Fréttablaðið - 20.03.2010, Blaðsíða 60
20. mars 2010 LAUGARDAGUR8
Framkvæmdasýsla ríkisins fh félags- og tryggingamála-
ráðuneytisins og Fjarðabyggðar býður til opinnar hönnun-
arsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um nýbyggingu
hjúkrunarheimilis í Fjarðabyggð nánar tiltekið á Eskifi rði.
Um er að ræða að hámarki 1500 m² byggingu sem stað-
sett verður að Dalbraut 1 á Eskifi rði. Tvö fyrirspurnartímabil
eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 13. apríl 2010 en því
síðara 26. maí 2010.
Skilafrestur tillagna er 7. júní 2010, fyrir kl. 16:00 hjá
Ríkiskaupum.
Veitt verða þrenn verðlaun að heildarupphæð 7 m.kr.
Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag
Íslands og er auglýst á EES.
Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn
tilbúin vorið 2011, framkvæmdir hefjist sumarið 2011 og
þeim verði lokið vorið 2013.
Nánari upplýsingar er að fi nna í samkeppnislýsingu
sem verður aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is
útboðsnúmer 14838.
Samkeppnislýsing verður aðgengileg á vef Ríkiskaupa
þriðjudaginn 16. mars 2010 og til að nálgast ítargögn verður
að skrá sig til þátttöku á vefnum. Gögnin verða einnig
fáanleg á geisladiski gegn framvísun staðfestingar á þátt-
töku og 3.500 kr. greiðslu frá sama tíma hjá Ríkiskaupum,
Borgartúni 7C, 105 Reykjavík. Skrifstofan er opin virka daga
frá kl. 8:00 - 16:00.
Útboð skila árangri!
Hönnunarsamkeppni
Hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð
Hulduhlíð að Dalbraut Eskifi rði
Útboð nr. 14838
Kynningarfundur vegna breytinga
á aðalskipulagi - Efnistökusvæði í
Eyjafjarðarsveit
Kynningarfundur til að kynna fyrirhugaðar breytingar
á aðalskipulagi Eyjafjarðar sveitar verður haldinn í
Hrafnagilsskóla þriðjudaginn 23. mars kl. 20.30. Þar verða
kynntar hugmyndir um 14 ný efnistökusvæði í og við
Eyjafjarðará og nýja efnisnámu í Hvammi. Einnig er fjallað
um þá efnistökustaði sem eru nú þegar á aðalskipulagi.
Markmið skipulagsins er að sætta ólíka hagsmuni og
bæta með skipulegum hætti umgengni í efnisnámum, við
Eyjafjarðará og lífríki hennar.
Þeim sem vilja gera athugasemdir á kynningartímanum
er gefi nn kostur á að senda athugasemdir á skrifstofu
Eyjafjarðarsveitar í seinasta lagi 26. mars n.k.
Eftir kynningu verður tekin ákvörðun um tillögu að
breytingu á aðalskipulagi sem verður auglýst með
athugasemdafresti.
Fyrirhugaðar breytingar eru kynntar á heimasíðu og
skrifstofu Eyjafjarðarsveitar.
Sveitarstjóri
Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta
á fi skveiðiárinu 2009/2010 sbr. reglugerð
um úthlutun byggðakvóta til fi skiskipa
nr. 82, 29. janúar 2010
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunar-
reglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr.
231/2010 í Stjórnartíðindum
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til
fi skiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög:
Stykkishólmsbær
Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er
að fi nna á heimasíðu stofnunarinnar (fi skistofa.is), og
þar eru ofangreindur reglur einnig aðgengilegar. Um-
sóknarfrestur er til og með 6. apríl 2010.
Fiskistofa, 20. mars 2010.
Innkaupaskrifstofa
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Leikskólinn Úlfarsbraut 118-120 - lóðarframkvæmdir.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 2.000, frá 22.
mars 2010, í upplýsinga-þjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 13. apríl 2010, kl. 10:00, í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
12381
Nánari upplýsingar er að fi nna á www.reykjavik.is/utbod.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur MATVÍS verður haldinn
24. mars næstkomandi klukkan 16.30.
Fundurinn verður haldin á Stórhöfða 31.
Gengið er inn Grafarvogsmegin.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka
þátt í starfi félagsins.
Auglýsing
um sveitarstjórnarkosningar 2010
Á grundvelli 1. mgr. 1. gr. laga um kosningar til sveitar-
stjórna nr. 5/1998, með síðari breytingum, fara almennar
sveitarstjórnarkosningar fram 29. maí 2010.
Frestur til að skila framboðslistum til yfi rkjörstjórnar í
viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn
8. maí 2010. Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast
undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðum til yfi rkjör-
stjórnar fyrir lok framboðsfrests.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 6. apríl 2010.
Þetta auglýsist hér með samkvæmt 2. mgr. 1. gr.
framangreindra laga.
Í Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 19. mars 2010.
Endurskoðun aðalskipulags
Grindavíkurbæjar 2010 til 2030
Vinna við endurskoðun aðalskipulags Grindavíkur hefur nú
staðið yfi r um nokkurt skeið. Á vinnslutímanum hefur verið
haft víðtækt samráð við ýmsa aðila innan sveitarfélagsins
auk þess sem haldinn var kynningarfundur um stöðuna á
endurskoðun aðalskipulagsvinnunnar þann
8. júlí 2009.
Samkvæmt 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga er hér
kynnt tillaga að endurskoðuðu aðalskipulagi Grindavíkur-
bæjar 2010 til 2030. Opinn kynningarfundur verður haldinn
fi mmtudaginn 25. mars nk. kl. 17:00 í Saltfi sksetri Íslands í
Grindavík.
Áður en endurskoðun aðalskipulagsins verður tekin til
formlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn verður tillagan einnig
gerð aðgengileg í samræmi við 1. mgr. 17. gr. skipulags- og
byggingarlaga á skrifstofu sveitarfélagsins, Víkurbraut 62,
240 Grindavík, frá mánudeginum 22. mars til mánudagsins
19. apríl 2010 . Þá verður einnig hægt að nálgast tillög-
urnar á slóðinni. http://www.grindavik.is. Að lokinni fyrri
afgreiðslu sveitarstjórnar munu breytingartillögurnar fara í
formlegt kynningarferli þar sem þær verða auglýstar í a.m.k.
6 vikur þar sem þeim sem telja sig hafa hagsmuna að gæta
gefst kostur á að koma með athugasemdir við tillögurnar.
Ingvar Þór Gunnlaugsson
forstöðumaður tæknideildar Grindavíkurbæjar
Aðalfundur
Verkstjórafélags Reykjavíkur
verður haldinn mánudaginn 22. mars kl. 19:00 í húsakynnum
félagsins Skipholti 50d. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundastörf.
Félagar fjölmennum.
Stjórnin.
Útboð
Fundir
Skipulag
Tölvunarfræðingur
Við hjá Loftmyndum ehf. erum leiðandi í kortagerð og
vinnslu landfræðilegra gagna á Íslandi. Með okkur starfa
bestu sérfræðingar landsins á þessu fagsviði. Við tökum
okkar eigin loftmyndir til kortagerðar og erum eina fyrir-
tæki landsins sem á allan búnað til þess.
Vegna aukinna umsvifa á hugbúnaðardeild leitum við
nú að öfl ugum tölvunarfræðingi til að vinna að þróun
á landfræðilegum hugbúnaðarlausnum fyrir viðskipta-
vini okkar, sem eru opinberar stofnanir, sveitarfélög
og fyrirtæki. Reynsla af AJAX vefforritun og þekking á
vensluðum gagnagrunnum er nauðsynleg.
Umsóknir má senda á orn@loftmyndir.is en frekari
upplýsingar um fyrirtækið má fi nna á www.loftmyndir.is