Fréttablaðið - 20.03.2010, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 20. mars 2010 19
UMRÆÐAN
Oddný Mjöll Arnardóttir og
Þórdís Ingadóttir skrifa um
fullgildingu Íslands á samn-
ingi Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðra
Hinn 21. mars er alþjóðlegur dagur Downs-heilkennis. Á
Íslandi eru um 200 einstakling-
ar sem kljást við aukalitning á 21.
litningapari en um 3-4 börn fæðast
árlega hér á landi með slíkt litn-
ingafrávik. Eitt af baráttumálum
þessara einstaklinga er rétturinn
til að njóta fullra mannréttinda til
jafns við aðra. Það eru því mikil
tíðindi að í liðinni viku kynnti Árni
Páll Árnason félags- og trygginga-
málaráðherra tillögur nefndar sem
fjallað hefur um fyrirhugaða full-
gildingu Íslands á samningi Sam-
einuðu þjóðanna um réttindi fólks
með fötlun. Ísland undirritaði
samninginn fyrir þremur árum,
ásamt viðbótarbókun hans, og er
skýrsla nefndarinnar undirbún-
ingur stjórnvalda að fullgildingu
samningsins.
Samningur Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi fólks með fötl-
un er tímamótasamningur á sviði
mannréttinda fyrir margra hluta
sakir. Aldrei hafa samningavið-
ræður um mannréttindasamn-
ing tekið jafn skamman tíma.
Samningaviðræðurnar voru einn-
ig merkilegar fyrir þær sakir að
aldrei fyrr hefur verið haft jafn
ríkt samstarf við grasrótarsamtök
við gerð mannréttindasáttmála. Á
þeim tímamótum þegar opnað var
fyrir undirskriftir ríkja þann 30.
mars 2007 var þar slegið nýtt met
á vettvangi alþjóðalaga, en aldrei
hafa jafn mörg ríki undirritað
mannréttindasáttmála þegar við
opnun hans til undirritunar.
Hin mikla sátt sem ríkir um efni
sáttmálans kemur til af ýmsu. Ein
helsta ástæðan er sú að sáttmál-
inn byggir á eldri mannréttinda-
sáttmálum. Flest þau réttindi sem
hann veitir eru þegar tryggð í
öðrum sáttmálum og er sáttmál-
anum því ekki ætlað að skapa ný
réttindi. Réttinn til lífs, bann við
ómannlegri og vanvirðandi með-
ferð, bann við mismunun og rétt-
inn til tjáningarfrelsis hafa ríki
t.d. þegar skuldbundið sig að veita
með aðild sinni að alþjóðasamn-
ingi Sameinuðu þjóðanna um borg-
araleg og stjórnmálaleg réttindi
frá árinu 1966. Þá hafa ríki t.d.
skuldbundið sig til að veita rétt til
menntunar, vinnu og heilsu með
aðild sinni að Sáttmála Sameinuðu
þjóðanna um efnahagsleg, félags-
leg og menningarleg réttindi frá
árinu 1966. Það sem skilur að með
Samningi Sameinuðu þjóðanna um
réttindi fólks með fötlun og hinum
eldri mannréttindasamningum er
að í hinum nýja eru þessi réttindi
útfærð mun nánar og aðlöguð að
veruleika fatlaðs fólks í því skyni
að veita virka og raunhæfa rétt-
arvernd. Þannig er t.d. tiltekið
að í tjáningarfrelsi felist að ríkj-
um beri skylda til að viðurkenna
og stuðla að notkun táknmáls
og blindraleturs og að í rétti til
menntunar felist réttur til mennt-
unar án aðgreiningar. Rétturinn
til menntunar án aðgreiningar er
meðal mikilvægustu ákvæða sátt-
málans en hann felur í sér þá meg-
inreglu að menntun fatlaðra barna
fari fram innan almennra skóla og
leggur þær skyldur á herðar ríkj-
um að aðlaga skólaumhverfið og
veita stuðning í samræmi við þarf-
ir viðkomandi barns. Einnig má
nefna að sáttmálinn kveður á um
rétt fatlaðra til að lifa sjálfstæðu
lífi án aðgreiningar í samfélag-
inu sem m.a. felur í sér að ríkinu
beri að tryggja fötluðum tækifæri
til að velja sér búsetustað og með
hverjum þeir búa. Hinum nýju
efnismeiru ákvæðum er þannig
ætlað að taka af allan vafa um
framkvæmd samningsins í lands-
rétti og tryggja betur réttarstöðu
viðkomandi einstaklinga. Valfrjáls
bókun við samninginn heimilar
einstaklingum eða hópi einstakl-
inga sem telja sig þolendur brots
á ákvæðum samningsins að kæra
mál til alþjóðlegrar eftirlitsnefnd-
ar um framkvæmd samningsins,
án tillits til þess hvaða flokki
réttinda brotið tilheyrir.
Nú í dag hafa 144 ríki undirrit-
að Samning Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fólks með fötlun og
82 ríki fullgilt hann og með því
skuldbundið sig að þjóðarétti að
veita fötluðum einstaklingum þau
réttindi sem samningurinn kveð-
ur á um. Til þess að af fullgildingu
geti orðið þurfa landslög viðkom-
andi ríkis að tryggja borgurum öll
þau réttindi sem sáttmálinn kveð-
ur á um. Í hinni nýútgefnu skýrslu
nefndarinnar er gerð grein fyrir
nauðsynlegum aðgerðum til að full-
gilda hann sem fela meðal annars
í sér heildarendurskoðun á lögum
um málefni fatlaðra, auk ýmissa
annarra lagabreytinga. Þá legg-
ur nefndin til að athugaðir verði
möguleikar á stofnun innlendrar
þjóðbundinnar mannréttindastofn-
unar sem gæti haft með höndum
sjálfstætt eftirlit til að fylgjast
með framkvæmd samningsins
hér á landi. Samkvæmt tillög-
um nefndarinnar verður skýrsla
hennar nú send hagsmunaaðilum
til umsagnar. Afar mikilvægt er að
tekið verði tillit til þeirra umsagna
á lokastigum við undirbúning full-
gildingar Íslands á þessum mikil-
væga alþjóðasamningi.
Oddný Mjöll er prófessor við laga-
deild Háskólans í Reykjavík.
Þórdís er dósent við lagadeild
Háskólans í Reykjavík.
Um réttindi fatlaðra
ODDNÝ MJÖLL
ARNARDÓTTIR
ÞÓRDÍS
INGADÓTTIR
skattur.is
Skilafrestur
skattframtals
einstaklinga
er til föstudagsins
26. mars
Talið fram á skattur.is
Veflyklar hafa verið sendir til nýrra fram teljenda og þeirra sem
töldu fram á vefnum í fyrra og eiga ekki varanlega veflykla frá
fyrri árum. Veflykill veitir aðgang að þjónustusíðu á skattur.is
þar sem hægt er að fylla út skattframtalið á einfaldan hátt.
Glatist veflykill má sækja um nýjan á skattur.is og fá hann
sendan í vefbanka eða í pósti.
Framtal á pappír
Pappírsframtöl eru aðeins send þeim sem töldu fram á pappír
í fyrra. Hægt er að panta áritað pappírsframtal og sundur-
liðunarblað á skattur.is eða í síma 442-1414 og fá það sent
í pósti. Jafnframt er hægt að prenta út auð framtalsform
á skattur.is.
Þeir sem hafa haldið sig við pappírinn eru hvattir til að prófa
framtalið á vefnum hafi þeir möguleika á því.
Áritun upplýsinga á framtal
Laun, hlunnindi, starfstengdar greiðslur, styrkir o.fl., eru árituð
á framtalið sam kvæmt innsendum launa miðum. Einn ig greiðslur
frá Tryggingastofnun rík isins, At vinnuleysistryggingasjóði,
Fæð ing ar or lofssjóði og lífeyrissjóðum. Jafnframt eru flestallar
eignir og skuldir áritaðar á framtalið.
Áríðandi er að framteljandi athugi hvort áritaðar fjárhæðir og
aðrar upp lýs ingar séu í samræmi við gögn og upp lýsingar
sem hann hefur sjálfur undir hönd um.
Aðgengilegar leiðbeiningar
Leiðbeiningar er að finna á skattur.is á aðgengilegu formi.
Einnig er auðvelt að kalla fram skýringar við einstaka
kafla eða reiti í vefframtali.
Prentaðar leiðbeiningar má fá hjá skattstofum.
Símaþjónusta 442-1414
Í mars verður veitt aðstoð frá kl. 10 til
15:30 alla virka daga í síma 442-1414.
Dagana 26. mars, 6. og 7. apríl
verður þjónustan í boði til kl. 19.
Skilafrestur
Almennur skilafrestur fyrir launamenn
og einstaklinga með eigin atvinnurekstur
er til 26. mars.
Hægt er að sækja um viðbótar frest
á skattur.is, lengst til 7. apríl.
Fljótlegt, öruggt og einfalt
að telja fram