Fréttablaðið - 11.03.2010, Side 27
FIMMTUDAGUR 11. mars 2010 3
Íslenskur prjóna-
kjóll á forsíðu
Forsíðuna á maíhefti breska prjónablaðsins YARN Forward prýðir
kjóllinn Thelma eftir íslensku prjónakonuna Hörpu Jónsdóttur. Hún
er með fleiri verkefni í undirbúningi fyrir blaðið.
Harpa er að vonum ánægð með
heiðurinn en þetta er þó ekki í
fyrsta skipti sem prjónauppskrift
eftir hana birtist í blaðinu.
„Ég var með belti í blaðinu í
fyrra en ritstjóri blaðsins setti sig
í samband við mig í gegnum vefinn
Ravelry sem er eins konar „Feis-
búkk“ prjónaáhugafólks.“
Kjólinn kallar Harpa Thelmu
eftir dóttur sinni og lýsir honum
svo að honum svipi til lopavesta
sem hafi verið vinsæl með hefð-
bundnu munstri að ofan. Kjóllinn
er með A-sniði með víðu pilsi og
blómum á pilsinu sem prjónuð eru
með rósaleppaprjóni.
„Eins er blúnda neðan á pils-
inu sem byrjað er að
fitja upp á svo
kjól l inn er
unninn öðru-
vísi en aðrir
prjónakjólar.“
Har pa er
dugleg að búa
til uppskriftir
frá grunni og
hefur prjónað
síðan hún man
eftir sér. Hún
segir heiður að
fá uppskrift á
forsíðu blaðs-
ins þó hún græði
ekki mikið og sér
fram á áfram-
haldandi sam-
vinnu við blað-
ið. „Þetta er ekki
vel borgað en ég
fæ eitthvað fyrir;
er ánægð og læri
mikið eins og að
vera í sambandi
við tækniritstjór-
ann. Þetta hefur
undið upp á sig og
ég er með tösku,
barnakjól og fleira
í undirbúningi
fyrir blöð sem
koma út í haust.“
heida@frettabladid.is
Kjóll Hörpu verður á
forsíðu YARN Forward
sem kemur út í maí.
Yves Saint Laurent hannar fyrir
konur með völd.
Stefano Pilati hjá Yves
Saint Laurent þótti
taka skref í nýja átt
þegar hann kynnti
nýjust u l í nu
tískuhússins í
París fyrr í vik-
unni. Línan er
ætluð konum
með völd og
til þess fall-
in að undir-
strika áhrif
þeirra.
Engan skal
u nd ra að
fötin voru í
nær áttatíu
prósentum
tilvika svört
enda er svarti lit-
urinn einkennandi
fyrir völd og áhrif.
Inn á milli mátti
síðan sjá skærlitað-
an kvöldklæðnað sem
skar sig úr.
Af sýningunni að
dæma ætlar Yves
Saint Laurent að fikra
sig yfir í fágaðri klæði
en hingað til hafa þau
heldur verið tælandi. ve
Svart sýnir
völd og áhrif
Fötin voru í áttatíu prósent tilfella svört.
Hin 23 ára leikkona var ráðin sem
listrænn ráðunautur til franska
tískufyrirtækisins Emanuel Ung-
aro í fyrra og fyrsta lína hennar
frumsýnd í október. Gagnrýnend-
ur voru lítt hrifnir og töldu sumir
að fötin hefðu jaðrað við að vera
hallærisleg og gamaldags. Emanu-
el Ungaro var að sögn brjálaður
yfir línunni sem hönnuð var undir
hans nafni, þótt sjálfur sé hann
ekki lengur tengdur fyrirtækinu.
Lindsay er fastagestur á fjölda
tískusýninga. Athygli vakti þegar
hana vantaði á sýningu Ungaro
á tískuvikunni í París. Hún var
spurð út í fjarver-
una og svaraði því
þá að hún ynni
ekki lengur fyrir
Ungaro. Engin
opinber yfirlýs-
ing þess efnis
hefur komið
frá fyrirtæk-
inu sjálfu.
Lindsey hætt
hjá Ungaro
Ferill Lindsey Lohan sem tísku-
hönnuðar virðist liðinn undir lok.
ÞRJÁTÍU TONN AF ÍS VORU
FLUTT FRÁ SVÍÞJÓÐ TIL PARÍSAR
FYRIR NÝAFSTAÐNA TÍSKUSÝN-
INGU CHANEL.
Chanel hélt tískusýningu með
boðskap í París á þriðjudag en
fyrirsæturnar voru umluktar
bráðnandi ísjökum og blotn-
uðu margar í fæturna. Þrjátíu
tonn af ís voru flutt inn alla
leið frá Svíþjóð en ísnum var
ætlað að vekja áhorfendur
til umhugsunar um hlýnun
jarðar.
„Hlýnun jarðar er málefni
okkar tíma og tískuheimurinn
verður að taka tillit til þess,“
sagði Karl Lagerfeld, hönnuður
Chanel, þar sem hann stóð í
vatnspolli í blautum gallabux-
um. Fyrirsæturnar voru margar
klæddar eftir veðri og mátti sjá
ótal loðkápur og ullarkjóla á
pöllunum. - ve
Tískusýning
með boðskap
Fyrirsæturnar blotnuðu margar í fæturna á
gólfinu sem átti að minna á hafið bláa.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
Kvöldklæðn-
aðurinn var
skærlitaður.
Lindsey Lohan
er hætt að
hanna föt
fyrir Ungaro.
Byltingarkennda efnið Bio-Regenesist** fjölgar
fíbróblast frumum um 27%* sem vekja upp náttúrulega
eiginleika æskunnar. Eftir eins dags notkun sáust færri
hrukkur í 92% tilvika og 96% fundu að andlitslínur
hefðu lyfst.*** Eftir þrjár vikur staðfestu 97% sýnilega
minnkun á djúpum hrukkum.***
*prófað á rannsóknarstofu **einkaleyfi ***prófað af 222 konum
Endurbyggir kollagen, elastín og hýalúrónsýru.*
Super Corrective Serum
Yngri húð í dag en í gær
NÝTT
Shiseido dagar í Hygea
Kringlunni & Smáralind11. - 13. mars
Fullt af flottum nýjungum Glæsilegir kaupaukar
Kringlunni s. 533 4533 | Smáralind s. 554 3960
Bergstaðastræti 4 – 101 Reykjavík – Sími: 562-0335
Gullsmíðaverkstæði Árna Höskuldssonar
lokar 13. mars næstkomandi
Opnunartími 13:00 til 18:00 virka daga
laugardaginn 13. mars 11:00 til 17:00
40% afsláttur
af öllum vörum
Mikið úrval
skartgripa