Fréttablaðið - 20.03.2010, Blaðsíða 110
82 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
FRÉTT VIKUNNAR
LÁRÉTT
2. lútur, 6. líka, 8. sakka, 9. hluti kyn-
færa, 11. í röð, 12. tæla, 14. yfirstéttar,
16. snæddi, 17. svipuð, 18. festing,
20. í röð, 21. skrambi.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. verkfæri, 4. austur-afríku-
ríki, 5. fag, 7. matarlím, 10. skap, 13.
frostskemmd, 15. tafl, 16. árkvíslir, 19.
sjúkdómur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. basi, 6. og, 8. lóð, 9. leg,
11. mn, 12. fleka, 14. aðals, 16. át, 17.
lík, 18. lím, 20. aá, 21. ansi.
LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. al, 4. sómalía,
5. iðn, 7. gelatín, 10. geð, 13. kal, 15.
skák, 16. ála, 19. ms.
„Ég er með ofboðslegt brandara-
minni,“ segir gleðigjafinn og
yfirvélstjórinn Ragnar Rúnar
Þorgeirsson.
Ragnar byrjaði að segja brandara
á myndböndum á samskiptasíðunni
Facebook í vikunni og vakti strax
athygli. Brandararnir hafa geng-
ið manna á milli á Netinu og vakið
mikil viðbrögð. Svo mikil að Ragn-
ar segist vera rasandi hissa. „Fólk
segir að brandararnir séu snilld og
aðrir biðja um meira,“ segir hann
og hlær. „Einn sagði að ég væri
staðgengill Spaugstofunnar.“
En hvernig byrjaði þetta?
„Ég var búinn að vera mana
mig upp að segja brandara í vél-
ina í nokkrar vikur,“ rifjar Ragn-
ar upp. „Svo lét ég mig hafa það
að prufa einn. Það vakti svo mikil
viðbrögð að ég átti ekki til orð, svo
kom ég með annan og er kominn
með fimm brandara í dag. Ég held
að sprengjan hafi orðið vegna þess
að fyrsti brandarinn var svo góður.
Það kom þessu öllu af stað.“
Ragnar hefur að eigin sögn allt-
af verið mikill brandarakall og á
fulla möppu af bröndurum. „Ég er
búinn að safna í 35 eða 40 ár – og
ekki bara í möppu, ég er líka með
dós sem ég set alltaf brandaramiða
í. Svo er ég með þetta í kollinum,“
segir hann. „Ég hef bæði skrifað
niður og munað – ég man þá aðal-
lega. Ég hef alla tíð verið þannig að
ef ég man eftir brandara, þá segi ég
hann á staðnum. Þegar á við.“
Ragnar býr í Grindavík og er
yfirvélstjóri á Hans Jakobi GK 150.
Hann rær frá Sandgerði og stundar
sæbjúgnaveiðar. Hann játar að
brandararnir séu vinsælir um borð.
„Þegar við erum að spjalla saman
þá man ég oft eftir brandara og
fleygi honum fram,“ segir Ragnar.
„Það hefur fallið í góðan jarðveg.“
Ragnar ætlar að halda áfram að
setja brandara á Netið, enda rign-
ir yfir hann hrósi frá fólki um allt
land. „Ég fékk kveðju frá sjúkra-
flutningamönnum á Egilstöðum.
Þeir báðu um meira og sögðu að ég
hefði bjargað deginum,“ segir hann.
„Ég er mest ánægður með það geta
glatt einhvern. Í öllu þessu tali um
kreppu er ljós í myrkrinu að koma
með svona.“
Áhugasamir lesendur geta slegið
nafn Ragnars inn í leit á Facebook
og þá ætti síðan hans að birtast.
atlifannar@frettabladid.is
RAGNAR RÚNAR ÞORGEIRSSON: ÁNÆGÐUR MEÐ AÐ GETA GLATT FÓLK
Slær í gegn á Netinu eftir
40 ára brandarasöfnun
BRANDARAKALL Brandarar Ragnars á Netinu hafa vakið mikla athygli og hrósinu hreinlega rignir yfir hann. MYND/HILMAR BRAGI
„Við fengum ósk um vináttulands-
leik frá Hollendingum og viljum
gjarnan að hann fari fram á Laug-
ardalsvellinum. Enda kominn tími
til að karlalandslið fari nú að vinna
eitthvað á þessum velli,“ segir Frið-
geir Torfi Ásgeirsson, forseti And-
spyrnusambands Íslands. Friðgeir
hefur rætt við vallarstjóra Laug-
ardalsvallarins sem tók ágætlega í
málið og það er nú í réttum farvegi.
Ekki liggur fyrir hvenær leikurinn
við Hollendinga verður en stefnt er
að því að hann verði fyrir Evrópu-
meistaramótið í áströlskum fótbolta
sem fram fer í Kaupmannahöfn og
Malmö í sumar.
Þegar Friðgeir er krafinn skýr-
inga á nafni sambandsins, And-
spyrna, stendur ekki á útskýringum.
„Okkur fannst nafnið „ástralsk-
ur fótbolti“ vera nokkuð óþjált og
höfum því verið að leita eftir nýju
íslensku orði. Andspyrna er sam-
sett úr orðinu „andfætlingur“,
sem er annað heiti yfir Ástrali, og
svo knattspyrnu,“ útskýrir Frið-
geir en á næstunni verður opnuð
heimasíðan andspyrna.is.
Eins og Fréttablaðið hefur greint
frá stundar hópur íslenskra pilta
þessa harðskeyttu íþrótt og ætla
piltarnir nú að færa út kvíarn-
ar. „Við ætlum að setja á fót deild
þriggja liða til að byrja með og svo
verður opinn kynningardagur 2.
maí þar sem við kynnum íþrótt-
ina á Austurvelli, leyfum fólki að
sparka í bolta og sjá sportið með
berum augum,“ segir Friðgeir en
fyrir áhugasama má benda á að
æfingar eru í Fífunni í Kópavogi
klukkan níu á sunnudagskvöldum.
- fgg
Andspyrna á Laugardalsvelli
DEILD Í SUMAR Friðgeir Torfi og félagar
í áströlskum fótbolta ætla að byrja
með þriggja liða deild í sumar. Þeir vilja
spila vináttulandsleik við Hollendinga á
Laugardalsvellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég keypti réttinn að bók um þá í fyrra
eftir David Square sem heitir When
Falcons Fly og nú er Marteinn Þórsson að
ganga frá frumdrögum að handriti. Við
erum síðan að loka samningum við með-
höfund að handritinu,“ segir Snorri Þóris-
son, kvikmyndaframleiðandi hjá Pega-
sus. Hann hyggst gera kvikmynd um
íshokkíliðið Winnipeg Falcons sem vann til
fyrstu gullverðlaunanna í íshokkí á Vetrar-
ólympíuleikunum í Belgíu 1920.
Íslendingar geta vel gert tilkall til þess-
ara verðlauna enda var uppistaðan í liðinu
önnur kynslóð íslenskra innflytjenda í
Kanada. Raunar áttu allir leikmennirnir
íslenskt foreldri utan einn.
Snorri segir þetta ekki bara verða
einhverja íþróttamynd á skautum heldur
verði mannlegi þátturinn aðalatriðið. „Þeir
voru utanveltu í kanadísku deildinni, fengu
ekki að taka þátt. Þannig að þeir stofnuðu
utandeild, unnu hana auðveldlega og í kjöl-
farið var þeim leyft að keppa í aðaldeild-
inni,“ útskýrir Snorri. Öskubuskuævintýrið
hélt áfram því Winnipeg Falcons unnu einn-
ig þá deild og þar með réttinn til að keppa á
sjálfum Ólympíuleikunum í Antwerpen árið
1920. Þeir unnu síðan úrslitaleikinn gegn
Bandaríkjamönnum sem var æsispennandi.
Snorri reiknar með því að leikarar mynd-
arinnar verði samblanda af kanadískum og
íslenskum. „Þeir sem kunna því eitthvað
að leika verða bara að fara reima á sig
skautana og æfa sig í hokkíi.“ - fgg
Winnipeg Falcons á hvíta tjaldið
HÖFÐU FYRIR GULLINU Liðsmenn Winnipeg Falcons þurftu svo
sannarlega að hafa fyrir gullinu. Þeir stofnuðu utandeild í Kan-
ada, unnu hana og fengu í kjölfarið þátttökurétt í aðaldeildinni.
Hana unnu þeir einnig og farseðillinn til Belgíu var tryggður.
„Ég held að það sem standi fyrst
og fremst upp úr í þessari viku
er öll þessi blómlega menning,
Hönnunarmarsinn og Reykjavik
Fashion Festival. Þetta hefur
skyggt á alla umræðu um
fjármálahrunið.“
Dögg Mósesdóttir kvikmyndagerðarkona
Eins og Fréttablaðið greindi frá á
dögunum þá vinnur handbolta-
hetjan Logi Geirsson að bók
um síðustu tíu ár í lífi sínu ásamt
blaðamanninum Henry Birgi
Gunnarssyni. Nú berast þær
fréttir að Forlagið sé búið
að tryggja sér útgáfurétt-
inn á bókinni, sem heitir
10.10.10. Nafnið er engin
tilviljun, enda kemur
bókin út 10. okt-
óber á þessu ári
sem er einmitt
afmælisdagur
Loga.
Annar hver maður á Íslandi skartar
nú yfirvaraskeggi, kvenþjóðinni
til mismikillar gleði. Átakið nær
hápunkti þegar helstu grínistar
landsins koma saman í landssöfn-
un í beinni útsendingu á Stöð 2
á laugardaginn í næstu
viku. Jón Gnarr og Pétur
Jóhann sýna nýtt efni
og ný atriði eftir Sig-
urjón Kjartansson og
Ævar Grímsson verða
frumsýnd. Á meðal
leikara í atriðunum
verða Kjartan Guð-
jónsson, Jóhannes
Haukur, Sólveig
Arnarsdóttir,
Hannes Óli og
Gunnar Hansson.
Steed Lord er stödd í Texas þessa
dagana þar sem hljómsveitin
kemur fram á tónlistarhátíðinni
South by South West. Hljómsveitin
hefur gert það gott undanfarið
og hefur tónlist hennar hljómað
í þáttum á borð við Real World,
Road Rules, Styl‘D og Keeping up
With the Kardashians.
Milljónir fylgjast með
þessum þáttum á
sjónvarpsstöðvunum
MTV og E! og stjörn-
urnar í síðastnefndu
þáttunum eru hin
alræmda Kim
Kardashian og
systur hennar.
- afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Lækjargata 2a 101 R. sími 511-5001 opið alla daga 9.00 - 22.00
Státum af metn
aðarfullu úrvali e
rlendra bóka
Viku-
tilboð
2.295
1.795,-
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Daily Telegraph
2 E.C.A. Program Ltd.
3 Laddi