Fréttablaðið - 20.03.2010, Blaðsíða 37
Hjálparstarf kirkjunnar 1
Páskablað Hjálparstarfs kirkjunnar 2010
Margt smátt ...
Afleiðingar af jarðskjálftanum
á Haítí 12. janúar 2010 sem
mældist 7 á Richter eru
hrikalegar. Meira en 200.000
manns eru látin, um 300.000
slasaðir, 1,2 milljónir manna
misstu heimili sín og lifa
í tjöldum og bráðabirgðahúsnæði
í höfuðborginni Port-au-Prince.
Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að
Alþjóðaþróunar- og neyðarhjálp
kirkna. ACT Alliance. Fimm ACT-
aðilar voru með starfsemi á Haítí
fyrir jarðskjálftann mikla. Þeir eru
burðarásarnir í uppbyggingarstarfi
ACT eftir skjálftann. Þessir aðilar
eru Lutheran World Federation,
Christian Aid, Diakonie
Katastrophenhilfe, Interchurch
Organisation for Development
Cooperation og United Methodist
Committee on Relief. Þekking
þeirra á staðháttum og góð
tengsl við fólkið nýtast vel
í uppbyggingar starfinu. Níu aðrir
ACT-aðilar, þar á meðal
Hjálparstarf norsku og dönsku
kirkjunnar, hafa sent sína
sérfræðinga á staðinn. Mörg
hundruð tonn af matvælum,
húsbúnaði og tjöldum hafa borist
til nauðstaddra. Víða hafa
hreinsikerfi verið sett upp til að
hreinsa óhreint vatn, töflum sem
hreinsa vatnið, mat og drykkjar-
vatni hefur verið dreift til fólks.
Lið sérfræðinga, lækna og
hjúkrunarfólks er að störfum,
lyfjum dreift og slösuðum sinnt.
Clement Celis, 45 ára, býr
í höfuðborginni Port-au-Prince,
hún var í sturtu þegar ósköpin
dundu yfir og dóttir hennar var
inni í stofu. „Allt fór á hreyfingu
og ekkert til að halda í. Það var
eins og að vera í miðri flóðbylgju”
segir Clement. Hún hljóp inn
í stofu og tókst að komast með
dóttur sinni út úr húsinu í þann
mund sem húsið hrundi. Þrír synir
hennar eru einnig á lífi en
eiginmaður hennar er talinn af.
Clement býr nú í tjaldi í búðum
með börnunum sínum fjórum.
Um leið og neyðarstarfi er sinnt
er mikilvægt að horfa til
framtíðar og gefa fólki, sem hefur
misst nána ættingja og allt sitt,
von þrátt fyrir allt. Að það sjái
möguleika á að geta lifað með
sínum nánustu við sæmilegar
aðstæður og sjá sér farborða. Um
það snýst uppbyggingarstarfið
sem nú er framundan.
Bæta þarf aðstæður í búðum sem
heimilislausir búa í við mikil
þrengsli. Bæta hreinlætisaðstöðu
og fjölga salernum. Síðan þarf að
gera fólkinu kleift að reisa
varanlegri hús eða skjól en nú er
rigningartíminn hafinn og þá er
mjög erfitt að búa í tjöldum.
Hreinsa þarf rústir og útvega
byggingarefni en aðeins 25%
þeirra 1,2 milljóna manna sem
þurfa nýtt hús hafa fengið
nauðsynlegt byggingarefni til að
hefjast handa. Halda þarf áfram að
dreifa mat og vatni, en um leið
styðja við innlenda akuryrkju og
matarframleiðslu svo hægt verði
að draga úr mataraðstoð sem fyrst.
Skipulagt hefur verið starf þar
sem þjálfað fólk sinnir börnum
í gegnum barnamiðstöðvar þar sem
rætt er við þau, farið í leiki og
myndmennt notuð til að hjálpa
þeim að tjá erfiða reynslu sína og
vinna úr henni. Þeir sem hafa
slasast og þurfa að lifa við
varanlega fötlun þurfa stuðning til
að fá þau hjálpartæki sem henta
hverjum og einum, s.s. hjólastóla
og gervilimi.
Vilt þú vera með í uppbyggin gar-
starfinu á Haítí? Vilt þú gefa von
við erfiðar aðstæður? Þú getur
lagt lið með því að greiða
valgreiðslu í heimabankanum
þínum, leggja inn á reikning
334-26-886. kt. 450670-0499,
eða hringja í söfnunarsíma
907 2003, hvert símtal gefur
2.500 krónur. Íbúar Haítí þurfa
þína hjálp.
Nú þarf að lyfta grettistaki í uppbyggingarstarfi á Haítí.
Vilt þú vera með?
ACT/Paul Jeffrey
ACT/Paul Jeffrey