (eigi að nota
hýðishrísgrjón, sjóðið þau þá
með allan tímann). Þegar kjötið
er búið að sjóða í ca.25 mín eru
gulrætur settar út í ásamt skornu
hvítkáli. Þegar súpan hefur soðið
í um 55-60 mín er saxaðri stein-
selju bætt út í. Smakkið súpu til.
Gott er að setja 1-2 súputeninga
út í. Eins niðurskorna sellerírót.
Athugið að nota má annað
grænmeti út í kjötsúpu.
KJÖT Í KARRÝI OG ÍSLENSK KJÖTSÚPA
Í súpuna fer mikð af góðu grænmeti.
A
Margrét Sigfúsdóttir, skólameistari Hússtjórnarskólans í Reykjavík, innrætir nem-
endum sínum nýtni og hagsýni í eldamennsku. Hér kennir hún lesendum að elda
kjöt í karrýi og hvernig nota má afgangana í ótal ljúffenga rétti.
Kemur út fimmtudaginn
11. febrúar
Fermingarföt
Auglýsendur vinsamlegast
hafið samband:
Hlynur Þór
• hlynurs@365.is
• sími 5125439
Sérblað Fréttablaðsins
Þessi í nýju umbúðunum
bráðnar alveg jafn hratt.
Ég tók tímann!
eftirfyrir
rifinn mozzarellaostur í nýjum umbúðum
Þú finnur girnilegar uppskriftir með mozzarellaosti á . NÝJAR
UMBÚÐ
IR
Mozzarell
a íí ííííí