Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 37

Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 37
Hjálparstarf kirkjunnar 1 Páskablað Hjálparstarfs kirkjunnar 2010 Margt smátt ... Afleiðingar af jarðskjálftanum á Haítí 12. janúar 2010 sem mældist 7 á Richter eru hrikalegar. Meira en 200.000 manns eru látin, um 300.000 slasaðir, 1,2 milljónir manna misstu heimili sín og lifa í tjöldum og bráðabirgðahúsnæði í höfuðborginni Port-au-Prince. Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að Alþjóðaþróunar- og neyðarhjálp kirkna. ACT Alliance. Fimm ACT- aðilar voru með starfsemi á Haítí fyrir jarðskjálftann mikla. Þeir eru burðarásarnir í uppbyggingarstarfi ACT eftir skjálftann. Þessir aðilar eru Lutheran World Federation, Christian Aid, Diakonie Katastrophenhilfe, Interchurch Organisation for Development Cooperation og United Methodist Committee on Relief. Þekking þeirra á staðháttum og góð tengsl við fólkið nýtast vel í uppbyggingar starfinu. Níu aðrir ACT-aðilar, þar á meðal Hjálparstarf norsku og dönsku kirkjunnar, hafa sent sína sérfræðinga á staðinn. Mörg hundruð tonn af matvælum, húsbúnaði og tjöldum hafa borist til nauðstaddra. Víða hafa hreinsikerfi verið sett upp til að hreinsa óhreint vatn, töflum sem hreinsa vatnið, mat og drykkjar- vatni hefur verið dreift til fólks. Lið sérfræðinga, lækna og hjúkrunarfólks er að störfum, lyfjum dreift og slösuðum sinnt. Clement Celis, 45 ára, býr í höfuðborginni Port-au-Prince, hún var í sturtu þegar ósköpin dundu yfir og dóttir hennar var inni í stofu. „Allt fór á hreyfingu og ekkert til að halda í. Það var eins og að vera í miðri flóðbylgju” segir Clement. Hún hljóp inn í stofu og tókst að komast með dóttur sinni út úr húsinu í þann mund sem húsið hrundi. Þrír synir hennar eru einnig á lífi en eiginmaður hennar er talinn af. Clement býr nú í tjaldi í búðum með börnunum sínum fjórum. Um leið og neyðarstarfi er sinnt er mikilvægt að horfa til framtíðar og gefa fólki, sem hefur misst nána ættingja og allt sitt, von þrátt fyrir allt. Að það sjái möguleika á að geta lifað með sínum nánustu við sæmilegar aðstæður og sjá sér farborða. Um það snýst uppbyggingarstarfið sem nú er framundan. Bæta þarf aðstæður í búðum sem heimilislausir búa í við mikil þrengsli. Bæta hreinlætisaðstöðu og fjölga salernum. Síðan þarf að gera fólkinu kleift að reisa varanlegri hús eða skjól en nú er rigningartíminn hafinn og þá er mjög erfitt að búa í tjöldum. Hreinsa þarf rústir og útvega byggingarefni en aðeins 25% þeirra 1,2 milljóna manna sem þurfa nýtt hús hafa fengið nauðsynlegt byggingarefni til að hefjast handa. Halda þarf áfram að dreifa mat og vatni, en um leið styðja við innlenda akuryrkju og matarframleiðslu svo hægt verði að draga úr mataraðstoð sem fyrst. Skipulagt hefur verið starf þar sem þjálfað fólk sinnir börnum í gegnum barnamiðstöðvar þar sem rætt er við þau, farið í leiki og myndmennt notuð til að hjálpa þeim að tjá erfiða reynslu sína og vinna úr henni. Þeir sem hafa slasast og þurfa að lifa við varanlega fötlun þurfa stuðning til að fá þau hjálpartæki sem henta hverjum og einum, s.s. hjólastóla og gervilimi. Vilt þú vera með í uppbyggin gar- starfinu á Haítí? Vilt þú gefa von við erfiðar aðstæður? Þú getur lagt lið með því að greiða valgreiðslu í heimabankanum þínum, leggja inn á reikning 334-26-886. kt. 450670-0499, eða hringja í söfnunarsíma 907 2003, hvert símtal gefur 2.500 krónur. Íbúar Haítí þurfa þína hjálp. Nú þarf að lyfta grettistaki í uppbyggingarstarfi á Haítí. Vilt þú vera með? ACT/Paul Jeffrey ACT/Paul Jeffrey
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.