Fréttablaðið - 06.02.2010, Síða 86

Fréttablaðið - 06.02.2010, Síða 86
58 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. skák, 6. frá, 8. traust, 9. slagbrand- ur, 11. rykkorn, 12. goðmögn, 14. gabba, 16. sjúkdómur, 17. miskunn, 18. klampi, 20. átt, 21. svall. LÓÐRÉTT 1. jurtatrefjar, 3. ólæti, 4. frárennsli, 5. blundur, 7. heimska, 10. svif, 13. hress, 15. einkenni, 16. sægur, 19. gangþófi. LAUSN VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8. 1 Hann vill breyta húsinu í Icelandair-hótel. 2 Katrínartún. 3 Skrá félagið í Kauphöllina. LÁRÉTT: 2. tafl, 6. af, 8. trú, 9. slá, 11. ar, 12. tótem, 14. narra, 16. ms, 17. náð, 18. oki, 20. sa, 21. rall. LÓÐRÉTT: 1. bast, 3. at, 4. framrás, 5. lúr, 7. flónska, 10. áta, 13. ern, 15. aðal, 16. mor, 19. il. „Það eru ekki fordæmi fyrir því að haft sé samráð við íbúa vegna nafnbreytinga, en að sjálfsögðu er tekið tillit til ólíkra sjónarmiða þar sem það á við,“ segir Sóley Tómasdótt- ir, fulltrúi vinstri grænna í skipulagsráði Reykjavíkur. Fréttablaðið greindi frá því í gær að Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður Eyktar og Höfðatorgs, væri ósáttur við að nafni Höfða- túns yrði breytt í Katrínartún. Pétur hefur átt fund með Júlíusi Vífli Ingvarssyni, for- manni skipulagsráðs, þar sem hann óskaði eftir að nafnið Höfðatún héldi sér. Júlíus sagði ekki útilokað að Katrínartúni yrði skipt í tvennt og yrði áfram Höfðatún frá Borgar- túni og niður að Sætúni. Sóley bendir á að nafnbreytingar á götum hafi oft verið gerðar. „Mun oftar en fólk gerir sér grein fyrir,“ segir hún. Skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt nafnbreytingar á götum í Tún- unum til að minnast þess að fyrir 101 ári voru fyrstu kon- urnar kjörnar í bæjarstjórn í Reykjavík. Eins og Sóley bendir á eru hefur götunöfn- um oft verið breytt í Reykja- vík. Suðurgatan í Reykjavík hét Kirkjugarðsstræti, Kær- leiksstígur, Skildinganesgata og loks Suðurgata. - afb MÖRG FORDÆMI FYRIR NAFN- BREYTINGUM Sóley Tómas- dóttir, fulltrúi Vinstri grænna í skipulagsráði, bendir á að götunöfnum í Reykjavík hafi oft verið breytt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Íbúar aldrei haft áhrif á nafnbreytingar FRÉTTIR AF FÓLKI Jörundur Ragnarsson er einn af fjölmörgum þekktum Íslendingum sem eru í framboði fyrir Besta flokk Jóns Gnarr. Í pistli sem Jörundur ritar á vefsíðu flokksins líkir hann pólitík við leikhús og notar þau rök að hann hafi hingað til verið trúverðugur í hlutverk- um sem hann hafi tekið að sér og eins og alvörupólitíkus er Jörundur kominn með slagorð; ef Jöri nær kjöri, verða allir í fjöri. Fréttablaðið greindi frá því í gær að Paris Hilton hafi tvisvar verið mynd- uð á röltinu í skóm úr íslensku línunni Gyðja Collection. Paris er leggjalöng snót, en fótastærð hennar hefur oft vakið athygli. Paris notar nefnilega skó númer 42, sem er ekki óalgeng stærð hjá fullvaxta karlmönn- um. Sigrún Lilja, hönnuður og eigandi Gyðju, hefur þó væntanlega ekki grátið snákaskinnið sem fór í skóna þar sem Paris er gríðarlega áberandi og vafa- laust góð auglýsing fyrir skóna. Og meira um tísku. Þeim fer hratt fjölgandi sem fá nýjustu tísku- straumana beint í æð úr tísku- bloggum í stað -tímarita. Ein af nýju bloggurunum á netinu er fyrirsætan og leikkonan Pattra Sriyanonge, sem bloggar á ensku og undir nafninu „Pattra‘s Closet“. Á síðunni er að sjá myndir af fallegu fólki í fínum fötum, og oftar en ekki er hún sjálf í aðalhlut- verki. - afb/fgg „Þetta er bara fjölskylduflokkur,“ segir Tinna Gunnlaugsdóttir þjóð- leikhússtjóri. Tinna er tilnefnd sem besta meðleikkonan á Eddunni fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþátt- unum Rétti ásamt móður sinni Her- dísi Þorvaldsdóttur og frænku sinni Tinnu Hrafnsdóttur sem báðar léku í Hamrinum. „Þetta er bara ógurlega gaman og það er ljóst að við hljótum allar að vera þarna á eigin verðleik- um en ekki vegna vensla,“ segir hún og hlær. Orð að sönnu því enginn í dómnefndin hafði hugmynd um hvað hinir hennar ætluðu að kjósa. Þetta er í fyrsta skipti sem þrjár kynslóðir sitji á sama listanum. Spurð hvort hún ætli ekki að hrifsa til sín Edduna þrátt fyrir ættartengslin segir Tinna það ekki skipta öllu máli. „Það er bara einn sem vinnur í keppni. En heiðurinn er að vera tilnefndur og þar er jafnt á komið með okkur. Hitt er meira tilviljun hver það er sem lendir í verðlaunasæti.“ Hún viðurkennir að tilnefningin hafi komið sér á óvart. „Ég lít ekki á mig sem leikkonu í dag heldur emb- ættismann, en einu sinni leikkona alltaf leikkona,“ segir Tinna. „En það var mjög gaman að taka þátt í [Rétti] og vissulega naut ég þess. Leikkonuhjartað er þarna enn þá.“ Tinna Hrafnsdóttir, frænka Tinnu og barnabarn Herdísar, er að vonum ánægð með sína tilnefningu og þessa óvæntu samkeppni. „Þetta er mjög ánægjulegt og skemmtileg tilviljun,“ segir Tinna, sem er að fá sína aðra tilnefningu til Eddunnar. Síðast var hún tilnefnd fyrir aðal- hlutverkið í kvikmyndinni Veðra- mót árið 2007. „Ég er mjög glöð yfir því að vera sýndur sá heiður að fá tilnefningu.“ Edduverðlaunin verða afhent í Háskólabíói 27. febrúar. freyr@frettabladid.is TINNA GUNNLAUGSDÓTTIR: EINU SINNI LEIKKONA, ALLTAF LEIKKONA Þjóðleikhússtjóri keppir við frænku sína og mömmu MERKILEG TILVILJUN Tinna Gunnlaugsdóttir er tilnefnd til Eddunnar sem besta meðleikkona ársins. Svo skemmtilega vill til að keppi- nautar hennar í þeim flokki eru frænka hennar, Tinna Hrafnsdóttir (dóttir Hrafns Gunnlaugs- sonar, bróður Tinnu) og mamma, Her- dís Þorvalds- dóttir. Jónas Kristjánsson Starf: Eftirlaunaþegi og bloggari. Fjölskylda: Eiginkona er Kristín Halldórsdóttir, börnin eru Kristján, Pálmi, Pétur og Halldóra. Foreldrar: Kristján Jónasson (d. 1947) og Anna Pétursdóttir (d. 1976). Búseta: Á Seltjarnarnesi. Stjörnumerki: Vatnsberi. Jónas varð sjötugur í gær. Kjarnyrt blogg hans má finna á www.jonas.is. „Við erum mígandi spennntir að kynna land og þjóð á erlendri grundu,“ segir Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra, sem syngja á evrópskri menning- arhátíð í Manchester 30. maí. Það var fyrir milligöngu Inga Þórs Jónssonar, sem hefur skipu- lagt norræna menningarhátíð í Liverpool undanfarin ár, sem Fjallabræður fengu giggið. Að sögn Inga Þórs verða tónleikarn- ir á aðalsviði hátíðarinnar, öfugt við aðra norræna flytjendur sem verða á sérstöku norrænu sviði. „Ég fór með þessa hugmynd til þeirra á fund og þeim finnst þeir algjört æði,“ segir Ingi Þór um skoðun forsvarsmanna hátíðarinn- ar á Fjallabræðrum. „Núna þurfa þeir að fara að safna, karlarnir, og vonandi geta þeir komið af stað jákvæðri umfjöllun um Íslend- inga.“ Búist er við á milli 30 og 40 þúsund manns á hátíðina og hefur hún fengið góða umfjöllun í gegn- um árin, meðal annars hjá breska ríkisútvarpinu, BBC. Tónleikar Fjallabræðra í Manchester verða þeir fyrstu hjá sveitinni utan landsteinanna. „Við gerðum heiðarlega tilraun til að fara til Færeyja síðasta sumar og syngja á G-Festival en við náðum ekki að fjármagna það,“ segir kórstjórinn Halldór Gunnar, sem ætlar ekki að láta sama vanda- mál stöðva hópinn í þetta sinn. „Við erum búnir að vera að hugsa þetta síðan við urðum alvöru kór, að það væri gaman að fara eitthvað saman, hvert sem það væri. Bara til að prófa hvernig það er að vera saman í rútu og á hóteli og syngja fyrir fólk sem veit ekkert um okkur og veit ekkert við hverju það á að búast. Þetta verður ævintýri, það er alveg á hreinu.“ freyr@frettabladid.is Fjallabræður syngja í Manchester FJALLLABRÆÐUR Meðlimir Fjallabræðra við Reykjavíkurtjörn í desember að syngja All You Need Is Love. Næst á dagskrá er Manchester 30. maí. Ingi Þór Jónsson hefur veg og vanda af komu kórsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.