Fréttablaðið - 06.02.2010, Page 68
40 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Hinn 31. janúar sl. voru liðin 60 ár frá
stofnun Lúðrasveitar Hafnarfjarðar.
Af því tilefni verða haldnir afmæl-
istónleikar í dag í Íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði. Haft var
samband við flesta sem starfað hafa
með lúðrasveitinni á liðnum árum og
þeim boðið að taka þátt í þessum tón-
leikum. Viðbrögð voru góð og hafa
milli 50 og 60 manns æft stíft að und-
anförnu. Afrakstursins fá tónleika-
gestir að njóta á þessum tónleikum.
Efnisskráin er fjölbreytt og spann-
ar sögu sveitarinnar. Göngulög verða
áberandi, ættjarðarlög og skemmti-
músík verða leikin í bland. Stjórn-
endur á tónleikunum eru þeir Stef-
án Ómar Jakobsson og Hans Ploder.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 og það er
ókeypis aðgangur.
Afmælisblástur
SEXTUGSAFMÆLI Hér er mynd af æfingu á 6. áratugnum.
Albert Klahn stjórnar af röggsemi.
Enn heldur fjörleg myndlistar-
starfssemin áfram í Havaríi í
Austurstrætinu. Í dag opnar sýn-
ing sex ungra kyndilbera íslensku
myndlistarsenunnar.
Sexmenningarnir eiga það nær
allir sameiginlegt að hafa látið til
sín taka á öðrum sviðum listar-
innar. Það er eiginlega bara Davíð
Örn Halldórsson, sem hefur ein-
beitt sér að myndlistinni. Hans
stóru litríku málverk hafa slegið í
gegn að undanförnu. Nú má einn-
ig sjá verk eftir hann á sýning-
unni Ljóslitlífun í Hafnarhúsinu.
Þetta er í annað sinn sem hann
sýnir í Havaríi.
Elín Hansdóttir er sístækk-
andi nafn í hinum alþjóðlega
listaheimi. Innsetningar henn-
ar vekja athygli hvert sem þær
fara. Eflaust kannast margir við
við Elínu úr kvikmynd Dags Kára
Sigurðssonar; Nóa albínóa, en þar
lék hún sjoppustelpuna Írisi.
Kvikmyndatengsl má einnig
finna í Bjarna Massa. Hann er
einn af meðlimum kvikmynda-
grúppunnar Lortur. Massinn er
þekktur fyrir ást sína á lands-
byggðinni og nú er það Flateyri
sem kallar. Fannst Massanum
viðeigandi að henda upp nokkrum
verkum til að minna á sig áður
en hann lætur sig hverfa vest-
ur í nokkra mánuði. Pétur Már
Gunnarson er einn af heilunum á
bakvið DVD tímaritið Rafskinnu.
Hann sýnir skúlptúra og mynd-
ir.
Þá eru það poppararnir. Egill
Sæbjörnsson átti stórleik á síð-
asta ári. Gaf út plötu og hélt stóra
einkasýningu í Listasafni Reykja-
víkur. Þá kom út bók um verkin
hans og RÚV sýndi heimildar-
mynd um hann í desember. Hann
sýnir fótósjoppaðar ljósmyndir
af sjálfum sér á baðströndum.
Örvar Þóreyjarson Smárason er
öllu þekktari fyrir framlag sitt til
íslenskrar dægurtónlistar, enda
í múm og FM Belfast. Teikning-
ar eftir Örvar hafa birst í bókum,
á plötuumslgöum og á sýningum
víða um heim. Og nú sýnir hann í
Havaríi. - drg
Sex á Havaríi
Í HAVARÍ Verk eftir Elínu Hansdóttur.
Tvær sýningaropnanir verða í
Listasafni ASÍ kl. 15 í dag. Önnur
þeirra er sýning Guðrúnar Gunn-
arsdóttur, sem horfir á fífla frá
ýmsum sjónarhornum.
„Ég er að vinna út frá fíflum og
þessu orðatiltæki að muna sinn
fífil fegri,“ segir Guðrún. „Öll
hugmyndafræðin í sýningunni er
út frá þeirri setningu. Ég er að
hugsa um íslensku þjóðina. Það er
táknmál í þessu. Það er engin til-
viljun að fífill verður stundum að
fífli. Ég er samt ekki að vinna út
frá neinni pólitík.“
Guðrún vinnur með ýmis efni;
plast, vír, útsaum og klippir út úr
landakortum. Henni finnst fífilinn
vera vanmetinn. „Hann er fyrsta
sumarblómið sem stingur upp koll-
inum og við gerum varla annað en
að tæta hann upp. Og þjóðin má
svo sannarlega muna sinn fífil
fegri. En fíflarnir koma samt allt-
af stoltir upp á hverju vori sama
hvað gengur á og þannig sé ég
fyrir mér að þjóðin muni rísa upp.
Það getur nú ekki annað verið.“
Hin sýningin sem opnar í Lista-
safni ASÍ er sýning Guðmundar
Ingólfssonar. en hann sýnir ljós-
myndaröð af rýmum. Þá sýningu
kallar hann Heimild um horfinn
tíma. - drg
Fíflarnir koma upp
ÖLL Í FÍFLUNUM Guðrún Gunnarsdóttir.
MYND/GUÐMUNDUR INGÓLFSSON
> Ekki missa af
Curver Thoroddsen listamaður
fjallar um eigin verk í hádegis-
fyrirlestri Opna Listaháskólans
í húsnæði myndlistardeildar
Listaháskóla Íslands, Laugar-
nesvegi 91, stofu 024, nú á
mánudaginn 8. febrúar kl.
12.30. Á undan fyrirlestrinum
framkvæmir Curver hálftíma
langan nektargjörning (sem
hefst þá klukkan 12.00).
> Í kvöld kl. 22
Höfundaforlagið Nýhil stendur fyrir
opnum hljóðnema (open mic), ljóða-
kvöldi, á barnum Bakkus sem stendur
við Tryggvagötuna þar sem Gaukur á
Stöng með sitt bjórlíki var áður til húsa.
Vonandi verður þó ekkert ljóðlíki í boði.
Þetta er fjórða ljóðakvöldið í röðinni
og vandræðalegheita-stemningin hefur
ítrekað vikið fyrir sannri raust ófor-
skammaðra ljóðmælenda. Hljóðneminn
er öllum opinn og enginn er aðgangs-
eyririnn.
Ársfundur Hins íslenska biblíufélags
7. febrúar kl. 12:30 í safnaðarheimili
Seltjarnarneskirkju
Dagskrá
1. Ársreikningur 2009
2. Skýrsla stjórnar og stefnulýsing
3. Tillögur að lagabreytingum
4. Kjör í stjórn
5. Önnur mál
MÁLÞINGIÐ VERÐUR SENT
BEINT ÚT Á NETINU
HUGSAÐU
ÁÐUR EN ÞÚ
SENDIR
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn
2010 verður haldinn 9. febrúar
næstkomandi undir yfirskriftinni
„Hugsaðu áður en þú sendir”.
Í tilefni dagsins stendur SAFT
fyrir opnu málþingi í Skriðu,
aðalbyggingu Menntavísindasviðs
Háskóla Íslands v/Stakkahlíð,
kl 14.30-16.30.
Á málþinginu verður m.a. fjallað um netið og:
fólks
fræðsluefnis um jákvæða og örugga
netnotkun
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SAFT (www.saft.is)